Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 46
46 sport 16. mars 2018 M ér hefur líkað dvölin á nýjum stað afar vel, ég held að flestir leikmenn séu ánægðir þegar þeir spila og njóta trausts frá þjálf- aranum,“ sagði Rúrik Gíslason, leikmaður Sandhausen í Þýska- landi og íslenska landsliðsins. Rúrik skipti yfir til Sandhausen í næstefstu deild Þýskalands frá Nürnberg þar sem hann hafði verið síðustu ár. Þessi þrítugi leikmaður upp- lifði oft erfiða tíma í Nürnberg, þjálfarinn þoldi ekki að Rúrik væri valinn í íslenska landsliðið og setti hann iðulega út í kuldann eftir verkefni með landsliðinu. Rúrik náði því aldrei fótfestu hjá fé- laginu og fór til Sandhausen þar sem hann hefur blómstrað. „Hér í Sandhausen er þetta mikið til byggt á svipuðum grunni og íslenska landsliðið. Það er sterkur varnarleikur og mikil vinnsla í liðinu, það er mik- ið hlaupið og allir leggjast á eitt. Taktískt finnst mér þetta mjög gott hérna, við töpuðum síðasta leik í deildinni sem var ekki alveg nógu gott en fram að því leit þetta allt virkilega vel út. Í síðustu tveimur leikjum hafa einstaklingsmistök reynst okkur afar dýr, ég ætla ekk- ert að skella skuldinni á einn eða tvo leikmenn en það er margt sem þarf að ganga upp í þessari deild. Það geta allir unnið alla, það eru átta leikir eftir og við erum fimm stigum frá umspili. Það getur allt gerst í fótbolta.“ Gerir allt auðveldara að njóta trausts Kenan Kocak, þjálfari Sand- hausen, hefur sýnt Rúrik mikið traust og hefur fengið það til baka með góðri frammistöðu frá Kópa- vogsbúanum. „Það er allt annað að vera leikmaður þegar þú ert með fullt traust, það gerir allt auð- veldara. Ég finn fyrir miklu trausti og vonandi hefur mér hingað til tekist að borga það til baka. Ég finn líka mikinn mun hjá Sandhausen, að hér er mikil virðing borin fyrir því að leikmaður sé í landsliðinu, í Nürnberg var það bara vesen fyrir mig að koma eftir landsleiki. Þá var ég iðulega settur út úr hópn- um. Kocak þurfti ekki að eyða mörgum orðum til að sannfæra mig þegar hann hringdi og bauð mér að koma hingað, hann sagði mér að ef ég myndi standa mig þá væri ég hans maður og hingað til hefur það gengið upp. Vonandi verður áframhald á því.“ Næsti bakvörður landsliðsins? Rúrik var fenginn til Sandhausen sem kantmaður eða sóknarmaður og þar byrjaði hann að spila, meiðsli urðu til þess að hann hefur síðan leikið talsvert sem hægri bakvörður. Þar hefur Rúrik fengið mikið lof fyrir spilamennsku sína og gæti hann nýst íslenska lands- liðinu þar. „Ég kom hingað og átti að vera kantmaður og eða sóknar- maður, það meiðast svo tveir hægri bakverðir. Einn fótbrotn- aði og hinn braut hauskúpuna, ég byrjaði á að spila sem hægri og vinstri vængbakvörður en síðan nokkra leiki sem hægri bakvörður í 4-4-2. Það hefur verið gaman að spila þá stöðu, mér líkar það mjög vel og ég er hægt og rólega að læra inn á þessa stöðu. Það hefur geng- ið vel og ég held áfram að læra inn á hana, þetta er spennandi staða og skemmtilegt að spila hana. Ég treysti mér vel til að spila hana með landsliðinu ef Heimir ákveð- ur að ég eigi að spila þar. Oft, til að byrja með, getur verið örlítið stressandi að spila nýja stöðu en eftir nokkra leiki þarna þá líður mér vel og hef sjálfstraust í henni, ég hef gaman af því vera bakvörð- ur.“ Vilja framlengja samning Rúrik samdi við Sandhausen til sumars en félagið vill gera við hann langan samning. „Ég átti samtal við þjálfarann og stjórnina um daginn og þeir vilja gera við mig langan samning. Það eru bún- ar að vera miklar sögusagnir um að þjálfarinn sé að fara í sumar og hann er orðaður við Hoffenheim, Stuttgart og fleiri klúbba. Ég vil ekki skrifa undir neitt nema fram- tíð hans sé á hreinu, ég sagði þjálf- aranum það. Það er fullur skiln- ingur á því og við tökum aftur upp þráðinn þegar allt er á hreinu.“ Spenntur fyrir komandi verkefni Landsliðið heldur til Bandaríkj- anna í næstu viku þar sem liðið leikur æfingarleiki við Mexíkó og Perú en um er að ræða síð- ustu leikina áður en lokahópur- inn fyrir HM verður valinn. „Þetta leggst vel í mig, þetta eru tveir mjög spennandi leikir og það er bara gamla góða klisjan, það er alltaf geggjað að vera í landsliðinu. Ég held að það sjáist alltaf á leik liðsins að það vilja allir vera með og það leggja sig allir alltaf 100 prósent fram. Þetta eru öðruvísi andstæðingar, en við erum vanir að spila vel og þeir eru því mikil- vægari en oft áður. Ég held að það sé mikilvægt að maður spili sinn leik og sé ekki að hugsa of mikið eða fara fram úr sér þegar maður er valinn.“ Missti af EM Rúrik var einn af þeim sem þurftu að bíta í það súra epli að missa af sæti í hópnum sem fór á EM í Frakklandi. „Ég held að ég hafi ekki veikt stöðu mína með því að fara til Sandhausen og spila í hverri viku, það vilja allir fara á þetta stórmót. Ég held að það breyti ekki neinu hvort menn hafi misst af EM eða ekki, það vilja allir alltaf vera með. Það er mikil samkeppni, ég er að spila alla leiki núna og vonandi hjálpar það mér þegar hópurinn fyrir Rússland verður kynntur.“ n Er Rúrik óvænt vopn í varnarlínu Íslands á HM? n Spilar oft sem hægri bakvörður n Blómstrar á nýjum stað Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is „Einn fótbrotn- aði og hinn braut hauskúpuna, ég byrjaði á að spila sem hægri og vinstri vængbakvörður. Á góðri stundu Rúrik fagnar þegar íslenska landsliðið tryggði sér sæti á HM. MyNd daVíð Þór GuðlauGSSoN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.