Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 62
62 fólk 2. mars 2018 Lítt þekkt ættartengsl R agnheiður Elín Árna- dóttir, stjórnmála- fræðingur og fyrrverandi iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, hefur jafnan vakið athygli fyrir skelegga framkomu og fylgni við þau hugðarefni sem hún berst fyrir. Núna leitast hún ásamt fleirum við að varð- veita Sundhöllina í Keflavík, en hún býr í Reykjanesbæ ásamt eiginmanni sínum, Guð- jóni Inga Guðjónssyni fram- kvæmdastjóra. „Það skiptir engu hvar fólk er búsett, gömul hús með sögu varða alla landsmenn. Verk Guðjóns Samúelssonar eiga þar að auki sérstakan sess í hug- um okkar og sögu,“ segir Ragn- heiður meðal annars um Sund- höllina. Það sem ekki allir vita er að mágur Ragnheiðar er Birgir Örn Guðjónsson, lögreglu- maður og nútímafræðing- ur, Biggi lögga eins og hann er best þekktur. Biggi hefur ein- beitt sér að lögreglustarfinu frá útskrift árið 2004, fyrir utan að hann tók sér frí í fyrra og reyndi fyrir sér í flugþjónsstarfinu með góðum árangri. Í fyrra má segja að hann hafi einnig reynt að feta veg mágkonu sinnar, en þá bauð hann sig fram í 3. sæti suður fyrir Framsóknarflokkinn fyrir alþingiskosningarnar. Þau eru bæði virk á sam- félagsmiðlum og hafa pistl- ar þeirra þar, sem oft vekja athygli og um- tal, margoft ratað í fjöl- miðla, þar á meðal DV. Stjórnmála- fræðingurinn og lögreglumaðurinn Hverjum líkist þú mest? Allir segja að ég svakalega líkur pabba mínum. Það er ekki leiðum að líkjast. Pabbi er einstaklega góður og klár maður, sönn fyrirmynd. Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið? Diskó- og grúvmeistaraverkið September með Earth Wind and Fire. Nú eða Euphoria með Loreen, bara til þess að geta sagt í Eurovision-partíum: „ah, já, ég samdi þetta lag!“ Hver er fyndnasta „pick-up“ línan sem þú hefur heyrt? Kannski ekkert endilega fyndin. En þessi hefur verið notuð á mig, án gríns. „Áttu tíkall? Mig langaði nefnilega að finna tíkallasíma, hringja í mömmu þína og þakka henni fyrir að hafa eignast þig.“ Þetta fór ekkert lengra hjá okkur. Borðarðu mat sem er kominn fram yfir síðasta söludag? Alls ekki. Því miður. Það er nefnilega alveg hægt að borða mat sem kominn er fram yfir síðasta söludag og það er hræðilegt að sóa mat. En ég virðist haldinn einhverri „síðasta söludags fóbíu“ – matur er dauður fyrir mér á síðasta sölu- degi! Þarf að vinna í þessu, því matarsóun vil ég minnka! Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en er það ekki lengur? Karlmenn með strípur. Ég fékk mér strípur í 10. bekk – eflaust eina tískumeðvitaða ákvörðunin mín á þeim tíma. Það var hræðilegt! Aldrei aftur … aðallega vegna þess að ég er sköllóttur. Hvað verður orðið hallærislegt eftir 5 ár? Ég er sérstakur áhugamaður um gallabuxnatísku. Vissir þú að það eru bara 10 ár síðan allir voru í of stórum gallabuxum og það þótti flott!? Menn gengu ofan á skálmunum og buxurnar voru frekar poka- legar. Skoðaðu bara myndir af ungu fólki frá þessum tíma. Þannig að ætli þröngu gallabuxurnar sem ég elska og eru í tísku núna verði ekki orðnar frekar hallærislegar eftir 5 ár? Við verðum kannski komin í útvítt þá, eða smekkbuxur! Hvað ættu allir að prófa að minnsta kosti einu sinni í lífinu? Búa erlendis. Það er öllum hollt að sjá landið sitt úr fjarlægð og kynnast um leið menningu og lífsháttum í öðrum löndum. Ég bjó í Bretlandi meðan ég var þar í námi og á klárlega eftir að flytja aftur út. Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund kalli á klukkutíma, í hvaða verslun færirðu? Ég hata að versla en elska að ferðast. Því myndi ég væntanlega ganga inn á söluskrif- stofu flugfélags (svona ígildi þess að fara í verslun – annars, eru þær ennþá til? ) og kaupa mér nokkrar flugferðir til einhverra skemmtilegra staða. Ég reyni að láta ekki líða meira en tvo mánuði á milli þess sem ég ferðast eitthvert. Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Vinum mínum. Ég tilheyri einstaklega skemmti- legum vinahóp sem finnst gaman að hlæja saman. Við erum stundum byrjaðir að hlæja áður en við hittumst! Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að hætta? Það er klárlega ósiður að drekka kók og mér þykir einkar erfitt að hætta að drekka það. Svo stelst ég stundum í ljós yfir allra myrkustu mánuðina, desember, janúar og febrúar – það er víst ekki hollt. Nú og svo er tímaskyn mitt ekkert það besta þannig að ég mæti stundum seint, sem er klárlega ósiður. Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér? Pípið í þvottavélinni. Það þýðir að ég þarf að standa upp og sinna henni. Hverju laugstu síðast? „Ég er bara að finna stæði“ þegar ég var orðinn alltof seinn á fund og ennþá á leiðinni á áfangastaðinn. Á hvern öskraðirðu síðast?Ég öskra ekki á annað fólk því ekki vil ég láta öskra á mig. En hins vegar öskra ég tvisvar í viku með spinninghópnum mínum í World Class Laugum. Við öskrum alltaf saman undir lok tímans til þess að sleppa neikvæðri orku út. Það er smá jógi í mér, þegar þannig liggur á mér! Um hvað varstu alveg viss þangað til þú komst að því að þú hafðir rangt fyrir þér? Ég var eitt sinn viss um að ákveðin manneskja væri sjúklega leiðinleg, aðallega vegna þess að viðkomandi stríddi mér þegar ég var yngri. Þegar ég kynntist svo mann- eskjunni og þurfti að vinna verkefni með henni þá kom það bara í ljós að hún var ekki alslæm. Ég lærði þá líka að gefa fólki séns og reyna að skilja hvaðan það er að koma. Hvað er framundan um helgina? Það er alltaf nóg um að vera. Árshátíðarvertíðin er núna þannig að það er mikið um veislustjórn og plötusnúðagigg. Ég er að fara að skemmta lögfræðinemum á laugardagskvöld en á undan ætla ég að sjálfsögðu að sjá Söngvakeppnina. Á föstudagskvöld ætla ég að sjá George Micha- el-„showið“ hans Friðriks Ómars í Hörpu, hlakka mikið til. Þess á milli ætla ég að reyna að slaka á og halda áfram að horfa á The Crown! Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir? Það er enginn betri en ég í því að borða ís, tala og keyra bíl samtímis. Ég er líka alltaf fyrstur með ísinn. Sannkallaður ísbíltúrsmeistari! Þarna er jafnvel komin hugmynd að keppni? Nú labbar mörgæs með kúrekahatt inn um dyrnar hjá þér. Hvað segir hún og af hverju er hún þarna? „Úff, hvað það er leiðinlegt veður úti! Hvað er í matinn í kvöld?“ og hún er augljóslega þarna af því að hún er meðleigjandi minn! Hvernig myndirðu lýsa gulum lit fyrir blindum manni? Skella „Walking on Suns- hine“ með Katrina and The Waves á fóninn. hin hLiðin „Enginn betri en ég í því að borða ís, tala og keyra bíl samtímis“ Sigurður Þorri Gunnarsson er einstaklega skemmtilegur, athafna- samur og tímatýndur. Hann starfar sem dagskrár- og tónlistarstjóri K100 og Retro 895, er með útvarpsþátt á K100 alla virka daga frá 9 til 12 og er vinsælasti spinningkennari landsins, með tíma í World Class Laugum, þar sem jafnan er biðlisti eftir hjóli. Hann gaf sér þó tíma milli dagskrár- liða