Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 43
tímavélin 4316. mars 2018 hann 12 ára eftir að hann varð Reykjavíkurmeistari í svokölluðu jakahlaupi á Tjörninni. Jakahlaup var þegar ungir drengir hjuggu til ísjaka og fleyttu á Tjörnina, stukku og hlupu svo milli jaka til að kom- ast yfir. Vitaskuld duttu margir ofan í ískalt vatnið á þeirri vegferð. Guðmundur var afar hraustur, ungur maður, efnilegur í íþrótt- um og stæltur. Hann stundaði nám í Gagnfræðaskólanum á ár- unum 1941 til 1944 og fór svo beint í verkamannavinnu. Í eitt skipti var hann í hópi verkamanna í garðinum hjá Einari Jónssyni myndhöggvara þegar upp kom óhefðbundið atvinnutilboð. Guð- mundur sagði: „Ég var nú átján ára gamall og með annað og betra vaxtarlag. Einar var lengi búinn að vappa þarna um kring og skoða menn. Þetta var að sumri eða haustlagi og við vorum naktir að beltisstað. Allt í einu rölti hann til verkstjór- ans og benti á mig og verkstjórinn kom til mín og sagði að hann vildi fá mig sem módel. Ég hrökk nú við þegar ég var settur á stall og fékk að vita að það var Jésú Kristur sem var fyrirmyndin.“ Verkið var stytta af frelsaranum sem enn þá stend- ur í Hallgrímskirkju. Reis í Dagsbrún en flæmdur úr Alþýðubandalaginu Guðmundur spratt ekki upp úr engu vorið 1955. Þá hafði hann starfað í Dagsbrún í tvö ár, verið forseti Æskulýðsfylkingarinnar og í miðstjórn Sósíalistaflokksins. Síðar gekk hann í Alþýðubanda- lagið og sat sem borgarfulltrúi og svo sem varaforseti Dagsbrúnar í tuttugu ár uns hann tók við for- mennskunni árið 1982. Einnig sat hann á Alþingi fyrir Alýðubanda- lagið á árunum 1979 til 1987. Þegar komið var fram á níunda áratuginn var hann óskoraður for- ingi íslensks verkafólks, holdgerv- ingur baráttunnar og sumir segja síðasti foringinn af gamla skólan- um. Jón Baldvin segir: „Hann var fyrirferðarmikill og aðsópsmikill og verkalýðshreyfingin varð svo öflug að aðrir urðu að taka tillit til hennar. Það er ekki þar með sagt að hún hafi náð miklum árangri í kjarabaráttu því þetta var verð- bólguþjóðfélag og gengið var sí- fellt fellt til að lækka launin aftur.“ Þegar ríkisstjórn Geirs Hall- grímssonar, 1974 til 1978, greip inn í kjarasamninga stóð verka- lýðshreyfingin með Alþýðubanda- laginu og Alþýðuflokknum sem unnu mikinn kosningasigur árið 1978. Það var á þeim tíma sem Guðmundur fór inn á þing en þar fann hann sig ekki. Ólafur segir: „Þar lenti hann í átökum og það var unnið gegn honum innan flokksins. Undir lokin var hann hálfpartinn flæmd- ur í burtu. Guðmundur og Albert Guðmundsson voru miklir vin- ir, þótt þeir væru hvor í sínum flokknum. Svo kom upp mál þar sem kom í ljós að Albert hafði gef- ið Guðmundi pening til að hann kæmist á spítala í Bandaríkjunum. Þetta þótti ýmsum í Alþýðubanda- laginu ekki nógu fínt.“ Að sögn bæði Jóns Baldvins og Ólafs efnaðist Guðmundur aldrei á störfum sínum í forystu Dags- brúnar eða á þingi. „Undir lok- in var hann orðinn staurblankur,“ segir Jón. Varð mýkri með árunum Þó að Guðmundur hafi komið fram á sjónarsviðið á miklum átakatímum í verkalýðshreyf- ingunni og gengið þar harðast fram sjálfur í verkföllum þá lagði hann einnig grunninn að mesta rólyndistímabili í atvinnulífssögu 20. aldar. Hann var einn af þeim sem lögðu grunninn að svokall- aðri þjóðarsátt árið 1990 þar sem ekki var samið um launahækkan- ir sem slíkar heldur myndað kerfi til að halda utan um kaupmáttinn. Jón Baldvin segir: „Mín skoðun er sú að hann hafi verið orðinn ágætis sósíaldemókrati undir lok- in. Við töluðum nú um það hvort hann vildi ekki ganga í Alþýðu- flokkinn til að ljúka þessum hring en hann lét nú aldrei verða af því. En hann var góður vinur okkar kratanna.