Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Side 18
18 16. mars 2018fréttir
Hér búa stjórnendur lífeyrissjóðanna
DV heldur áfram útekt sinni á því hvernig fulltrúar
hinna ýmsu stétta hafa komið sér fyrir á fasteigna-
markaði. Áður hafa verið teknir fyrir forstjórar skráðra
fyrirtækja, bankastjórar, stjórnmálamenn og fulltrúa
launþega svo eitthvað sé nefnt. Nú er röðin komin að
framkvæmdastjórum stærstu lífeyrissjóða landsins.
ritstjorn@dv.is
Háteigsvegur 18 Hér býr Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyris
sjóðs, ásamt eiginkonu sinni, Mörtu Hlín Magnadóttur. Hjónin keyptu fasteignina í apríl
2007 og var kaupverðið 39,7 milljónir króna. Um er að ræða 208,6 fermetra íbúð. Ólafur
Sigurðsson var ráðinn framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs í október 2016 við sameiningu
Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs. Ólafur hafði áður verið framkvæmdastjóri
Stafa frá árinu 2006.
Holtsbúð 89 Í þessu húsi býr Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, ásamt eiginkonu sinni Hafdísi Böðvarsdóttur. Hjónin keyptu fasteignina þann 19. apríl 2016 en kaupverðið var 83 milljónir króna.
Arnaldur var ráðinn framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins í byrjun árs 2004 en þá hafði hann verið framkvæmdastjóri Séreignalífeyrissjóðsins í þrjú ár.
Frostaþing 10 Hér býr Guðmundur Þ. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, ásamt eiginkonu sinni
Guðrúnu Hannesdóttur. Hjónin eru frumbyggjar á lóðinni en húsið varð fokhelt þann 25. ágúst 2008. Skráð stærð hússins er 332,8 fermetrar.
Guðmundur var ráðinn framkvæmdastjóri sjóðsins um mitt ár 2009 en áður hafði hann stýrt eignastýringu hans.
Geitastekkur 4 Hér býr Gylfi Jónasson,
framkvæmdastjóri Festu lífeyrissjóðs, ásamt
eigin konu sinni, Ásdísi Kristmundsdóttur. Fasteign
ina keyptu þau í febrúar 2005 og var kaupverðið 38
milljónir króna. Húsið er 204,8 fermetrar að stærð.
Gylfi var ráðinn framkvæmdastjóri Festu þegar
sjóðurinn varð til árið 2006 við sameiningu Lífeyris
sjóðs Suðurlands og Lífeyrissjóðs Vesturlands.
Þá hafði hann starfað sem framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs Vesturlands frá árinu 2000 og síðar
Lífeyrissjóðs Suðurlands fram að sameiningunni.