Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Síða 34
Helgarblað 16. mars 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir Hús og Mál: Gæðaþjónusta í viðhaldi, viðgerðum og frágangi Ég kom til Íslands árið 2000 með 50 dollara og eina samloku í vasanum. Ég þekkti ekki nokkurn mann hérna, kunni bara 25 orð í ensku og vissi ekki hvort ég ætti að fara til hægri eða vinstri til að komast út úr flugvélinni,“ segir Litháinn Darius Kochanas, en mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan hann kom allslaus til landsins. Í dag rekur afar Darius blómlegt bygginga- og viðhaldsþjón- ustufyrirtæki, Hús og Mál, sem sinnir jöfnum höndum húsaviðgerðum, nýbyggingum, gluggaviðgerðum og parketlagningu. Það síðastnefnda, parketlagning, er einmitt sérsvið Dariusar, en fljót- lega eftir komuna til Íslands hóf hann störf við það hjá Parketverki sf. Árið 2004 og stofnaði hann síðan Hús og Mál en í dag starfa að jafnaði um sjö manns hjá fyrirtækinu og veita bæði einstaklingum og fyrirtækjum fjölbreytta, trausta og fagmannlega þjónustu. „Fagmenn okkar geta endurnýjað húsið, heimilið, skrifstofuna, vinnu- staðinn eða sumarbústaðinn og nota við vinnu sína aðeins bestu fáanleg efni. Hús og Mál framkvæmir alla byggingarvinnu í samvinnu við reynsl- umikla iðnaðarmenn. Við bjóðum upp á þjónustu á mörgum sviðum, til dæmis alla málningarvinnu, inni og úti, endurnýjun og einangrun, flísalögn, hurðaísetningu, lagningu timburgólfa og parkets, gólfdúka og klæðninga. Við smíðum létta veggi, sjáum um veggfóðrun og sinnum ým- iss konar frágangi,“ segir Daríus. Hús og Mál leggur mikið upp úr faglegri ráðgjöf og leitast ávallt við að benda viðskiptavinum á bestu lausnirnar, þeim að kostnaðarlausu. Senn rennur upp sá árstími að margir fara að sinna viðhaldi hús- eigna sinna. Viðhaldsþjónusta hjá Hús og Mál er í höndum reynslu- mikilla byggingasérfræðinga. Sér- fræðingarnir hjá Hús og Mál hafa gert upp, endurnýjað og málað hinar ýmsu byggingar bæði erlendis og hérlendis og má þar nefna kvik- myndahús, háskóla, söfn og kirkjur – fyrir utan fjölbýlishús og einbýlishús. Hús og Mál sinnir jafnt litlum sem stórum verkefnum. Til að fá nánari upplýsingar eða panta verk skaltu hringja í síma 778-7688. Nánari upp- lýsingar er einnig að finna á vefsíð- unni husogmál.is. Við spyrjum Darius að því í lokin hvort hann sé ekki glaður þegar hann lítur yfir farinn veg, frá því hann kom allslaus til Íslands árið 2000 og til dagsins í dag þegar hann rekur blóm- legt bygginga- og viðhaldsfyrirtæki, og hann svarar: „Já, ég elska Ísland og Ísland er orðið föðurland mitt miklu frekar en Litháen.“ Skelin ehf., Höfðabakka 9 í Reykjavík, annast framleiðslu og sölu á svalalokunarkerfum, sólstof- um og garðskálum, gluggum, hurðum og fleiru frá þýska fyrirtækinu Solarlux. Sol- arlux er leiðandi fyrirtæki á þessu sviði og einn sterkasti framleiðandi í glerlokunum og glerskálum, jafnt til notk- unar utandyra sem innan- dyra. Lausnir frá Solarlux eru meðal annars algengar fyrir svalir á fjölbýlishúsum, einkaheimilum, hjá verslunum, sund- stöðum, veitingastöðum og víðar. Svalalokunarkerfi fást bæði með og án pósta og hið sama gildir um sólstofur og garðskála. Allar pósta- lausar svalalokanir eru úr hertu gleri og rafhúðuðum álprófíl. Þök eru enn fremur úr álprófíl og aldrei notast við plastefni. Skelin framleiðir enn fremur margar gerðir af handriðum, lokanir á svalaganga og annað þvíumlíkt. Er allur frágangur sérlega vandaður og snyrtilegur enda hefur Solarlux bæði gæði og hönnun í fyrirrúmi. Lokanirn- ar geta verið í hvaða lit sem er. Skelin hefur hannað öflugt hand- riðskerfi fyrir íslenskar aðstæður sem hentar mjög vel á fjölbýlishús og svalalokun. Íslendingar þekkja Solarlux Solarlux svalalokanir hafa verið á íslenskum markaði um árabil og reynslan sýnir að kerfin þola vel íslensku veðráttuna enda geta þau verið fyrir glerþykktir frá 6 upp í 15 millimetra, sem er öflugra en nokkur önnur svalalokunarkerfi á markaðnum. Meðal helstu kosta svalalokana eru að þær eru auðveldar í notkun, hljóðeinangrun er allt að 17 db, þær verja svalir og tréverk inn af þeim gegn veðrum og minnka viðhald hús- næðis. Það er auðvelt að þrífa þær að utan sem innan og þær halda ryki og óhreinindum frá svölunum. Svala- lokanir hafa auk þess þau þægindi í för með sér að garðhúsgögn, grill og aðrir hlutir geta verið á sama stað allt árið um kring. Skelin ehf. hefur verið starfandi í rúman áratug og reksturinn geng- ið mjög vel, sífellt stækkar hópur ánægðra viðskiptavina. Nánari upplýsingar eru á heima- síðu Skeljarinnar ehf., skelinehf.is. Skelin er til húsa að Höfðabakka 9, Reykjavík, og snýr að Vesturlandsvegi. Síminn er 578-6300 og netfangið skelinehf@skelinehf.is. Framúrskarandi svalalokunarkerfi, garðskálar, hurðir og gluggar frá Solarlux

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.