Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Side 46
46 sport 16. mars 2018
M
ér hefur líkað dvölin á
nýjum stað afar vel, ég
held að flestir leikmenn
séu ánægðir þegar þeir
spila og njóta trausts frá þjálf-
aranum,“ sagði Rúrik Gíslason,
leikmaður Sandhausen í Þýska-
landi og íslenska landsliðsins.
Rúrik skipti yfir til Sandhausen
í næstefstu deild Þýskalands frá
Nürnberg þar sem hann hafði
verið síðustu ár.
Þessi þrítugi leikmaður upp-
lifði oft erfiða tíma í Nürnberg,
þjálfarinn þoldi ekki að Rúrik væri
valinn í íslenska landsliðið og setti
hann iðulega út í kuldann eftir
verkefni með landsliðinu. Rúrik
náði því aldrei fótfestu hjá fé-
laginu og fór til Sandhausen þar
sem hann hefur blómstrað.
„Hér í Sandhausen er þetta
mikið til byggt á svipuðum
grunni og íslenska landsliðið.
Það er sterkur varnarleikur og
mikil vinnsla í liðinu, það er mik-
ið hlaupið og allir leggjast á eitt.
Taktískt finnst mér þetta mjög gott
hérna, við töpuðum síðasta leik í
deildinni sem var ekki alveg nógu
gott en fram að því leit þetta allt
virkilega vel út. Í síðustu tveimur
leikjum hafa einstaklingsmistök
reynst okkur afar dýr, ég ætla ekk-
ert að skella skuldinni á einn eða
tvo leikmenn en það er margt sem
þarf að ganga upp í þessari deild.
Það geta allir unnið alla, það eru
átta leikir eftir og við erum fimm
stigum frá umspili. Það getur allt
gerst í fótbolta.“
Gerir allt auðveldara
að njóta trausts
Kenan Kocak, þjálfari Sand-
hausen, hefur sýnt Rúrik mikið
traust og hefur fengið það til baka
með góðri frammistöðu frá Kópa-
vogsbúanum. „Það er allt annað
að vera leikmaður þegar þú ert
með fullt traust, það gerir allt auð-
veldara. Ég finn fyrir miklu trausti
og vonandi hefur mér hingað til
tekist að borga það til baka. Ég finn
líka mikinn mun hjá Sandhausen,
að hér er mikil virðing borin fyrir
því að leikmaður sé í landsliðinu, í
Nürnberg var það bara vesen fyrir
mig að koma eftir landsleiki. Þá
var ég iðulega settur út úr hópn-
um. Kocak þurfti ekki að eyða
mörgum orðum til að sannfæra
mig þegar hann hringdi og bauð
mér að koma hingað, hann sagði
mér að ef ég myndi standa mig þá
væri ég hans maður og hingað til
hefur það gengið upp. Vonandi
verður áframhald á því.“
Næsti bakvörður landsliðsins?
Rúrik var fenginn til Sandhausen
sem kantmaður eða sóknarmaður
og þar byrjaði hann að spila,
meiðsli urðu til þess að hann hefur
síðan leikið talsvert sem hægri
bakvörður. Þar hefur Rúrik fengið
mikið lof fyrir spilamennsku sína
og gæti hann nýst íslenska lands-
liðinu þar. „Ég kom hingað og átti
að vera kantmaður og eða sóknar-
maður, það meiðast svo tveir
hægri bakverðir. Einn fótbrotn-
aði og hinn braut hauskúpuna,
ég byrjaði á að spila sem hægri og
vinstri vængbakvörður en síðan
nokkra leiki sem hægri bakvörður
í 4-4-2. Það hefur verið gaman að
spila þá stöðu, mér líkar það mjög
vel og ég er hægt og rólega að læra
inn á þessa stöðu. Það hefur geng-
ið vel og ég held áfram að læra inn
á hana, þetta er spennandi staða
og skemmtilegt að spila hana. Ég
treysti mér vel til að spila hana
með landsliðinu ef Heimir ákveð-
ur að ég eigi að spila þar. Oft, til
að byrja með, getur verið örlítið
stressandi að spila nýja stöðu en
eftir nokkra leiki þarna þá líður
mér vel og hef sjálfstraust í henni,
ég hef gaman af því vera bakvörð-
ur.“
Vilja framlengja samning
Rúrik samdi við Sandhausen til
sumars en félagið vill gera við
hann langan samning. „Ég átti
samtal við þjálfarann og stjórnina
um daginn og þeir vilja gera við
mig langan samning. Það eru bún-
ar að vera miklar sögusagnir um
að þjálfarinn sé að fara í sumar og
hann er orðaður við Hoffenheim,
Stuttgart og fleiri klúbba. Ég vil
ekki skrifa undir neitt nema fram-
tíð hans sé á hreinu, ég sagði þjálf-
aranum það. Það er fullur skiln-
ingur á því og við tökum aftur upp
þráðinn þegar allt er á hreinu.“
Spenntur fyrir komandi verkefni
Landsliðið heldur til Bandaríkj-
anna í næstu viku þar sem liðið
leikur æfingarleiki við Mexíkó
og Perú en um er að ræða síð-
ustu leikina áður en lokahópur-
inn fyrir HM verður valinn. „Þetta
leggst vel í mig, þetta eru tveir
mjög spennandi leikir og það er
bara gamla góða klisjan, það er
alltaf geggjað að vera í landsliðinu.
Ég held að það sjáist alltaf á leik
liðsins að það vilja allir vera með
og það leggja sig allir alltaf 100
prósent fram. Þetta eru öðruvísi
andstæðingar, en við erum vanir
að spila vel og þeir eru því mikil-
vægari en oft áður. Ég held að það
sé mikilvægt að maður spili sinn
leik og sé ekki að hugsa of mikið
eða fara fram úr sér þegar maður
er valinn.“
Missti af EM
Rúrik var einn af þeim sem þurftu
að bíta í það súra epli að missa
af sæti í hópnum sem fór á EM í
Frakklandi. „Ég held að ég hafi ekki
veikt stöðu mína með því að fara til
Sandhausen og spila í hverri viku,
það vilja allir fara á þetta stórmót.
Ég held að það breyti ekki neinu
hvort menn hafi misst af EM eða
ekki, það vilja allir alltaf vera með.
Það er mikil samkeppni, ég er að
spila alla leiki núna og vonandi
hjálpar það mér þegar hópurinn
fyrir Rússland verður kynntur.“ n
Er Rúrik óvænt vopn í
varnarlínu Íslands á HM?
n Spilar oft sem hægri bakvörður n Blómstrar á nýjum stað
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is „Einn fótbrotn-
aði og hinn braut
hauskúpuna, ég byrjaði
á að spila sem hægri og
vinstri vængbakvörður.
Á góðri stundu
Rúrik fagnar þegar
íslenska landsliðið
tryggði sér sæti á HM.
MyNd daVíð Þór GuðlauGSSoN