Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 24
26 06. april 2018fréttir
Á
dögunum opnaði nýtt
fimm stjörnu lúxushótel
við Bláa lónið, The Retr-
eat. Hótelið setur hátt við-
mið þegar kemur að lúxusgistingu
fyrir efnaða ferðamenn en þar
kostar nóttin ekki minna en 180
þúsund krónur. Hægt er að gista
í 60 fermetra svítu með aðgangi
að einkaþjónum og sérbaðlóni.
En ferðamenn með þykka buddu
geta einnig valið um fleiri gisti-
staði.
DV gerði lauslega úttekt í
gegnum hótelbókunarsíðuna
booking.com og kannaði verð
á nokkrum af glæsilegustu hót-
elsvítum landsins. Miðað er við
gistingu fyrir par í byrjun júní.
Niðurstöður eru fengnar af leitar-
vélasíðu booking.com, miðviku-
daginn 4. apríl. Miðað er við dag-
setningarnar 1. júní til 2. júní 2018
og að innifalið í verðinu sé frí af-
pöntun innan tímamarka.n
Hérna gista ríku
ferðamennirnir
Á Grand Hótel Reykjavík er hægt að gista í svítu sem er álíka stór og stúdíóíbúð í miðborginni,
eða 40 fermetrar. Gestirnir hafa útsýni yfir miðborgina og geta slappað af í sérnuddpotti
sem fylgir herberginu. Þá fylgir einnig ókeypis aðgangur að líkamsrækt og heilsulind en auk
þess geta gestir fengið sendan ókeypis morgunverð upp á herbergi. Herlegheitin kosta rúm-
lega 72 þúsund krónur á nótt.
Þá er komið að Hótel Grímsborgum á Ásborgum en hótelið er í rúmlega 15
mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Þar er hægt að gista í svokallaðri
Junior svítu sem er 40 fermetrar að stærð. Fram kemur í lýsingu að svítan
sé með útsýni að fjöllum, flatskjá, te- og kaffiaðstöðu og ísskáp. Þá geta
gestir einnig nýtt sér verönd með setusvæði og aðgangi að sameiginlegum
heitum útipotti. Nóttin þar kostar rúmlega 97 þúsund krónur.
Þá er komið að dýrustu gistingunni. Á Diamond Suites í
Keflavík kostar nóttin í svokallaðri Superior Svítu tæpar 158
þúsund krónur. Þar má meðal annars finna Bang Olufsen-
flatskjásjónvarp, iPad og iMac-tölvu og þá er svítan innrétt-
uð með lúxushúsgögnum. Þar er rúmgott setusvæði og
hægt er að láta fara vel um sig í nuddbaðkari eða þá í heitum
potti. Gestirnir geta notið stórglæsilegs útsýnis og hafa þar
að auki aðgang að svokallaðri „executive“ setustofu.
Á 101 Hótel í miðborginni er hægt að gista í svokallaðri Juni-
or Svítu sem er 45 fermetrar að stærð en fram kemur í lýs-
ingu að um sé að ræða „ extra rúmgott hornherbergi með
baðkari og tvískiptu útsýni yfir gamla bæinn og höfnina.“
Þar kostar nóttin 106 þúsund krónur.
Þeir sem geta hugsað sér að eyða 118 þúsund krónum á
nóttina í hótelgistingu geta gist í svokallaðri Deluxe svítu
Icelandair Hotel Reykjavik Marina. Um er að ræða 66 fer-
metra svítu með setusvæði, sófa og baðslopp. Útsýnið er að
sjálfsögðu ekki af verri endanum en út um gluggann er hægt
að virða fyrir sér Reykjavíkurhöfn á meðan flatmagað er í
baðkerinu.
Á ION Hotel við Laugaveg kostar nóttin í svokallaðri Panaromic svítu litlar 121
þúsund krónur. Svítan er svo sannarlega ekkert slor en hún er 75 fermetrar að
stærð og bæði með svalir og setusvæði. Þá kemur fram í lýsingu að svítan sé
með víðáttumiklu sjávarútsýni. Rýmið er hljóðeingrað og gólfið viðar- og park-
etlagt. Gestir svítunnar geta slakað á í einkagufubaði og allt er innifalið, svo
sem baðsloppar og inniskór.