Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 26
26 16. mars 2018fréttir - erlent
S
á stóri er á leiðinni: heims-
faraldur sem gæti drepið
33 milljónir manna á fyrstu
dögunum. Á næstu árum
þar á eftir gætu 300 milljónir
manna dáið á heimsvísu.“
Svona byrjar grein breska lækn-
isins Jonathans D. Quick í vefút-
gáfu Mail Online. Quick þessi hefur
marga fjöruna sopið í læknavís-
indunum og unnið fyrir Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunina og verið
kennari við Harvard-háskóla svo
fátt eitt sé nefnt. Tilefni skrifa hans
var að vekja athygli á því hversu
berskjölduð við í raun erum þegar
kemur að heimsfaröldrum, til
dæmis af völdum inflúensu.
Eins og stórslysamynd
„Þetta hljómar eins og stórslysa-
mynd en sannleikurinn er sá að
í raun er tímaspursmál hvenær
þetta gerist – þökk sé inflúensunni,“
segir Quick í grein sinni og bendir á
að inflúensan sé sá sjúkdómur sem
hvað erfiðast sé að stjórna. Um sé
að ræða smitsjúkdóm sem dreifir
sér á ógnarhraða og sé óútreiknan-
legur, frá ári til árs.
Quick segist óttast að mjög
banvænn heimsfaraldur
inflúensu sé handan við hornið
– af stærðargráðu sem við höfum
ekki séð áður. „Aðstæðurnar eru
fyrir hendi og þetta gæti gerst á
morgun. Góðu fréttirnar eru þær
að við eigum mörg verkfæri til að
koma í veg fyrir þetta. En slæmu
fréttirnar eru þær að það er óskap-
lega lítið sem við erum að gera.“
Quick segir að við séum í raun
alveg jafn berskjölduð nú og fyrir
hundrað árum, þegar spænska
veikin reið yfir heimsbyggðina
með þeim afleiðingum að 50 millj-
ónir létust. Spænska veikin var in-
flúensufaraldur sem hafði mikil
áhrif um allan heim. Þannig er
talið að mikill meirihluti íbúa
Reykjavíkur hafi veikst.
Komin yfir á tíma
„Einni öld síðar, reynslunni og
þekkingunni á inflúensunni
ríkari, megum við búast við
öðrum faraldri brátt. Sérfróðir
telja jafnvel að við séum kom-
in yfir á tíma.“ Quick útskýrir svo
hvernig inflúensuveiran hagar
sér og bendir á að einhvers staðar
þarna úti sé mjög banvænn stofn
inflúensuveirunnar að verða til,
hugsanlega í fugli, leðurblöku, apa
eða svíni. Tímaspursmál sé hvenær
þessi stofn komist í manneskju
þaðan sem hann heldur áfram að
dreifast frá manni til manns.
„Þessi nýi stofn getur verið
okkur hættulegur, enda eitthvað
sem líkami okkar á ekki að venj-
ast. Líklega byrjaði spænska veikin
svona,“ segir hann.
Getum sjálfum okkur um kennt
Quick bendir á að mannskepnan
geti í raun engri nema sjálfri sér
um kennt. „Við elskum ódýran
kjúkling og ódýrt svínakjöt,“ segir
hann og bætir við að á býlum,
þar sem svín og kjúklingar koma
saman í þúsundatali, séu fyrirtaks-
aðstæður fyrir inflúensuveiruna.
Quick nefnir í því samhengi að
H1N1-svínaflensan árið 2009 hafi
átt rætur í einu slíku svínabúi, en
575 þúsund manns létust af völd-
um hennar. Vísindamönnum
tókst að rekja veiruna til svínabús
í Norður-Karólínu í Bandaríkjun-
um. Á örfáum árum stökkbreyttist
hún og varð jafn hættuleg og raun
bar vitni. „Svín borða nánast allt og
meltingarvegur þeirra er fullkom-
inn pottur fyrir hin ýmsu afbrigði
inflúensuveirunnar. Þegar svín
borða drit úr sjúkum kjúklingum
geta stökkbreytingar átt sér stað og
nýr inflúensustofn myndast.
