Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 38
Helgarblað 16. mars 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir
Viðhald og endurbætur
í öruggum höndum
Verksýn ehf:
Verksýn ehf. er tækniþjón-usta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á
mannvirkjum, innandyra sem utan.
hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar
sem hafa yfirgripsmikla reynslu á
þessu sviði. Verksýn sinnir einnig
fjölbreyttum verkefnum sem snúa
að eftirliti og annarri ráðgjöf með
nýframkvæmdum. Um er að ræða
almenna framkvæmdaráðgjöf, álits-
gerðir, byggingastjórnun og hönnun
mannvirkja. frá stofnun fyrirtækis-
ins árið 2006 hefur starfsmönnum
fjölgað jafnt og þétt og í dag eru tólf
starfsmenn hjá Verksýn.
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru m.a.
einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir,
fasteignafélög og húsfélög. Markmið
Verksýnar er að mæta þörfum við-
skiptavina sinna á besta mögulega
hátt með nýtingu þeirrar þekkingar og
þess mannauðs sem fyrirtækið býr yfir.
hjá Verksýn starfa sérfræðingar
með áratuga reynslu af störfum við
mannvirkjagerð og viðhald og endur-
bætur mannvirkja.
Verksýn starfar eftir gæðakerfi
sem vottað er af Mannvirkjastofnun.
Fagþekking
starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka
reynslu af ráðgjöf um viðhald fast-
eigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekkingu
á iðngreinum, sem er ein af helstu
undirstöðum vandaðrar og fag-
legrar ráðgjafar. Verksýn hefur á að
skipa fjölda byggingafræðinga og
iðnmeistara. sérstök hæfni þeirra í
greiningu á byggingaskemmdum og
þekking á byggingatækni tryggir gæði
í skipulagningu, útfærslu, rekstri og
viðhaldi fasteigna.
Ástandsskoðun Verksýnar
Ástandsskýrsla er það tæki sem
fasteignaeigendur og forsvarsmenn
húsfélaga hafa til að leggja mat á
viðhaldsþörf á hverjum tíma. Ástands-
skýrslan gefur glögga mynd af
viðhaldsþörf næstu árin og er áreið-
anlegur grundvöllur ákvarðanatöku.
Árleg viðhaldsþörf fasteigna
Út frá reynslutölum er áætlað að
1–2% af verðmæti fasteigna þurfi til
að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra á
hverju ári. Með því að grípa tímanlega
inn í óhjákvæmilegt „hrörnunarferli“
er hægt að minnka framkvæmda-
kostnað verulega.
Útboð
Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda
þegar kemur að framkvæmdum.
Verksýn býður út tugi framkvæmda
á hverju ári. Með útboðsgögnum er
tryggt að verktakar bjóði í verkið á
sama grundvelli og eigendur eigi
auðvelt með að meta tilboðin.
Reyndur umsjónaraðili
Þegar ráðist er í viðhaldsfram-
kvæmdir er nauðsynlegt að hafa
reyndan umsjónar- og eftirlitsaðila
með verkinu. sem eftirlitsaðili tryggir
Verksýn að verktaki sinni þeim skyld-
um sem á hann eru lagðar sam-
kvæmt ákvæðum útboðsgagna:
n Yfirferð teikninga, rýning og sam-
ræming
n farið er yfir að ábyrgir meistarar
séu skráðir á viðeigandi verkliði
n Yfirferð trygginga verktaka
n Gerð verksamninga
n Yfirferð verksins með verktaka og
ábyrgum meisturum í byrjun þess
n Yfirfara tæknilegar upplýsingar yfir
þau efni sem verktaki hyggst nota við
verkið
n Yfirfara verkáætlun verktaka, sam-
ræma hana og samþykkja
n Yfirferð fyrirliggjandi verkþátta
með verktaka og úrlausn óvissuatriða
n eftirlit með að framgangur fram-
kvæmda sé samkvæmt áætlun
n Yfirfara og samþykkja dagsskýrslur
n eftirlit með vinnubrögðum og
umgengni á vinnustað allt að fimm
sinnum í viku
n eftirlit með að verklýsingum og
útboðsgögnum sé fylgt
n stjórn reglulegra verkfunda með
verktaka og fulltrúa (fulltrúum) verk-
kaupa
n ritun fundargerða á verkfundum
og frágangur og fjölföldun þeirra eftir
fundi. sent með tölvupósti ef óskað er
n Yfirferð reikninga frá verktaka og
samanburður við samþykktar magn-
tölur ásamt því að sannreyna um-
fang
n Umsjón með hlutaúttektum og
lokaúttekt. ritun úttektaryfirlýsinga
n Önnur dagleg umsýsla og umsjón
með framkvæmdum, sem fulltrúi
verkkaupa
Verksýn ehf.
Síðumúla 1,
www.verksyn.is
Verksýn hefur haft umsjón og eftirlit með viðhaldsframkvæmdum við stykkishólmskirkju
undanfarin 3 ár.
Reynir Kristjánsson stofnaði Verksýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtækinu síðan.
Sérstaklega útbúið gæðakerfi fyrir byg
gingarstjóra og
iðnmeistara kerfið byggir á grunnforri
tum, er einfalt
og þægilegt í notkun og afhendist tilbú
ið til skoðunar
hjá skoðunarstofu.