Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 36
Helgarblað 16. mars 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir
Hurðir og
gluggar í hálfa öld
SB GluGGa- oG hurðaSmiðja
Gluggar og hurðir eru okkar ær og kýr, við erum ekki í inn-réttingum heldur sérhæfum
okkur í þessu. Einhvern veginn hefur
þetta þróast þannig að við vinnum
mest fyrir einstaklinga og algengustu
verkefnin eru hurða- og gluggasmíði
í einbýlishús eða lítil fjölbýlishús,“
segir jónas Sigurðsson, eigandi SB
Glugga- og hurðasmiðju. Starfsem-
in byggir á afar traustum grunni en
fyrirtækið stofnaði faðir jónasar,
Sigurður Bjarnason, árið 1974, og
starfaði jónas í fjölskyldufyrirtækinu
frá unga aldri en keypti fyrirtækið af
föður sínum árið 1991.
„Við erum mikið í að smíða mjög
vandaðar og dýrar hurðir þar sem
fólk vill fá öðruvísi útlit og leggja
mikið í anddyri hússins. Fjölbreytnin
hefur aukist mikið í þessum efnum,“
segir jónas en fyrirtæki hans leggur
áherslu á sérsmíði og gæði.
Gluggar og hurðir láta mikið á sjá
með tímanum í íslenskri veðráttu og
raunar hvar sem er í heiminum en
SB Glugga- og hurðasmiðja leggur
þunga áherslu á vönduð efni og
traust vinnubrögð í þessum efnum.
„regn og vindur slítur gluggum og
hurðum en langverst er samt sólin.
með tímanum eyðileggja útfjólubláir
geislar timbur, járn og hvað sem er.
Það er nefnilega ekki til neitt sem
er viðhaldsfrítt og það fer mjög í
taugarnar á mér að sjá yfirlýsingar
um slíkt í auglýsingum,“ segir jónas
en fyrirtæki hans smíðar glugga og
hurðir ávallt með langtímaendingu í
huga:
„Þetta er allt hágæðavara sem við
framleiðum. Við erum ekki að eltast
við þetta ódýrasta og sem dæmi
erum við eingöngu með ryðfríar
lamir á hurðum og svo framvegis. Við
keyrum á gæðum en ekki á lægsta
verðinu og til lengri tíma er það alltaf
hagstæðast fyrir kaupandann.“
Starfsmenn hjá SB Glugga- og
hurðasmiðju eru um tíu talsins og
það er ávallt nóg að gera. Það gefur
hins vegar auga leið að verkefnin
stóraukast á vorin og sumrin. Fyrir þá
sem þurfa að endurnýja útihurðir eða
glugga á næstunni hlýtur SB Glugga-
og hurðasmiðja að vera áhugaverður
kostur, eða eins og jónas segir: „Það
hlýtur að segja sitt að maður hafi
unnið í sama faginu í yfir 40 ár.“
SB Glugga- og hurðasmiðja er til
húsa að Hvaleyrarbraut 39, Hafnar-
firði. Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 565-4151 og heimasíða er
sbgluggar.is.