Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 18
18 16. mars 2018fréttir Hér búa stjórnendur lífeyrissjóðanna DV heldur áfram útekt sinni á því hvernig fulltrúar hinna ýmsu stétta hafa komið sér fyrir á fasteigna- markaði. Áður hafa verið teknir fyrir forstjórar skráðra fyrirtækja, bankastjórar, stjórnmálamenn og fulltrúa launþega svo eitthvað sé nefnt. Nú er röðin komin að framkvæmdastjórum stærstu lífeyrissjóða landsins. ritstjorn@dv.is Háteigsvegur 18 Hér býr Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyris­ sjóðs, ásamt eiginkonu sinni, Mörtu Hlín Magnadóttur. Hjónin keyptu fasteignina í apríl 2007 og var kaupverðið 39,7 milljónir króna. Um er að ræða 208,6 fermetra íbúð. Ólafur Sigurðsson var ráðinn framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs í október 2016 við sameiningu Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs. Ólafur hafði áður verið framkvæmdastjóri Stafa frá árinu 2006. Holtsbúð 89 Í þessu húsi býr Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, ásamt eiginkonu sinni Hafdísi Böðvarsdóttur. Hjónin keyptu fasteignina þann 19. apríl 2016 en kaupverðið var 83 milljónir króna. Arnaldur var ráðinn framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins í byrjun árs 2004 en þá hafði hann verið framkvæmdastjóri Séreignalífeyrissjóðsins í þrjú ár. Frostaþing 10 Hér býr Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, ásamt eiginkonu sinni Guðrúnu Hannesdóttur. Hjónin eru frumbyggjar á lóðinni en húsið varð fokhelt þann 25. ágúst 2008. Skráð stærð hússins er 332,8 fermetrar. Guðmundur var ráðinn framkvæmdastjóri sjóðsins um mitt ár 2009 en áður hafði hann stýrt eignastýringu hans. Geitastekkur 4 Hér býr Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Festu lífeyrissjóðs, ásamt eigin konu sinni, Ásdísi Kristmundsdóttur. Fasteign­ ina keyptu þau í febrúar 2005 og var kaupverðið 38 milljónir króna. Húsið er 204,8 fermetrar að stærð. Gylfi var ráðinn framkvæmdastjóri Festu þegar sjóðurinn varð til árið 2006 við sameiningu Lífeyris­ sjóðs Suðurlands og Lífeyrissjóðs Vesturlands. Þá hafði hann starfað sem framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vesturlands frá árinu 2000 og síðar Lífeyrissjóðs Suðurlands fram að sameiningunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.