Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Blaðsíða 34
Helgarblað 16. mars 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir
Hús og Mál: Gæðaþjónusta í
viðhaldi, viðgerðum og frágangi
Ég kom til Íslands árið 2000 með 50 dollara og eina samloku í vasanum. Ég þekkti ekki nokkurn
mann hérna, kunni bara 25 orð í
ensku og vissi ekki hvort ég ætti að
fara til hægri eða vinstri til að komast
út úr flugvélinni,“ segir Litháinn Darius
Kochanas, en mikið vatn hefur runnið
til sjávar síðan hann kom allslaus
til landsins. Í dag rekur afar Darius
blómlegt bygginga- og viðhaldsþjón-
ustufyrirtæki, Hús og Mál, sem sinnir
jöfnum höndum húsaviðgerðum,
nýbyggingum, gluggaviðgerðum og
parketlagningu.
Það síðastnefnda, parketlagning,
er einmitt sérsvið Dariusar, en fljót-
lega eftir komuna til Íslands hóf hann
störf við það hjá Parketverki sf. Árið
2004 og stofnaði hann síðan Hús
og Mál en í dag starfa að jafnaði um
sjö manns hjá fyrirtækinu og veita
bæði einstaklingum og fyrirtækjum
fjölbreytta, trausta og fagmannlega
þjónustu.
„Fagmenn okkar geta endurnýjað
húsið, heimilið, skrifstofuna, vinnu-
staðinn eða sumarbústaðinn og nota
við vinnu sína aðeins bestu fáanleg
efni. Hús og Mál framkvæmir alla
byggingarvinnu í samvinnu við reynsl-
umikla iðnaðarmenn. Við bjóðum
upp á þjónustu á mörgum sviðum,
til dæmis alla málningarvinnu, inni
og úti, endurnýjun og einangrun,
flísalögn, hurðaísetningu, lagningu
timburgólfa og parkets, gólfdúka og
klæðninga. Við smíðum létta veggi,
sjáum um veggfóðrun og sinnum ým-
iss konar frágangi,“ segir Daríus.
Hús og Mál leggur mikið upp úr
faglegri ráðgjöf og leitast ávallt við
að benda viðskiptavinum á bestu
lausnirnar, þeim að kostnaðarlausu.
Senn rennur upp sá árstími að
margir fara að sinna viðhaldi hús-
eigna sinna. Viðhaldsþjónusta hjá
Hús og Mál er í höndum reynslu-
mikilla byggingasérfræðinga. Sér-
fræðingarnir hjá Hús og Mál hafa
gert upp, endurnýjað og málað hinar
ýmsu byggingar bæði erlendis og
hérlendis og má þar nefna kvik-
myndahús, háskóla, söfn og kirkjur –
fyrir utan fjölbýlishús og einbýlishús.
Hús og Mál sinnir jafnt litlum sem
stórum verkefnum. Til að fá nánari
upplýsingar eða panta verk skaltu
hringja í síma 778-7688. Nánari upp-
lýsingar er einnig að finna á vefsíð-
unni husogmál.is.
Við spyrjum Darius að því í lokin
hvort hann sé ekki glaður þegar hann
lítur yfir farinn veg, frá því hann kom
allslaus til Íslands árið 2000 og til
dagsins í dag þegar hann rekur blóm-
legt bygginga- og viðhaldsfyrirtæki,
og hann svarar: „Já, ég elska Ísland
og Ísland er orðið föðurland mitt
miklu frekar en Litháen.“
Skelin ehf., Höfðabakka 9 í Reykjavík, annast framleiðslu og sölu á
svalalokunarkerfum, sólstof-
um og garðskálum, gluggum,
hurðum og fleiru frá þýska
fyrirtækinu Solarlux. Sol-
arlux er leiðandi fyrirtæki á
þessu sviði og einn sterkasti
framleiðandi í glerlokunum
og glerskálum, jafnt til notk-
unar utandyra sem innan-
dyra. Lausnir frá Solarlux
eru meðal annars algengar
fyrir svalir á fjölbýlishúsum,
einkaheimilum, hjá verslunum, sund-
stöðum, veitingastöðum og víðar.
Svalalokunarkerfi fást bæði með
og án pósta og hið sama gildir um
sólstofur og garðskála. Allar pósta-
lausar svalalokanir eru úr hertu gleri
og rafhúðuðum álprófíl. Þök eru enn
fremur úr álprófíl og aldrei notast við
plastefni.
Skelin framleiðir enn fremur
margar gerðir af handriðum, lokanir
á svalaganga og annað þvíumlíkt. Er
allur frágangur sérlega vandaður og
snyrtilegur enda hefur Solarlux bæði
gæði og hönnun í fyrirrúmi. Lokanirn-
ar geta verið í hvaða lit sem er.
Skelin hefur hannað öflugt hand-
riðskerfi fyrir íslenskar aðstæður
sem hentar mjög vel á fjölbýlishús og
svalalokun.
Íslendingar þekkja Solarlux
Solarlux svalalokanir hafa verið á
íslenskum markaði um árabil og
reynslan sýnir að kerfin þola vel
íslensku veðráttuna enda geta þau
verið fyrir glerþykktir frá 6 upp í 15
millimetra, sem er öflugra en nokkur
önnur svalalokunarkerfi á markaðnum.
Meðal helstu kosta svalalokana
eru að þær eru auðveldar í notkun,
hljóðeinangrun er allt að 17 db, þær
verja svalir og tréverk inn af þeim
gegn veðrum og minnka viðhald hús-
næðis. Það er auðvelt að þrífa þær
að utan sem innan og þær halda ryki
og óhreinindum frá svölunum. Svala-
lokanir hafa auk þess þau þægindi í
för með sér að garðhúsgögn, grill og
aðrir hlutir geta verið á sama stað allt
árið um kring.
Skelin ehf. hefur verið starfandi í
rúman áratug og reksturinn geng-
ið mjög vel, sífellt stækkar hópur
ánægðra viðskiptavina.
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðu Skeljarinnar ehf., skelinehf.is.
Skelin er til húsa að Höfðabakka 9,
Reykjavík, og snýr að Vesturlandsvegi.
Síminn er 578-6300 og netfangið
skelinehf@skelinehf.is.
Framúrskarandi
svalalokunarkerfi,
garðskálar, hurðir og
gluggar frá Solarlux