Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 4
6 6. apríl 2018fréttir
Hálfvitarnir sem kunna ekki að eiga pening
Lélegt fjármálalæsi er ástæðan
fyrir því að fólk lendir í fjárhags-
legum erfiðleikum segir fjármála-
ráðuneytið í greinargerðinni sem
fylgir fjögurra ára áætlun ríkis-
stjórnarinnar. Það er langt síðan
Bjarni Benediktsson hefur náð að
hitta naglann jafn vel á höfuðið.
Hverjir eru það sem kvarta und-
an launum og bótum? Jú, það eru
hálfvitarnir sem kunna ekki að
eiga pening! Þannig blasir það að
minnsta kosti við Svarthöfða.
Lélegt fjármálalæsi vill oft loða
við börn ekki-fjárfesta. Þetta þekk-
ir Bjarni vel á eigin skinni enda
kann pabbi hans, Benedikt Sveins-
son fjárfestir, öll helstu trixin í bis-
ness. Það er þjóðráð að sameina
þetta við eina áherslu Sjálfstæðis-
manna, að nýta eldri borgara sem
leikskólakennara, með því að fá
Benedikt til að kenna fjárhagsleg-
um ómögum „the art of the deal“.
Við skulum bara vona, ef það verð-
ur raunin, að hann haldi vinum
sínum víðs fjarri.
Látum það liggja á milli hluta
að enginn í ríkisstjórninni eða
ráðuneytunum kann að lifa á
vesalingalaunum, því flestir sem eru
á vesalingalaunum völdu það sjálfir.
Íslenskt samfélag er ekki stórt, það
vita allir hvernig á að verða ríkur.
Það er eitthvað mein í heilabúi þess
sem sleppir því að ganga í stjórn-
málaflokk og fara í lögfræði, fer þess
í stað í kennara- eða hjúkrunarnám,
og ætlast svo til þess að geta eignast
húsnæði og bíl. Það mun að sjálf-
sögðu ekkert breytast, sjáðu bara
kommúnistann sem var gerður að
forsætisráðherra.
„Ef við rifjum upp staðreynd-
irnar þá er það svo að, að undan-
skildum dýralæknum, engin há-
skólastétt uppfyllir jafn miklar
menntunarkröfur og ljósmæður
til að geta starfað við fag sitt, sex
ára háskólanám … Til að fá nám-
ið metið að verðleikum í samræmi
við aðrar stéttir með sambærilega
menntun hjá ríkinu þurfa meðal-
grunnlaun ljósmæðra að hækka
um 24–25% og það er einung-
is leiðrétting á því misrétti sem
ljósmæður hafa þurft að búa við í
fjölda ára, misrétti sem aðrar fag-
stéttir hafa viðurkennt,“ sagði nú-
verandi forsætisráðherra fyrir 10
árum og uppskar mikið lófaklapp
frá ljósmæðrum á þingpöllum. Án
gríns. Svarthöfði grínast ekki með
svona, það er í alvörunni til upp-
taka af þessu.
Það er of seint fyrir þessa sem
eru þegar komnir á ellilífeyri, en
allir aðrir geta bjargað sér. Skráið
ykkur í Sjálfstæðisflokkinn, Fram-
sókn, Samfylkinguna, Vinstri græn
eða Viðreisn, í versta falli kemstu
að í einhverju sveitarfélagi. Og
skráið ykkur síðan í lögfræði, eða
hagfræði, eða viðskiptafræði.
Annars verður þú bara hálfviti sem
kannt ekki að eiga pening og átt
ekki að eiga pening. n
S
endill var rekinn frá pít-
sastaðnum Domino's eft-
ir að hafa starfað á stað
í Spönginni í tvær vikur.
Ástæða brottrekstrarins var sú
að hann olli tjóni á bílaleigubíl
sem staðurinn var með á leigu á
háannatíma á föstudagskvöldi.
Sendillinn er ekki með bílpróf og
kann að eigin sögn ekki að keyra
beinskiptan bíl.
Sendillinn fyrrverandi, sem
vildi ekki láta nafns síns getið, seg-
ir farir sínar ekki sléttar af sam-
skiptum við pítsurisann. Eftir að
hann lét af störfum þá segist hann
hafa verið boðaður á fund með
stjórnendum Domino's sem hafi
rukkað hann um tjónið á bílnum,
tjón sem nemur allt að hálfri millj-
ón króna. Hann er ekki sáttur við
það. „Það var ekki ég sem bað um
vinnu sem sendill, ég sótti bara
um og átti von á að fara að vinna
við að baka. Ég var aldrei spurð-
ur um ökuskírteini eða hvort ég
kynni að keyra. Ég fór inn á kló-
sett til að læra hvernig á að keyra
beinskiptan bíl, svo fékk ég líka
hjálp frá hinum sendlunum,“ seg-
ir sendillinn fyrrverandi í samtali
við DV.
