Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 60
60 lífsstíll 2. mars 2018
Það leynast margar skemmtilegar
snyrtivörur í eldhúsinu sem hægt er
að nota í alls konar maska. Nokkur
góð hráefni í maska eru :
n Eggjahvítur
n Hunang
n Sítróna
n Mjólk
n Kókosmjólk
n Sykur
n Olíur
n Matarsódi
n Matarlím
n Hafrar
Ljúffengir hafraklattar Amöndu
Fljótlegir og geymast vel
Amanda Cortes, bloggari á
öskubuska.is, deilir ljúffengri
uppskrift að hollum hafraklöttum.
Fljótlegt er að gera hafraklattana,
þeir geymast í kæli í 5–7 daga og
lengur í frysti.
Hráefni:
n 3 vel þroskaðir bananar
n ¼ bolli eplamauk án viðbætts sykurs
n 2 tsk. vanillu dropar
n 2¼ bolli hafrar
n ½ tsk. matarsódi
n ½ tsk. lyftiduft
n 1 tsk. kanill
n ¼ tsk. salt
n 1/3 bolli hnetur, fræ eða þurrkaðir ávextir
Hægt er að nota hnetur, fræ og ávexti eftir
smekk. Í þessari uppskrift notaði Amanda
pekanhnetur, þurrkuð trönuber og sólblóma-
fræ. Einnig er gott að strá smávegis af fræj-
um yfir klattana áður en þeir fara í ofninn.
Aðferð:
Malið hafrana í blandara og hrærið þeim við
matarsóda, lyftiduft, kanil og salt. Stappið
saman banana, eplamauk og vanilludropa
og blandið saman við þurrefnin. Að lokum
er hnetum, fræjum og ávöxtum blandað
saman við með sleif.
Setjið deigið í bökunarform og stráið fræj-
um yfir. Bakið við 180°C í 15 mínútur. Leyfið
klöttunum að kólna áður en þið skerið þá
niður í hæfilega stærð.
n Einn færasti förðunarfræðingur landsins n Mikilvægt að nota
kalt vatn til að loka húðinni
T
ara Brekkan
Pétursdóttir
er einn af
færustu
förðunarfræðingum
landsins. Tara
er menntaður
förðunarfræðingur
og hefur starfað við
það í mörg ár. Tara
opnaði Snapchat-
reikning sem varð
fljótlega gífurlega vin-
sæll en þar gefur hún
ýmis ráð sem snúa að
heilbrigði húðarinnar og hársins
auk þess sem hún leyfir fylgjend-
um sínum að fylgjast með þegar
hún farðar sig og
aðra.
Tara er hörku-
dugleg og tók
ákvörðun um að
stofna sitt eigið
fyrirtæki sem
flytur inn og selur
snyrtivörur. Ásamt
því hannar Tara
sína eigin augn-
háralínu sem hún
selur undir nafni
verslunarinnar,
Törutrix.
Fylgjendur
Töru vita að hún
er mikil glimmer-
kona og það er fátt
sem Tara elskar
meira en glimmer.
Það var því við hæfi þegar Tara,
ásamt vinkonu sinni Önnu, hóf
útsendingar á hlaðvarpsþætti á
Kjarnanum að nefna þáttinn Glim-
merkokteillinn. Í þættinum fjalla
þær vinkonur mikið um tabú mál-
efni og þá sérstaklega í kvenna-
málum sem þær telja mikla þörf á
í samfélaginu.
Blaðamaður spurði Töru hver
hennar helstu og bestu förðun-
arráð væru og hvort hún væri til-
búin til að deila þeim með lesend-
um DV. Það stóð ekki á svörum
enda er Tara vel reynd og á mörg
góð ráð í pokahorn-
inu.
n Húð okkar skipt-
ir mjög miklu máli
og þá sérstaklega að
hreinsa hana, kvölds
og morgna. Þá er ég
ekki einungis að tala
um ef þið eruð með
farða á andlitinu
heldur líka ef þið
eruð ómáluð. Það
leggst mikil meng-
un, ryk og fleira, á
húðina yfir daginn
og það þarf að hreinsa hana af
á kvöldin. Farði, eða meik, ver
húðina í raun-
inni fyrir þessari
mengun. Það er
að segja mengun-
in leggst á farð-
ann og þegar þið
hreinsið hann
svo af á kvöldin
þá nær mengunin
ekki að fara inn í
húðina.
n Mér finnst
einstaklega mikil-
vægt að nota kalt
vatn til þess að
loka húðinni. Eft-
ir að húðin hefur
verið hreinsuð
með volgu eða
heitu vatni þá
opnar hún sig og
hleypir óhreinindum út úr sér. En
það sem gerist er að hún er líka
opin gagnvart óhreinindum. Þá
er best að skvetta köldu vatni yfir
andlitið því það lokar húðinni.
Þetta á einnig við um hárið.
n Gott er að að mála augun á
undan andlitinu. Ástæðan fyrir
því er sú að það hrynur stundum
augnskuggi niður undir augun og
býr til skugga sem leggst á andlitið.
