Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 12
14 fólk - viðtal 6. apríl 2018
Enginn fer óvopnaður út fyrir bæjarmörkin
I
ttoqqortoormiit er einn af-
skekktasti bær á norðurhveli
jarðar. Íbúar í þessum ísbjarn-
ar- og skákbæ eru aðeins um
450. Þar kunna flestir að veiða sér
til matar, enda oft erfitt að fylla hill-
ur einu verslunarinnar í þorpinu.
Það er því nauðsynlegt að kunna
að fara með vopn, ef ekki til að
veiða sér til matar, þá til að fella ís-
birni en það hefur aukist að soltnir
birnir leiti fæðu í námunda við eða
í bænum. Tugir bjarna hafa herjað
á íbúa síðustu vikur og mánuði. Ís-
inn við Austur-Grænland er ekki
svipur hjá sjón, vegna mikillar
hlýnunar á norðurslóðum, og þar
með snarminnka veiðilendur ís-
bjarna.
Ittoqqortoormiit er vegalaus
bær ef svo má að orði komast en
þangað er aðeins fært með þyrlum,
snjósleða eða upp á gamla mát-
ann, með hundasleða. Það eru um
þúsund kílómetrar í næsta byggða
ból og bærinn er sá afskekktasti
á Grænlandi. Sólin kveður íbúa í
nóvember og heilsar þorpsbúum
ekki á ný fyrr en í janúar. Síðustu
daga hafa liðsmenn Hróksins
dvalið í þorpinu en yfir páska var
árleg hátíð skákfélagsins haldin en
Hrókurinn hefur heimsótt þorp-
ið síðustu tólf ár. Máni Hrafnsson
og kona hans Joey Chan ásamt
Róberti Lagerman buðu þorpsbú-
um upp á veislu þennan veturinn.
Máni sem er lærður kvikmynda-
gerðarmaður mundaði myndavél-
ina þegar færi gafst.
„Það er stórkostleg upplifun
að koma til Itto. Fólkið er einstak-
lega hlýlegt og vinalegt,“ segir
Máni. „Hér er alltaf tekið vel á
móti manni. Ferðin er öðruvísi í
ár að því leyti að ísbirnir hafa herj-
að á bæinn. Við höfum verið hér í
um viku og á þeim tíma hafa tve-
ir ísbirnir verið felldir, einn rétt við
bæinn og hinn inni í bænum.“
Kjötinu var dreift á milli þorps-
búa. Í öðru hverju húsi var því ís-
björn hátíðarmatur yfir páskana.
Er þá hættulegt að vera á ferli?
„Það eru strangar útivistar-
reglur í gildi núna,“ svarar Máni.
„Engin fer óvopnaður út fyrir
bæjar mörkin, og börn halda sig
heima fyrir á kvöldin. Þorpsbúar
eru samt ekki mikið að stressa sig
yfir þessu, enda harðgert og stóískt
að mestu leyti.“
Ástfangin af þorpinu
Aðspurður hvernig Joey, eigin-
konu hans, hafi litist á hið einangr-
aða þorp segir Máni:
„Joey varð strax ástfangin af
Ittoqqortoormiit, en hún kom
fyrst hingað í fyrra. Hún nær al-
veg einstaklega vel til krakkanna
hérna, en hún hefur yfirumsjón
með myndlistarkeppni sem er
hluti af skákhátíðinni.“
Þyrla átti að flytja Mána til flug-
vallarins í Nerlerit Inaat á þriðju-
daginn og þaðan átti svo að fljúga
til Akureyrar og loks heim. En eft-
ir blíðu síðustu daga kyngdi nið-
ur snjó, svo þyrluflugi var aflýst á
elleftu stundu. Máni hefur því nýtt
tímann til að taka fleiri myndir í
hinu fallega þorpi sem hann deilir
með lesendum DV.
n Slóst við ísbjörn með berum hnefum n Strangar útivistarreglur n Hrókurinn stóð fyrir gleði á Grænlandi
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Veðurtepptur Máni í afskekktasta þorpi
Grænlands. Máni ber saman mannshönd og
ísbjarnarhramm.
Hundalíf í Ittoqqortoormiit.
Grænlenskur sleðahundur
í Ittoqqortoormiit býður
góðan daginn!
Á ísbjarnarveiðum í Ittoqqortoormiit.
Ungi veiðimaðurinn og ísbjörninn. Karl
Napatoq er aðeins 24 ára, en hann hefur
fellt fimm ísbirni það sem af er vetri, en
allir gerðu þeir sig líklega til að heilsa
upp á íbúa Ittoqqortoormiit.