Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 61
16. mars 2018 61 að bæta stöðuna til muna, að­ eins með því að kanna hvert pen­ ingarnir fara og gera viðeigandi breytingar,“ segir hann og vitnar í rannsókn sem gerð var við Við­ skiptaháskólann í Kaupmanna­ höfn. Þar var gerður samanburð­ ur á sparnaði þeirra sem skráðu sig inn á smáforritið og héldu síð­ an áfram að nota það, – og svo þeim sem skráðu sig en notuðu ekki áfram. „Þeim reiknaðist til að þau sem notuðu smáforritið reglulega, spöruðu að minnsta kosti 300 krónur við hverja innskráningu. Sparnaðurinn fékkst aðallega með því að sleppa við að borga yfir­ dráttargjöld, vexti og þess háttar.“ Sparaði 200.000 í áSkriftir Finnur bendir á að mjög margir séu nánast að kasta peningum út um gluggann með því að fylgj­ ast ekki með kortayfirliti hjá sér. Fólk sé til dæmis að greiða alls konar áskriftir af afþreyingarefni á netinu án þess að njóta þess en með því að segja einhverju af þessu upp sé hægt að spara nokk­ uð háar upphæðir á ári. „Ég talaði til dæmis við einn sem sparaði sér 200.000 krónur á ári með því að segja upp alls konar svona áskriftum. Þetta gerði hann bara fyrir hádegi. Settist niður fyr­ ir framan tölvuna. Skoðaði í hvað peningarnir voru að fara og sagði svo upp því sem enginn var að nota,“ segir Finnur en sjálfur er hann bara með áskrift að Net­ flix og Spotify og hjólar yfirleitt í vinnuna. Notar 30.000 króNur í leigubíla á máNuði „Þegar ég fór að skoða bensín­ kostnaðinn hjá mér komst ég að því að ég var að eyða að minnsta kosti 30 þúsund krónum í bensín á mánuði. Ég ákvað því að prófa að nota frekar 30.000 eða minna í leigubíla og spara það sem fer í rekstur og tryggingar á bílnum. Nú nota ég aðallega reiðhjól til að komast á milli staða, strætó og leigubíla. Auðvitað er frekar krefjandi að gera svona lífsstíls­ breytingar og fólk þarf að peppa sig svolítið upp í það, en það margborgar sig þegar fram líða stundir,“ segir Finnur og bætir við að samkvæmt rannsóknum Men­ iga séu flestir Íslendingar til í að breyta venjum sínum þegar safn­ að er upp í útborgun á nýju hús­ næði. „Flestir sem eru að safna sér peningum á Íslandi eru að því til að eiga fyrir nýrri íbúð. Þá er fólk að leggja kannski helm­ ing launanna fyrir, lifir spart og þykir það ekkert til að skamm­ ast sín fyrir. Hér á Íslandi hefur hins vegar alltaf verið mikil lífs­ stílspressa í gangi og fólk ber sig kannski óþarflega mikið saman við lífsstíl náungans en áttar sig kannski ekki á því að mögulega er lítil innistæða fyrir eignum hans.“ fá Sjokk yfir því hverSu mikið fer í matariNNkaup Spurður að því hvað hann ráð­ leggi venjulegu fólki að gera til að ná tökum á peningamál­ um sínum og koma sér úr mín­ us í plús segir hann það í raun frekar einfalt. „Útgangspunkturinn er auðvitað alltaf að eyða minna en maður aflar. Svo er það al­ gjört grundvallaratriði að vita hver útgjöldin eru í hverj­ um mánuði, hversu mikið af peningum er væntanlegt um mánaðamót, – og svo er bara að passa að eyða ekki meira en maður aflar. Næstu skref eru síðan að brjóta neysluna niður. Skoða í hvað peningarnir eru fara. Föt, tryggingar, veitingastaðir? Hvað ertu að gera við peningana þína? Veistu það? Fólk fær stundum al­ gjört sjokk þegar það áttar sig á hverju það er að eyða í mat og veitingastaði og mörgum finnst erfitt að horfast í augun við það.“ peNiNgar meira tabú eN kyNlíf Að lokum ræðum við aðeins leyndina sem vanalega er í háveg­ um höfð þegar kemur að peninga­ málum landans en að sögn Breka Karlssonar, hjá Stofnun um fjár­ málalæsi, er líklegra að íslenskir foreldrar séu til í að ræða kyn­ lífsmál við börnin sín frekar en fjármálin. Flestir vinnuveitend­ ur biðja starfsmenn að ræða ekki launatölur sín á milli og persónu­ leg fjármál eru ekki kennd í grunn­ skólum. „Þetta er undarlega mikið feimnismál og sjálfur hef ég stundum stuðað vinahópinn með því að bera saman útgjöld okkar. Vinafólk mitt varð til að mynda ekkert sérstaklega sátt að heyra að ég eyddi þrjátíu prósentum minna í mat á mánuði bara með því að plana matarinnkaupin fyrirfram. Svo heyrði ég af einhverju kaffi­ stofuspjalli þar sem tveir Meniga­ notendur voru að bera saman töl­ ur. Einn ók um á Yaris meðan hinn átti tvo ameríska bensíntrukka. Sá fékk áfall þegar hann heyrði hvað eigandi Yaris var að nota í bens­ ín á mánuði, rauk til og seldi ann­ an bílinn og skellti sér svo í góða utan landsferð.“ Sparaði 200.000 krónur fyrir hádegi 5 Skref til að ná betri tökum á fjármálunum finnur pálmi hjá meniga leggur til að við gerum eftirfarandi til að ná betur utan um peningamálin. 1. tékkaðu á stöðunni tvisvar í viku Hvað ertu með í tekjur og hver eru útgjöld þín? Skoðaðu þetta tvisvar sinnum í viku. Ef þú gerir það þá er hægt að forðast að safna upp sektum og lenda í óþarfa vandræðum. 2. eyddu minna en þú aflar Þegar þú veist hvað þú ert með í tekjur og hver útgjöldin eru þá er næsta skref að eyða minna en maður aflar. 3. Settu restina í sparnað Ef þér tekst að eyða minna en þú aflar, þá skaltu taka afganginn og leggja inn á sparnaðarreikning. 4. búðu til varasjóð Safnaðu upp í ein eða tvö mánaðarlaun til að bregðast við óvæntum útgjöldum. Ef þú gerir það þá þarftu ekki að taka yfirdrátt þegar ísskápurinn eða bíllinn bilar. 5. breyttu um venjur Skipuleggðu matarinnkaupin betur. Prófaðu að vera án tveggja bíla í einn mánuð og sjáðu hvernig gengur. Finndu leiðir til að skora á sjálfa/n þig og breyta út af vananum. „hér á Íslandi hefur hins vegar alltaf verið mikil lífsstílspressa í gangi og fólk ber sig kannski óþarflega mikið saman við lífsstíl náungans en áttar sig kannski ekki á því að mögulega er lítil innistæða fyrir eignum hans. Sparnaður Finnur Pálmi segir að með því að gera örlitlar breytingar á venjum og háttum geti fólk sparað sér háar fjárhæðir á hverju ári. Sjálfur á hann ekki bíl en notar aftur á móti um 30.000 krónur á mánuði í leigubíla. Mynd Sigtryggur Ari fjármálapabbi Finnur Pálmi með dóttur sinni Sögu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.