Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 38
Helgarblað 16. mars 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir Viðhald og endurbætur í öruggum höndum Verksýn ehf: Verksýn ehf. er tækniþjón-usta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem utan. hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar sem hafa yfirgripsmikla reynslu á þessu sviði. Verksýn sinnir einnig fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf með nýframkvæmdum. Um er að ræða almenna framkvæmdaráðgjöf, álits- gerðir, byggingastjórnun og hönnun mannvirkja. frá stofnun fyrirtækis- ins árið 2006 hefur starfsmönnum fjölgað jafnt og þétt og í dag eru tólf starfsmenn hjá Verksýn. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru m.a. einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, fasteignafélög og húsfélög. Markmið Verksýnar er að mæta þörfum við- skiptavina sinna á besta mögulega hátt með nýtingu þeirrar þekkingar og þess mannauðs sem fyrirtækið býr yfir. hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af störfum við mannvirkjagerð og viðhald og endur- bætur mannvirkja. Verksýn starfar eftir gæðakerfi sem vottað er af Mannvirkjastofnun. Fagþekking starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf um viðhald fast- eigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekkingu á iðngreinum, sem er ein af helstu undirstöðum vandaðrar og fag- legrar ráðgjafar. Verksýn hefur á að skipa fjölda byggingafræðinga og iðnmeistara. sérstök hæfni þeirra í greiningu á byggingaskemmdum og þekking á byggingatækni tryggir gæði í skipulagningu, útfærslu, rekstri og viðhaldi fasteigna. Ástandsskoðun Verksýnar Ástandsskýrsla er það tæki sem fasteignaeigendur og forsvarsmenn húsfélaga hafa til að leggja mat á viðhaldsþörf á hverjum tíma. Ástands- skýrslan gefur glögga mynd af viðhaldsþörf næstu árin og er áreið- anlegur grundvöllur ákvarðanatöku. Árleg viðhaldsþörf fasteigna Út frá reynslutölum er áætlað að 1–2% af verðmæti fasteigna þurfi til að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra á hverju ári. Með því að grípa tímanlega inn í óhjákvæmilegt „hrörnunarferli“ er hægt að minnka framkvæmda- kostnað verulega. Útboð Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda þegar kemur að framkvæmdum. Verksýn býður út tugi framkvæmda á hverju ári. Með útboðsgögnum er tryggt að verktakar bjóði í verkið á sama grundvelli og eigendur eigi auðvelt með að meta tilboðin. Reyndur umsjónaraðili Þegar ráðist er í viðhaldsfram- kvæmdir er nauðsynlegt að hafa reyndan umsjónar- og eftirlitsaðila með verkinu. sem eftirlitsaðili tryggir Verksýn að verktaki sinni þeim skyld- um sem á hann eru lagðar sam- kvæmt ákvæðum útboðsgagna: n Yfirferð teikninga, rýning og sam- ræming n farið er yfir að ábyrgir meistarar séu skráðir á viðeigandi verkliði n Yfirferð trygginga verktaka n Gerð verksamninga n Yfirferð verksins með verktaka og ábyrgum meisturum í byrjun þess n Yfirfara tæknilegar upplýsingar yfir þau efni sem verktaki hyggst nota við verkið n Yfirfara verkáætlun verktaka, sam- ræma hana og samþykkja n Yfirferð fyrirliggjandi verkþátta með verktaka og úrlausn óvissuatriða n eftirlit með að framgangur fram- kvæmda sé samkvæmt áætlun n Yfirfara og samþykkja dagsskýrslur n eftirlit með vinnubrögðum og umgengni á vinnustað allt að fimm sinnum í viku n eftirlit með að verklýsingum og útboðsgögnum sé fylgt n stjórn reglulegra verkfunda með verktaka og fulltrúa (fulltrúum) verk- kaupa n ritun fundargerða á verkfundum og frágangur og fjölföldun þeirra eftir fundi. sent með tölvupósti ef óskað er n Yfirferð reikninga frá verktaka og samanburður við samþykktar magn- tölur ásamt því að sannreyna um- fang n Umsjón með hlutaúttektum og lokaúttekt. ritun úttektaryfirlýsinga n Önnur dagleg umsýsla og umsjón með framkvæmdum, sem fulltrúi verkkaupa Verksýn ehf. Síðumúla 1, www.verksyn.is Verksýn hefur haft umsjón og eftirlit með viðhaldsframkvæmdum við stykkishólmskirkju undanfarin 3 ár. Reynir Kristjánsson stofnaði Verksýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtækinu síðan. Sérstaklega útbúið gæðakerfi fyrir byg gingarstjóra og iðnmeistara kerfið byggir á grunnforri tum, er einfalt og þægilegt í notkun og afhendist tilbú ið til skoðunar hjá skoðunarstofu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.