Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 35
Helgarblað 16. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ Viðhald og framkvæmdir
FLOORING SYSTEMS
SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
teppaflísar
Sterkar og einfaldar í lögn
O
ttó A
ug
lýsin
g
astofa
Loftstokkahreinsun K2 ehf. sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa og
hefur yfir áratuga reynslu af hreinsun
loftræstikerfa á Íslandi. Magnús
Ásmundsson, verkefnastjóri K2, segir
fyrirtækið sinna einstaklingum sem
og fyrirtækjum og það sé nóg að
gera enda gríðarlega mikilvægt að
hreinsa loftræstikerfi reglulega áður
en þau skaða heilsu fólks.
Stundum er ekki þörf á hreinsun –
þetta getið þið gert sjálf
Það kemur stundum fyrir að starfs
maður K2 mætir til að skoða loft
ræstingu, til dæmis í baðherbergi
í fjölbýlishúsi, og þá kemur í ljós að
ekki er þörf á hreinsun. Stundum þarf
bara að skrúfa túðuna úr og þrífa.
En þetta geta allir gert sjálfir. Þessi
aðgerð er framkvæmd í þremur
skrefum: 1. Þú byrjar á því að skrúfa
miðjuna úr 2. Síðan snýrðu túðunni
til að losa hana frá 3. Loks skolar þú
túðuna og skrúfar hana síðan aftur
Þegar þörf er á hreinsun – hvernig
fer hún fram?
„Loftræsting í fjölbýlishúsum er í flest
um tilfellum á gluggalausum baðher
bergjum og geymslum. Það er mjög
mikilvægt að loftræstingin nái að
losa raka og hita sem safnast upp því
þegar loftstokkar eru skítugir og ná
ekki að loftræsta rýmið þá er hætta á
að raki þéttist í herberginu sem býður
svo upp á skemmdir og jafnvel myglu.
Hreinsun fer þannig fram að
starfsmenn K2 mæta og fara annað
hvort upp á þak eða á lagnaloft
sé það til staðar, þaðan eru loft
ræstistokkar hreinsaðir frá þaki niður
í hverja íbúð fyrir sig og í sumum til
fellum sótthreinsaðir. Einnig er blásari
hreinsaður sé hann til staðar.
Að því loknu þarf að fara inn í
allar íbúðir í húsinu sem tengjast
loftræstingunni og þar er lofttúðan
tekin úr og þrifin, og restin af loftstokk
hreinsuð. Það er lítið ónæði fyrir íbúa
hússins við svona hreinsun og yfirleitt
tekur ekki meira en 10–15 mínútur að
klára hverja íbúð eftir að búið er að
hreinsa lagnir og blásara frá þaki.
Æskilegt er að hreinsa útsogskerfi frá
baðherbergjum á 3–5 ára fresti.“
Magnús bætir við að K2 bjóði
upp á ástandsskoðun loftræstikerfa
og mat á því hvort tími sé kominn á
hreinsun; ekkert er rukkað fyrir þá
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustusíminn hjá
Loftstokkahreinsun K2 ehf. er
775-7770 eða 557-7000.
Heimasíðan er: www.k2.is
Hreinsun loftræstikerfa er
nauðsynleg heilsunnar vegna
K2:
Mjúkur barki fyrir
Mjúkur barki eftir
Rör fyrir
Rör eftir