Helmingur hefur látist
Quick nefnir svo að ein tegund
inflúensuveirunnar valdi
mönnum talsverðum áhyggjum
um þessar mundir, H5N1-
fuglaflensan. Flensan varð manni
fyrst að bana árið 1997 en frá ár-
inu 2003 og til ársins 2016 hafa 846
einstaklingar veikst af flensunni á
heimsvísu. Ekki mikill fjöldi enda
er H5N1 sem betur fer ekki mjög
smitandi, ekki enn þá að minnsta
kosti. Staðreyndin er þó sú að
um helmingur þeirra sem hafa
smitast hefur látist og þar liggja
áhyggjurnar.
Til samanburðar var dánartíðn-
in af völdum spænsku veikinnar
aðeins um þrjú prósent. Það hvort,
og þá hvenær, H5N1 stökkbreytist
þannig að úr geti orðið heimsfar-
aldur inflúensu liggur ekki alveg
ljóst fyrir, en möguleikinn virðist
vera fyrir hendi.
Enn fimm til tíu ára bið
Í lok greinar sinnar hvetur Quick
fólk til að vera meðvitað um hætt-
una; gæta vel að handþvotti enda
varla hægt að finna betri forvörn
en hreinlæti þegar vírusar og önn-
ur óværa er annars vegar.
„Ef þú veikist verður þú líka
að vernda aðra með því að halda
þig heima,“ segir hann og bæt-
ir að lokum við að vísindamenn
í heilbrigðisgeiranum verði að
sameinast um að þróa bóluefni
gegn flensuvírusum.
„Sem læknir þá veit ég að ekkert
verndar fólk gegn veikindum á
eins skilvirkan hátt og bóluefni.
Ef við ættum gott bóluefni gætum
við komið í veg fyrir hörmungar
af völdum inflúensu,“ segir hann
og bætir við að leitin að hinu full-
komna bóluefni, ef svo má segja,
hafi byrjað of seint.
„Þau bóluefni sem við höfum
núna vernda okkur ekki gegn öll-
um tegundum inflúensu, þremur
til fjórum í mesta lagi. Sérfræðingar
verða því að veðja á eða spá hvaða
stofn sé líklegastur til að valda
óskunda hverju sinni. „Vandamál-
ið er að þau bóluefni sem eru til
ráðast bara á tvö prótein í vírusn-
um sjálfum, prótein sem sitja við
yfirborð hans. Við þurfum bólu-
efni sem ræðst á undirstöðurnar
í vírusnum, eitthvað sem breytist
ekki, þannig að bóluefnið verði
gagnlegt við öllum stofnum.“
Quick segir að sex hópar vís-
indamanna um heim allan vinni
nú að þessu öllum stundum.
„Hver hópur er með sína nálg-
un en skilaboð þeirra eru þau að
við séum enn fimm til tíu árum
frá því að finna eitthvað nothæft.
Góðu fréttirnar eru þær að vís-
indasamfélagið veit hvað á að
gera, en hlutirnir gerast því mið-
ur ekki nógu hratt,“ segir Quick og
bætir við að ráðamenn í löndum
heimsins verði einnig að samein-
ast um að leggja til meira fjármagn
til rannsókna. „Afleiðingar þess að
gera ekki neitt gætu orðið hörmu-
legar fyrir mannkynið.“ n
Óttast
heims-
faraldur
af Óþekktri
stærðargráðu
n Jonathan Quick segir að sá stóri sé á leiðinni
n Inflúensufaraldur sem gæti dregið milljónir til dauða
„Ef þú
veikist
verður þú líka að
vernda aðra með
því að halda þig
heima
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is „Afleiðingar
þess að
gera ekki neitt
gætu orðið
hörmulegar fyrir
mannkynið
Áhyggjufullur Jonathan segir að full
ástæða sé til að hafa áhyggjur.