Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 54
54 fólk 16. mars 2018 Láttu þér ekki vera kalt Sími 555 3100 www.donna.is hitarar og ofnar Olíufylltir ofnar 7 og 9 þilja 1500W og 2000 W Keramik hitarar með hringdreifingu á hita Hitablásarar í úrvali Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf H elga Fanney Tómasdóttir er 17 ára gömul, alin upp á miklu tónlistarheim- ili og hefur alltaf langað að vera söngkona. Hún er hins vegar einstaklega feimin og hóf ekki að syngja opinberlega fyrr en í fermingunni sinni. Síðan þá hefur hún verið óstöðvandi, en ávallt með feimnina í farteskinu, gefið út tvo geisladiska, sungið í brúðkaupum, á tónleikum og án undirbúnings við jarðarför besta vinar föður síns. „Ég var líklega sex ára þegar ég söng fyrst, þá var ég á námskeiði og Birgitta Haukdal var að kenna,“ segir Helga Fanney. „Ég steig inn í stúdíó og söng Maístjörnuna og ég hef eiginlega sungið síðan.“ Þetta námskeið er eina kennslan sem Helga Fanney hef- ur sótt í tónlist og þrátt fyrir að hafa byrjað að syngja þá, vissu fáir af því að Helga Fanney héldi lagi og einn af þeim var faðir hennar, Tómas Ó. Malmberg, sem hefur unnið við tónlist í yfir 30 ár og er vel þekktur trúbador. „Já ,alveg lengi,“ segir hún með krafti, aðspurð hvort og hvers vegna hún hafi falið sönginn fyrir föður sínum, „ég var bara mjög feimin sem barn og er það ennþá, ég þori ekki einu sinni að hringja í Domino's og panta mér pítsu, ég nota bara appið, ég hef alltaf verið ótrúlega feimin,“ segir þessi ungi söngfugl og virkar ekkert feiminn. Aldrei var sungið í fjölskylduboðum eða slíku, að hennar sögn, og því tókst henni að fela hæfileika sína eins lengi og raun ber vitni. Eftir grunnskóla vildi hún læra eitthvað skapandi og valdi leiklistarbraut í Borgarholtsskóla, auk þess að vera á fullu að syngja. „Ég valdi leik- list af því að mig langaði að fara í skapandi nám, að læra að teikna og þessi braut hentaði mér best.“ Pabbi öskraði og pantaði strax tíma í hljóðveri Faðir Helgu Fanneyjar heyrði hana fyrst syngja þegar hún var 13 ára. „Ég póstaði myndbandi þar sem ég var að syngja á Facebook árið 2010 eða 2011. Pabbi sá það tölu- vert seinna, árið 2013 eða eitthvað, og hann trúði ekki að þetta væri ég. Svo þegar ég fór í háu nóturnar var hann alveg, „Jú, þetta er dóttir mín.“ „Ég var inni í herbergi hjá mér og hann öskraði á mig að koma fram. Ég hugsaði bara hvað er nú að gerast, þá vildi hann að ég syngi fyrir hann, svo rauk hann í símann og var búinn að bóka tíma í stúdíó nokkrum mínútum seinna.“ Fyrsta platan kom síðan út þegar Helga Fanney var 13 ára. Á henni eru fjögur lög sem hún valdi sjálf, When I Think of Angels, In the Arms of the Angels, Hallelujah og Make You Feel My Love og spil- ar faðir hennar undir á plötunni. „Þetta er mjög skrýtið, ég gekk bara inn í stúdíóið og leið eins og ég ætti heima þar,“ segir Helga Fanney. „Ég setti á mig heyrnartólin og bara söng. Ég held að flestir sem eru frægir séu eitthvað feimnir, ég er samt ekki með sviðsskrekk, ég er örlítið stressuð áður en ég syng, en ekki á meðan. En eftir á þá verð ég ógeðslega stressuð, held að það sé vegna þess að ég verði hrædd við hvað fólk segir.