Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 54
54 fólk 16. mars 2018
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
H
elga Fanney Tómasdóttir
er 17 ára gömul, alin upp
á miklu tónlistarheim-
ili og hefur alltaf langað
að vera söngkona. Hún er hins
vegar einstaklega feimin og hóf
ekki að syngja opinberlega fyrr
en í fermingunni sinni. Síðan þá
hefur hún verið óstöðvandi, en
ávallt með feimnina í farteskinu,
gefið út tvo geisladiska, sungið í
brúðkaupum, á tónleikum og án
undirbúnings við jarðarför besta
vinar föður síns.
„Ég var líklega sex ára þegar ég
söng fyrst, þá var ég á námskeiði
og Birgitta Haukdal var að kenna,“
segir Helga Fanney. „Ég steig inn í
stúdíó og söng Maístjörnuna og ég
hef eiginlega sungið síðan.“
Þetta námskeið er eina
kennslan sem Helga Fanney hef-
ur sótt í tónlist og þrátt fyrir að
hafa byrjað að syngja þá, vissu fáir
af því að Helga Fanney héldi lagi
og einn af þeim var faðir hennar,
Tómas Ó. Malmberg, sem hefur
unnið við tónlist í yfir 30 ár og er
vel þekktur trúbador.
„Já ,alveg lengi,“ segir hún
með krafti, aðspurð hvort og
hvers vegna hún hafi falið
sönginn fyrir föður sínum, „ég
var bara mjög feimin sem barn
og er það ennþá, ég þori ekki
einu sinni að hringja í Domino's
og panta mér pítsu, ég nota bara
appið, ég hef alltaf verið ótrúlega
feimin,“ segir þessi ungi söngfugl
og virkar ekkert feiminn. Aldrei
var sungið í fjölskylduboðum
eða slíku, að hennar sögn, og því
tókst henni að fela hæfileika sína
eins lengi og raun ber vitni. Eftir
grunnskóla vildi hún læra eitthvað
skapandi og valdi leiklistarbraut í
Borgarholtsskóla, auk þess að vera
á fullu að syngja. „Ég valdi leik-
list af því að mig langaði að fara í
skapandi nám, að læra að teikna
og þessi braut hentaði mér best.“
Pabbi öskraði og pantaði strax
tíma í hljóðveri
Faðir Helgu Fanneyjar heyrði hana
fyrst syngja þegar hún var 13 ára.
„Ég póstaði myndbandi þar sem
ég var að syngja á Facebook árið
2010 eða 2011. Pabbi sá það tölu-
vert seinna, árið 2013 eða eitthvað,
og hann trúði ekki að þetta væri ég.
Svo þegar ég fór í háu nóturnar var
hann alveg, „Jú, þetta er dóttir mín.“
„Ég var inni í herbergi hjá mér
og hann öskraði á mig að koma
fram. Ég hugsaði bara hvað er nú
að gerast, þá vildi hann að ég syngi
fyrir hann, svo rauk hann í símann
og var búinn að bóka tíma í stúdíó
nokkrum mínútum seinna.“
Fyrsta platan kom síðan út
þegar Helga Fanney var 13 ára. Á
henni eru fjögur lög sem hún valdi
sjálf, When I Think of Angels, In
the Arms of the Angels, Hallelujah
og Make You Feel My Love og spil-
ar faðir hennar undir á plötunni.
„Þetta er mjög skrýtið, ég gekk
bara inn í stúdíóið og leið eins og ég
ætti heima þar,“ segir Helga Fanney.
„Ég setti á mig heyrnartólin og bara
söng. Ég held að flestir sem eru frægir
séu eitthvað feimnir, ég er samt ekki
með sviðsskrekk, ég er örlítið stressuð
áður en ég syng, en ekki á meðan. En
eftir á þá verð ég ógeðslega stressuð,
held að það sé vegna þess að ég verði
hrædd við hvað fólk segir.“
Syngur lag við texta Ruthar
Nýlega kom svo út annar diskur þar
sem Helga Fanney syngur tíu lög,
sem öll eru tekin upp í einni töku,
lögin fjögur sem voru á fyrri diskn-
um, fimm önnur tökulög og síðan
eitt frumsamið lag, Þú lífs míns ljós.
Textinn er eftir Ruth Reginalds og
lagið eftir föður Helgu Fanneyjar,
sem spilar einnig undir á plötunni.