“ Ólafur tekur undir það. „Eins og oft var með þessa eldri menn í verkalýðshreyfingunni þá líkaði honum áreiðanlega ekki auk- in áhrif menntamanna og nýrrar vinstrikynslóðar í Alþýðubanda- laginu. Hann var menningarlega íhaldssamur að þessu leyti.“ Bragur verkalýðsforystunnar breyst með aukinni menntun Alla tíð var Guðmundur jaki mjög vinsæll maður, kom vel fram í við- tölum og þótti bæði alþýðlegur og hnyttinn. Segja mætti að hugtak- ið landsföðurlegur ætti vel við um hann. Ólafur segir: „Hann var ekki síst vinsæll hjá andstæðingum sínum. Því hann þótti heill og góður karl. Hann gat verið mjög fyndinn og af- skaplega vel máli farinn. Hann var góður sögumaður, hlýr og elsku- legur persónuleiki sem skipti auð- vitað máli þegar kom að persónu- legum samskiptum.“ Hvað þætti honum um verka- lýðsforystuna á síðari tímum? „Hann myndi ábyggilega sakna þess að í verkalýðsforystunni væru verkamenn. Þegar hann var að hefja sín störf var forystan skip- uð körlum sem áttu bakgrunn í hreyfingunni og voru ekki lang- skólagengnir en oft mjög greindir. Með aukinni skólagöngu þjóðar- innar hefur bragur verkalýðsfor- ystunnar breyst.“ Guðmundur lést sjötugur að aldri árið 1997. Hann lét eftir sig eiginkonu, Elínu Torfadóttur fóstru, og fjögur uppkomin börn. n Náttúrulegar hágæða gæludýravörur Thomsenbíllinn var gallagripur Sumarið 1904 kom fyrsti bíllinn til Íslands, kallaður Thomsenbíll- inn eftir danska kaupmanninum Ditlev Thomsen. Fékk hann styrk frá Alþingi upp á 2.000 krónur til að kaupa bílinn í Kaupmanna- höfn. Bíllinn var af gerðinni Cudell, notaður fjögurra sæta blæjubíll og þótti hinn mesti gallagripur. Hann var kraftlaus og dugði illa í íslenskri veðráttu og vegaleysi. Thomsen réð Þorkel Clementz til að vera bílstjóri og sótti hann námskeið í Danmörku en ári eftir að bíllinn kom til landsins var hætt að nota bílinn. Árið 1908 var bíllinn síðan send- ur aftur út en öld seinna, árið 2008 smíðaði Sverrir Andrés son á Selfossi endurgerð hans. Ærðust yfir kyntröllum Í marsmánuði árið 1994 kom hingað til lands bandarískur karlfatafelluflokkur sem nefndist American Male. Flokkurinn var skipaður fjórum körlum sem vaxnir voru líkt og grískir guð- ir og fækkuðu fötum uns þeir stóðu á pínubrókum einum saman. Ferðast var með sýn- inguna víða um land, svo sem í Sjallann á Akureyri, Kántrýbæ á Skagaströnd og út í Vestmanna- eyjar. Mesta athygli vöktu þó kvöldin sem haldin voru á Hótel Íslandi. Það var Kvennaklúbbur- inn sem sá um sýningarnar þar og var karlmönnum óheimill aðgangur. Mikill æsingur mynd- aðist í salnum og sumar konur hreinlega réðu ekki við sig og reyndu að snerta kyntröllin og lauma peningum í skýlurnar. Bein Ólafs í Miðhúsum fundust 30 árum eftir hvarfið Rafn ásamt beinum Ólafs Faxi 1. mars 2003. Verkfallið 1955: „Menn lögðu ekkert svo glatt í hann“ Þjóðviljinn, 22. janúar 1955.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.