Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 35
Helgarblað 16. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ Viðhald og framkvæmdir FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 teppaflísar Sterkar og einfaldar í lögn O ttó A ug lýsin g astofa Loftstokkahreinsun K2 ehf. sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa og hefur yfir áratuga reynslu af hreinsun loftræstikerfa á Íslandi. Magnús Ásmundsson, verkefnastjóri K2, segir fyrirtækið sinna einstaklingum sem og fyrirtækjum og það sé nóg að gera enda gríðarlega mikilvægt að hreinsa loftræstikerfi reglulega áður en þau skaða heilsu fólks. Stundum er ekki þörf á hreinsun – þetta getið þið gert sjálf Það kemur stundum fyrir að starfs­ maður K2 mætir til að skoða loft­ ræstingu, til dæmis í baðherbergi í fjölbýlishúsi, og þá kemur í ljós að ekki er þörf á hreinsun. Stundum þarf bara að skrúfa túðuna úr og þrífa. En þetta geta allir gert sjálfir. Þessi aðgerð er framkvæmd í þremur skrefum: 1. Þú byrjar á því að skrúfa miðjuna úr 2. Síðan snýrðu túðunni til að losa hana frá 3. Loks skolar þú túðuna og skrúfar hana síðan aftur Þegar þörf er á hreinsun – hvernig fer hún fram? „Loftræsting í fjölbýlishúsum er í flest­ um tilfellum á gluggalausum baðher­ bergjum og geymslum. Það er mjög mikilvægt að loftræstingin nái að losa raka og hita sem safnast upp því þegar loftstokkar eru skítugir og ná ekki að loftræsta rýmið þá er hætta á að raki þéttist í herberginu sem býður svo upp á skemmdir og jafnvel myglu. Hreinsun fer þannig fram að starfsmenn K2 mæta og fara annað­ hvort upp á þak eða á lagnaloft sé það til staðar, þaðan eru loft­ ræstistokkar hreinsaðir frá þaki niður í hverja íbúð fyrir sig og í sumum til­ fellum sótthreinsaðir. Einnig er blásari hreinsaður sé hann til staðar. Að því loknu þarf að fara inn í allar íbúðir í húsinu sem tengjast loftræstingunni og þar er lofttúðan tekin úr og þrifin, og restin af loftstokk hreinsuð. Það er lítið ónæði fyrir íbúa hússins við svona hreinsun og yfirleitt tekur ekki meira en 10–15 mínútur að klára hverja íbúð eftir að búið er að hreinsa lagnir og blásara frá þaki. Æskilegt er að hreinsa útsogskerfi frá baðherbergjum á 3–5 ára fresti.“ Magnús bætir við að K2 bjóði upp á ástandsskoðun loftræstikerfa og mat á því hvort tími sé kominn á hreinsun; ekkert er rukkað fyrir þá þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Þjónustusíminn hjá Loftstokkahreinsun K2 ehf. er 775-7770 eða 557-7000. Heimasíðan er: www.k2.is Hreinsun loftræstikerfa er nauðsynleg heilsunnar vegna K2: Mjúkur barki fyrir Mjúkur barki eftir Rör fyrir Rör eftir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.