til að svara nokkrum undarlegum spurningum fyrir lesendur DV. Einar í rusli Einar Bárðarson, athafna- maður og áður umboðsmað- ur með meiru, virðist heillaður af nýjasta æðinu á Norður- löndum ef marka má stöðu- færslu hans á Facebook. Þessi stundartíska snýst um að skokkarar tína upp rusl á leið sinni. Þetta nefnist Plogging og óskar Einar eftir íslenskri þýðingu í Facebook-hópn- um Skemmtileg íslensk orð: „Að hlaupa og tína rusl er nýtt æði í Skandinavíu. Það er kall- að Plogging. Sem er jogging og eitthvað sænskt orð um að tína, bundið í eitt.“ Meðlimir hópsins stinga upp á ýmsum nýyrðum en mið- að við fjölda „læka“ virðist „pikkskokk“ vera hlutskarp- ast. Bragi fjórtándi – elsti stór- meistari Íslandssögunnar n Amma Bíbí krafði DV um umfjöllun n Skilur stóra bróður sinn eftir í sárum Þ að skiptast á skin og skúrir í íslensku skáklífi. Á blað- síðu fjögur í helgarblaði vikunnar er greint stuttlega frá lífshlaupi stórmeistarans Stef- áns Kristjánssonar sem lést í vik- unni, aðeins 35 ára að aldri. Að- eins nokkrum dögum fyrr hafði íslenskt skáksamfélag fagnað innilega þegar góðvinur Stefáns, alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson, landaði síðasta stór- meistaraáfanga sínum. Þar með hafði Bragi uppfyllt allar kröfur titilsins og verður að öllum líkind- um formlega útnefndur stórmeist- ari á þingi Alþjóða skáksambands- ins í apríl næstkomandi. Svo óþægilega vill til að Bragi er litli bróðir greinarhöfundar sem er sá eini á ritstjórn blaðsins sem skrifar um skáktengd málefni að einhverju leyti. Var það því stefna blaðamanns að leyfa öðrum fjöl- miðlum að greina frá afreki litla bróður, sérstaklega í ljósi þess að um árabil höfum við bræður keppt að því hvor yrði fyrstur stórmeist- ari og hafði litli bróðir betur. Það er nógu þungur kross að bera fyrir af- brýðisaman stóra bróður þótt ekki þurfi maður að lofsyngja brósa í fjölmiðlum líka. Aðrir fréttamiðlar brugðust þessu upplýsingahlutverki sínu hrapallega og afleiðingarnar voru þær að amma okkar bræðra, Krist- björg Gunnarsdóttir – ætíð kölluð Amma Bíbí, hefur hringt linnu- laust í fulltrúa fjölskyldunnar í fjöl- miðlum og krafið hann um um- fjöllun. Amma Bíbí lagði grunninn að skákferli okkar bræðra með því að vera óþreytandi að safna pen- ingum fyrir skákferðum til útlanda á unglingsárum okkar og er því mjög annt um að afrekum okkar í skák séu gerð góð skil. Þeir sem svara í símann hjá RÚV þekkja hana örugglega með nafni. Það er ekkert í veröldinni mikilvægara en að hlýða ömmu sinni í einu og öllu og því er tíðindunum hér með kirfilega komið á framfæri á kostn- að faglegrar nálgunar minnar sem blaðamanns. Ekki náðist í rígmontinn litla bróður minn við vinnslu fréttar- innar enda var það ekki reynt. Það að slá því upp, þótt rétt sé, að hann sé elsti Íslendingurinn til þess að verða stórmeistari er aðallega gert til að lækka aðeins í honum rostann. Að einhverju leyti verður maður þó að dást að honum enda varð hann stórmeistari í skák sam- hliða erfiðu starfi sem grunnskóla- kennari og faðir þriggja ungra barna. Á sama tíma tekst honum að vera sæmilegur eiginmaður í þokkabót. Svo er hann líka merki- lega eðlilegur maður og það er ekki öllum skákmönnum gefið. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Bragi Þorfinnsson Er elsti Íslendingurinn sem verður stórmeistari í skák. Hann er sá fjórtándi sem landar titlinum eftirsótta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.