Diskumslagið er síðan plakat og
skrifar vinur Tómasar, Ingvar Val-
geirsson tónlistarmaður, umsögn
um Helgu Fanneyju. „Ruth samdi
textann fyrir dætur sínar og hún
vildi að pabbi myndi semja lag-
ið, þau eru mjög góðir vinir,“ segir
Helga Fanney. „Ruth ætlaði fyrst að
syngja það sjálf, en pabbi stakk svo
upp á að ég myndi syngja það.“
Helga Fanney spilar á hljóð-
færi líka, úkúleke og píanó og er að
kenna sjálfri sér á gítar. „Ég er samt
með svo litla fingur að úkúleleið
er bara fínt og létt að spila á það,“
segir hún og hlær. „Ég er líka svo
lítil, bara 154 sentimetrar.
Við pabbi erum mest bókuð í
brúðkaup og jarðarfarir, ég söng
í sex brúðkaupum síðasta sumar.
Ég er farin að halda að hann treysti
mér ekki til að vera ein. Það er
seinni tíma vandamál,“ segir hún
og hlær, aðspurð hvort faðir henn-
ar spili alltaf undir hjá henni.
Söng í jarðarför Gulla Falk
án undirbúnings
Helga Fanney söng á Falkfest,
styrktartónleikum fyrir gítarleikar-
ann og tónlistarmanninn Guðlaug
Falk, sem haldnir voru á Spot 6.
maí 2016. Þar komu fram margar af
helstu rokksveitum landsins, eins
og Dimma, Sólstafir og Skálmöld,
svo aðeins nokkrar séu nefndar.
Eftir harða baráttu við krabbamein
lést Gulli og var hann jarðsunginn í
Háteigskirkju 26. júlí 2017.
„Stebbi Jak, söngvari Dimmu,
kom þar til mín og spurði hvort ég
væri stressuð og ég skildi nú ekki
af hverju hann var að spyrja að því.
Síðan kom Ingvar til okkar pabba
og spurði: „Hvaða lag ætlið þið að
taka?“ hálftíma áður en athöfn-
in átti að byrja,“ segir Helga Fann-
ey. Kom þá í ljós að láðst hafði að
bæta Tómasi í Facebook-hópspjall
þar sem menn tóku sig saman um
hverjir ættu að spila, hvaða lag og
svo framvegis í athöfninni. Feðgin-
in brunuðu því heim, sóttu gítarinn
og ákváðu á leiðinni að Helga Fann-
ey myndi syngja Make You Feel My
love.
Háteigskirkja var full af fólki að
fylgja Gulla síðustu skrefin, yfir
100 mótorhjól fyrir utan, enginn
prestur var við athöfnina og
athöfnin var rokktónleikar.
„Þetta er skemmtilegasta jarðar-
för sem ég hef farið í og sú fyrsta þar
sem var klappað. Ég vildi að allar
jarðarfarir væru svona,“ segir Helga
Fanney. „Þetta á að vera góð kveðju-
stund, rifja upp góðar minningar og
hlæja, af hverju áttu að gráta, heldur
þú að sá látni myndi vilja það?“
Næst á dagskrá í söngnum er að
fylgja plötunni eftir og eru útgáfu-
tónleikar fyrirhugaðir á árinu.
„Draumurinn er og hefur alltaf
verið að vera söngkona, en ef það
gengur ekki eftir þá langar mig
í lögguna, ég elska löggurann-
sóknarþætti og hefur langað að
vera lögga síðan ég var níu ára,“
segir Helga Fanney, sem þarf þó
líklega ekki að treysta á plan B, því
ljóst er þegar hlýtt er á plötuna að
hún á framann vísan í söngnum. n
„Pabbi öskraði þegar hann
heyrði að ég gæti sungið“
Helga Fanney er 17 ára og gefur út sína aðra plötu með frumsömdu lagi við texta Ruthar Reginalds
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Á góðri stundu Helga Fanney og Gulli Falk á góðri stund árið 2015. Gulli og Tómas,
faðir Helgu Fanneyjar, voru mjög góðir vinir.
Hæfileikarík Helga Fanney
með listaverk eftir föður sinn í
bakgrunni. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Songbird Diskurinn
inniheldur 10 lög, sem öll
eru tekin upp í einni töku:
níu tökulög og eitt frum-
samið, með texta Ruthar
Reginalds og lagi Tómasar,
föður Helgu Fanneyjar.