„Eftir að ég var rekinn þá hitti
ég mannauðsstjórann sem sagði
að ég ætti að borga allt tjónið. Ég
var boðaður á annan fund sem ég
mætti ekki á, þá fékk ég skilaboð
sem minntu á eitthvað frá hand-
rukkara. Sagt að ég hefði svikið þá
um fund og ég þyrfti að borga 400
til 500 þúsund. Hvernig á ég að
borga ef ég er ekki með vinnu?“
Hann segir að hann hafi ver-
ið ráðinn af vaktstjóra staðarins
í Spönginni en ekki stjórnend-
um fyrirtækisins. Hann segir jafn-
framt að hann viti um aðra sendla
hjá fyrirtækinu sem séu ekki með
bílpróf og í þokkabót sé algengt að
sendlar séu undir áhrifum kanna-
bisefna undir stýri.
Snorri Jónsson, mannauðs-
stjóri Domino's, sagðist ekki
kannast við málið þegar DV leit-
aði eftir viðbrögðum. Aðspurður
hvort sendlar bæru ábyrgð ef þeir
yllu tjóni á bílum fyrirtækisins
þegar þeir væru að keyra út píts-
ur sagði starfsmannastjórinn: „No
comment á það“. DV hefur hins
vegar undir höndum samskipti
Snorra við sendilinn fyrrverandi.
Í tölvupósti með yfirskriftinni
Bílatjón sem sendur var á sendil-
inn fyrrverandi fyrr sama dag
sagði Snorri að það væri ekki ann-
að í stöðunni en að senda tjónið í
löginnheimtu. „Þar með er það úr
okkar höndum. Þú vonandi átt-
ar þig á því hvað gerist í því ferli ef
greiðslur falla niður,“ segir í póst-
inum frá Snorra. n
BuBBi
falinn
„Vantrú er öfgatrú. Kristin
trú er seld á svarta markaði
í himnaríki,“ sagði Bubbi
Morthens, af sinni alkunnu
visku, á Twitter-síðu sinni í
kjölfar páskahátíðarinnar.
Eins og áður var andlit
Bubba falið á síðum
páskablaðs DV og er
lesendum þakkað kærlega
fyrir góða þátttöku. Í þetta
skiptið var Bubbi falinn í
sólblómi á blaðsíðu 71.
Sá lesandi sem hreppti
hnossið að þessu sinni
var Gunnvör Björnsdóttir
og hlýtur hún gjafabréf á
veitingastað að launum.
Ásjóna Bubba er síðan
að sjálfsögðu falin í þessu
tölublaði. Lesendur sem
hafa uppi á goðinu geta sent
lausnir í netfangið bubbi@
dv.is. Einn heppinn lesandi
fær óvænt og skemmtileg
verðlaun frá DV.
Finndu
Bubba í
blaðinu
„Hvernig á ég að borga
ef ég er ekki með vinnu?“
Teikning DV af sendlinum inni á klósetti að æfa sig að keyra beinskiptan bíl.
Tölvupósturinn sem Snorri sendi á sendilinn
fyrrverandi.
Bílprófslaus sendill frá Domino's rekinn eftir árekstur:
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Te
ik
n
in
g
: g
u
ð
fi
n
n
A
B
er
g
Svarthöfði
Lof & Last
– kara kristel, kynlífsbloggari og
þúsundþjalasmiður:
Lof vikunnar fær Selena Gomes,
fyrir það að brjóta hjartað í Abel,
úr hljómsveitinni The Weeknd.
Flestir aðdáendur eru sammála
um að við getum þakkað henni
fyrir hversu æðisleg platan My
Dear Melancholy, sem sveitin gaf
út í vikunni, er. Um tíma var sveitin
orðin smá slök en þessi plata er
hreint út sagt meistaraverk
sem minnir mjög á fyrstu
tónlistina sem Weeknd
gaf út, sem er jú klassík.
Bestu plöturnar fæðast oft
í ástarsorg. Takk Selena, og takk
Abel fyrir plötuna.
Last vikunnar fá stjórnvöld. Ég á
kannski ekkert erindi í að tjá
mig um stjórnmál enda
veit ég lítið um þau. Eitt
veit ég þó og það er að
ljósmæður sinna ótrúlega
mikilvægu og fallegu starfi
og er vinna þeirra eflaust ekki
metin rétt til fjár. Án ljósmæðra
væru flestar fæðingar mun hættu-
legri. Ég þekki það sjálf. Á minni
meðgöngu voru nokkrar ljósmæð-
ur algjörlega með mig í fanginu.
Þetta voru persónuleg samskipti
og ég verð þeim ævinlega þakklát.
Kommon, hvernig væri að koma
til móts við þær? Ef það er til nóg
fé fyrir öllum þessum bílum og
bónusum þá er alveg til peningur
fyrir manneskjurnar sem passa að
við komum örugg í heiminn.