Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Side 52
52 fólk 2. mars 2018
5 hlutir sem fólk hélt að væru heilsusamlegir
Fullt nafn og aldur? „Kara Kristel
Ágústsdóttir, 22 ára, alveg að
verða 23.“
Fjölskylduhagir? „Ein með son
sem er þriggja ára, en er ekki ein
að ala hann upp! Hann á líklega
bestu föðurfjölskyldu sem ég veit
um.“
Hvar ertu fædd og uppalin? „O
mæ god ókei. Ég fæddist á Sel-
fossi, en bjó aldrei þar. Ég bjó
á svo rosalega mörgum stöð-
um. Hveragerði, Djúpavogi, svo
Reykjavík. Búin að búa í nokkur
ár núna í Borgarnesi, en hef alltaf
tengt mest við Reykjavík svo ég tel
mig vera þaðan.“
Hver finnst þér fallegasti staður-
inn á Íslandi? „Eflaust Keflavíkur-
flugvöllur, mjög fallegt að einn
staður hafi svona margar út-
gönguleiðir frá þessu veðri.“
Hvernig mydnirðu lýsa þér í þrem-
ur orðum? „Hvatvís, tæp, fyndin.“
Uppáhaldshljómsveit? „Írafár
er sú eina sem mér dettur í hug í
augnablikinu, halló þjóðhátíð!“
Hvar vildirðu eiga heima ef ekki
á Íslandi? „Bandaríkjunum, mest
út af því ég kann ensku.“
Uppáhaldsmatur? „Frönskurnar
á Prikinu.“
Uppáhaldsdrykkur? „Vatn og
eplasvali.“
Besti sjónvarpsþátturinn?
„Gossip Girl og Sex and the city.“
Uppáhaldsveitingastaður? „Úff,
ég veit ekki, fer mjög sjaldan út að
borða, en fór á El Santo fyrir stuttu
og ómægod hvað það var gott!“
Uppáhaldsleikari? „Johnny Depp,
eiginlega bara því hann er sætur.“
Fyrirmynd? „Kris Jenner, halló
momager sko.“
Af hverju ertu stoltust? „Barninu
mínu.“
Hvaða drauma áttu eftir að láta
rætast? „Skrifa bók, framleiða
þætti, læra að gera tónlist, ferð-
ast um heiminn, kaupa hús, búa á
strönd, læra að fljúga flugvél, búa
til app og ógeðslega marga aðra
drauma.“
Hvað langaði þig að verða þegar
þú yrðir stór? „Hef aldrei vitað
það, og veit ekki enn.“
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? „Skakkar tennur, skítugt
hár, vond lykt … og þröngsýni!“
Ef þú værir ekki að gera það sem
þú ert að gera í dag, hvað myndir
þú vilja vera að gera? „Í áfram-
haldandi förðunarnámi í Banda-
ríkjunum, special effects.“
Hvaða ráð gæfir þú sjálfri þér
fyrir fimm árum? „Ekki neitt, ég á
erfitt með að fara að ráðum.“
Mikilvægast í lífinu? „Sonur
minn og hamingjan hans. Og auð-
vitað mín hamingja líka.“
Mestu vonbrigðin? „Að Kylie
Jenner var ekki staðgöngumóðir
Kim Kardashian, ég var svo viss
um það.“
Mottó? „Hvað myndi Bjarni Ben
gera?“
Hvort mundir þú frekar vilja sofa
aftur hjá síðasta manni sem þú
svafst hjá eða fyrsta? „Fyrsta.“
Hvaða hegðun karlmanna finnst
þér fráhrindandi í tilhugalífinu?
„Dónaskapur og of mikil
tölvuleikjaspilun, hello boring …
next!“
Hvaða ráð gæfir þú karlmönnum
varðandi samskiptin við hitt
kynið, hvað eykur líkur á vel-
gengni? „Vera fyndinn og ekki
pirrandi.“
En hvaða ráð gæfir þú konum
varðandi það sama? „Það sama,
vera fyndin og ekki pirrandi.“
Hvaða kynlífsráð mundir þú helst
gefa öðrum til að fá sem mest út
úr samneytinu? „Það er alltaf í
lagi að segja nei og það er mikil-
vægt að treysta hinum aðilanum.“
Hvað er spennandi fram undan?
„Mjög margt, en í augnablikinu
get ég ekki sagt frá því.“
K
ara Kristel kom eins og
þeysireið á sjónarsvið Ís-
lendinga. Hún var ekki
bara opin í umræðu sinni
um kynlíf heldur fyndin, frökk og
óforskömmuð. Það er ekki skrýt-
ið að athyglin beinist að henni,
hún segir það sem henni finnst og
oft veit þjóðin oft ekki hvernig á
að taka því. En hún lætur sig ekki
bara varða léttar hliðar lífsins. Hún
hefur talað opinskátt um kynferð-
isofbeldi, vandræði með getnað-
arvarnir og erfiðu hliðarnar á sam-
skiptum kynjanna á bloggi sínu,
karakristel.com.
Hvað sem öðru líður og hvað sem
hverjum finnst, þá er Kara Kristel
komin til að vera, með húmorinn
og hreinskilnina að vopni.
Við fengum hana í yfirheyrslu.
„Hvað myndi Bjarni Ben gera?“
Kara Kristel í yfirheyrslu:
Steingerður Sonja Þórisdóttir
ritstjorn@dv.is
Geislavirkir drykkir og tannkrem þar á meðal
Geislavirkir drykkir og tannkrem
Á fyrri hluta 20. aldar héldu
margir að geislavirkni væri
holl. Erfitt er að
komast að því hver
var sá fyrsti sem datt
þetta í hug en víða
í Evrópu og Banda-
ríkjunum mátti nálgast
geislavirkar vörur. Iðnjöfur-
inn Eben Byers mun hafa drukkið þrjár flöskur af
geislavirkum drykk á dag. Hann lést fimmtugur að aldri, kjálkalaus. Þýskir hermenn í síðari
heimsstyrjöld notuðu einnig geislavirkt tannkrem.
Vitamin water
Þessa drykki má enn finna í
búðum og enn halda sumir að
þetta séu hollustudrykkir. Í
einni flösku af drykknum má
vissulega finna vítamín, en
einnig 33 grömm af sykri.
Hellisbúafæði Maturinn sem við borðum í dag er ekki alltaf sá heilsusam-
legasti og því liggur í augum uppi að sniðugt sé að reyna að borða það sama og mann-
kyn gerði á steinöld. Vandinn er hins vegar sá að slíkt mataræði er ekkert endilega
hollara og getur jafnvel valdið höfuðverkjum og niðurgangi.
Atkins-kúrinn
Atkins-kúrinn var
mjög vinsæll á
árunum 2003
og 2004, þá
áttir þú að
hætta að borða
brauð og kolvetni á
borð við pasta og hrísgrjón en
máttir borða feitan mat eins og beikon
og ost. Fáir ef einhverjir náðu góðum
langtímaárangri á kúrnum og Atkins-
fyrirtækið varð gjaldþrota árið 2005.
Borða í takt við blóðflokkinn Þú áttir sem sagt að borða í takt við
blóðflokk þinn. Þeir sem eru í blóðflokki O áttu að borða mikið af dýraafurðum. Þeir sem eru
í A áttu að borða mest af grænmeti og þeir sem eru í B mikið af mjólkurvörum. Þeir sem eru í
AB áttu þannig að borða grænmeti og drekka mjólk. Þetta virkaði ekki sem skyldi.