“ Syngur lag við texta Ruthar Nýlega kom svo út annar diskur þar sem Helga Fanney syngur tíu lög, sem öll eru tekin upp í einni töku, lögin fjögur sem voru á fyrri diskn- um, fimm önnur tökulög og síðan eitt frumsamið lag, Þú lífs míns ljós. Textinn er eftir Ruth Reginalds og lagið eftir föður Helgu Fanneyjar, sem spilar einnig undir á plötunni. Diskumslagið er síðan plakat og skrifar vinur Tómasar, Ingvar Val- geirsson tónlistarmaður, umsögn um Helgu Fanneyju. „Ruth samdi textann fyrir dætur sínar og hún vildi að pabbi myndi semja lag- ið, þau eru mjög góðir vinir,“ segir Helga Fanney. „Ruth ætlaði fyrst að syngja það sjálf, en pabbi stakk svo upp á að ég myndi syngja það.“ Helga Fanney spilar á hljóð- færi líka, úkúleke og píanó og er að kenna sjálfri sér á gítar. „Ég er samt með svo litla fingur að úkúleleið er bara fínt og létt að spila á það,“ segir hún og hlær. „Ég er líka svo lítil, bara 154 sentimetrar. Við pabbi erum mest bókuð í brúðkaup og jarðarfarir, ég söng í sex brúðkaupum síðasta sumar. Ég er farin að halda að hann treysti mér ekki til að vera ein. Það er seinni tíma vandamál,“ segir hún og hlær, aðspurð hvort faðir henn- ar spili alltaf undir hjá henni. Söng í jarðarför Gulla Falk án undirbúnings Helga Fanney söng á Falkfest, styrktartónleikum fyrir gítarleikar- ann og tónlistarmanninn Guðlaug Falk, sem haldnir voru á Spot 6. maí 2016. Þar komu fram margar af helstu rokksveitum landsins, eins og Dimma, Sólstafir og Skálmöld, svo aðeins nokkrar séu nefndar. Eftir harða baráttu við krabbamein lést Gulli og var hann jarðsunginn í Háteigskirkju 26. júlí 2017. „Stebbi Jak, söngvari Dimmu, kom þar til mín og spurði hvort ég væri stressuð og ég skildi nú ekki af hverju hann var að spyrja að því. Síðan kom Ingvar til okkar pabba og spurði: „Hvaða lag ætlið þið að taka?“ hálftíma áður en athöfn- in átti að byrja,“ segir Helga Fann- ey. Kom þá í ljós að láðst hafði að bæta Tómasi í Facebook-hópspjall þar sem menn tóku sig saman um hverjir ættu að spila, hvaða lag og svo framvegis í athöfninni. Feðgin- in brunuðu því heim, sóttu gítarinn og ákváðu á leiðinni að Helga Fann- ey myndi syngja Make You Feel My love. Háteigskirkja var full af fólki að fylgja Gulla síðustu skrefin, yfir 100 mótorhjól fyrir utan, enginn prestur var við athöfnina og athöfnin var rokktónleikar. „Þetta er skemmtilegasta jarðar- för sem ég hef farið í og sú fyrsta þar sem var klappað. Ég vildi að allar jarðarfarir væru svona,“ segir Helga Fanney. „Þetta á að vera góð kveðju- stund, rifja upp góðar minningar og hlæja, af hverju áttu að gráta, heldur þú að sá látni myndi vilja það?“ Næst á dagskrá í söngnum er að fylgja plötunni eftir og eru útgáfu- tónleikar fyrirhugaðir á árinu. „Draumurinn er og hefur alltaf verið að vera söngkona, en ef það gengur ekki eftir þá langar mig í lögguna, ég elska löggurann- sóknarþætti og hefur langað að vera lögga síðan ég var níu ára,“ segir Helga Fanney, sem þarf þó líklega ekki að treysta á plan B, því ljóst er þegar hlýtt er á plötuna að hún á framann vísan í söngnum. n „Pabbi öskraði þegar hann heyrði að ég gæti sungið“ Helga Fanney er 17 ára og gefur út sína aðra plötu með frumsömdu lagi við texta Ruthar Reginalds Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Á góðri stundu Helga Fanney og Gulli Falk á góðri stund árið 2015. Gulli og Tómas, faðir Helgu Fanneyjar, voru mjög góðir vinir. Hæfileikarík Helga Fanney með listaverk eftir föður sinn í bakgrunni. Mynd SiGtRyGGuR ARi Songbird Diskurinn inniheldur 10 lög, sem öll eru tekin upp í einni töku: níu tökulög og eitt frum- samið, með texta Ruthar Reginalds og lagi Tómasar, föður Helgu Fanneyjar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.