Þá þarf oft að laga meikið og allt
andlitið í heild. Ef þið byrjið á aug-
unum verður húðin alltaf falleg.
Tara Brekkan Tara farðaði sig í einhyrningsþema á öskudaginn síðasta.
Snyrtivörur í eldhúsinu
Tara Brekkan Pétursdóttir
Þeir sem fylgt hafa Töru vita að
hún elskar fátt meira en fallegt
glimmer.
n Það kannast margir við það að
„klúðra“ því að setja á sig blaut-
an eyeliner eða þá að varalitur-
inn fer út af eða klessist. Fljótleg-
asta ráðið við því er að nota ljósan
hyljara og stífan bursta og hreinsa
mistökin með hyljaranum. Ekki
er gott að reyna að nudda þetta af
því það verður oft verra og tekur
lengri tíma að ná því af.
n Til þess að finna farða í rétt-
um lit er best að setja smá magn
af meikinu á hökuna og miða við
hálsinn. Við viljum sama lit á háls-
inn og andlitið. Ekki setja farðann
á handarbakið, það getur verið allt
annar litur þar.
n Mér finnst oft fallegustu
snyrtiaðstöðurnar vera þær þar
sem ekki eru notaðar sérstakar
snyrtivöruhirslur heldur fallegir
bollar, kertastjakar eða blómavas-
ar. Það er gaman að nota ímynd-
unaraflið og leika sér að því að út-
búa persónulega snyrtiaðstöðu. Tara_makeupart
Torutrix
Torutrix
Törutrix
Samfélagsmiðlar Töru Þeir sem hafa
áhuga á því að fylgjast nánar með Töru þá
er hún dugleg á öllum þessum samfélags-
miðlum :
Að halda niðurfallinu hreinu
Heimagert hreinsiefni sem virkar
T
il þess að koma í veg fyrir
að niðurföll stíflist er
mikil vægt að hreinsa þau
reglulega og passa upp á
reglulegt flæði. Auðvelt er að búa
til heimagert hreinsiefni úr hrá-
efnum sem eru til á flestum heim-
ilum. Þetta hreinsiefni virkar sér-
staklega vel á niðurföll sem eru
sjaldan notuð eins og vaska og
sturtur í gestabaðherbergjum.
n Blandið saman ½ bolla af matarsóda
og ¼ bolla borðsalti
n Hitið 1 bolla af ediki
n Hellið matarsódanum og saltinu vel
ofan í niðurfallið og svo edikinu í kjölfar-
ið. Blandan mun mynda froðu
n Leyfið blöndunni að liggja í niðurfall-
inu í 15 mínútur
n Skolið í lokin með heitu vatni í að
minnsta kosti 15–30 sekúndur
Slakur að
njóta og lifa?
N
ú þegar eru tveir
mánuðir liðnir af árinu
og tíminn heldur áfram
að renna okkur úr
greipum. Flestir hafa nú þegar
gleymt nýjársheitum sínum og
lagt markmiðin á hilluna, gerst
styrktaraðilar líkamsræktar-
stöðvanna og ekki enn búnir
að klára bókina sem þeir byrj-
uðu á.
Það skal engan undra, enda
lifum við á tímum háhraða
og tækni. Allt virðist gerast á
undraverðum hraða og áður en
við vitum af verðum við stödd
á elliheimilinu og minnumst
góðu áranna.
En hvað eru góðu árin?
Nýlega varð orðið núvitund
gríðarlega vinsælt. Fólk fór að
velta fyrir sér hvað það væri
sem raunverulega skipti máli
og áttaði sig á að það væri ekki
rándýri snjallsíminn eða hversu
mörg „like“ það fékk á mynd-
irnar sínar. Það hafa líklega all-
ir velt þessu fyrir sér, lagt frá sér
símann í örskamma stund og
farið að fylgjast með umhverfi
sínu.
En þetta eins og svo margt
annað, virðist vera einhvers
konar tískubóla. Margar bækur,
greinar og vangaveltur spruttu
upp og allir og amma þeirra
ákváðu að núna væri tíminn
komin til þess að stunda núvit-
und.
Fljótlega fór þó að bera á því
að myndir, stöðuuppfærsla og
hvatningarorð fóru að birtast á
öllum samfélagsmiðlum.
„Bara heima að slaka og
njóta“ og „Like-in skipta ekki
máli, heldur líðanin“ eru til að
mynda vinsæl orðatiltæki sem
fóru skyndilega að birtast þar
sem fólk reyndi að vekja athygli
á því að það væri nú í raun og
veru að slaka á og njóta í núvit-
und.
Við þjáumst af svakalegri
hjarðhegðun og sama hversu
mikið við reynum að telja okkur
og öðrum trú um að okkur sé
alveg sama hvað öðrum finnst,
þá er það í langflestum tilfellum
ekki satt.
Það er því mjög líklegt að
sama hvað við reynum að
vera stödd í núinu, slaka á og
njóta þá mun tæknin, forvitn-
in, athyglin og „like“-in sem
við fáum að öllum líkindum
stjórna flestum okkar allt þar til
við förum loksins á elliheimilið.
En hver veit, kannski verða
elliárin okkar þau góðu.
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is