Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Qupperneq 26
28 6. apríl 2018lífsstíll
B
irkir Karl Sigurðsson er ný-
kominn heim frá Sydney,
þekktustu og fjölmennustu
borg Ástralíu. Þar bjó hann
í eitt ár í kjölfar þess að honum
var boðið að taka við þjálfun ung-
mennalandsliðs Ástralíu í skák.
„Ég var búinn að skrá mig í há-
skólanám hér heima en þegar
þetta tækifæri kom upp þá var það
of gott til þess að hafna því,“ segir
Birkir Karl í samtali við DV. Hann
er aðeins 22 ára gamall en hefur
þrátt fyrir ungan aldur ferðast víða.
„Faðir minn, Sigurður Bragi Guð-
mundsson, hefur búið og starfað
í Kína um árabil og ég heimsæki
hann reglulega þangað. Af öllum
þeim stöðum sem ég hef heimsótt
þá stendur Sydney upp úr, þetta er
stórkostleg borg,“ segir Birkir Karl.
Frábærar almennings-
samgöngur
Meðan á dvöl hans stóð bjó Birkir
Karl í úthverfi Sydney sem heitir
Rhodes. Svæðið var áður undir-
lagt af mengandi stóriðju en þegar
uppbygging vegna Ólympíuleik-
anna í Sydney árið 2000 hófst
þá fóru fjárfestar að veita svæð-
inu athygli og uppbygging hófst. Í
dag er um afar eftirsótt svæði að
ræða og Birkir Karl var sannarlega
hrifinn. „Byggingarnar í Rhodes
eru sérstaklega flottar og svæðið
vel skipulagt. Ég bjó í mjög flottu
húsi með öryggisgæslu auk að-
gangs að sundlaug, rækt og spa,“
segir Birkir Karl og bætir við að
allar hugsanlegir verslanir og
þjónusta hafi verið innan seil-
ingar. Starfsstöð hans var líka í ná-
grenninu og því fór vel um hann í
hverfinu.
Fyrir ungan mann í blóma lífs-
ins var fjarlægðin við miðbæinn
þó ákveðið vandamál. „Almenn-
ingssamgöngurnar eru frábærar í
Sydney og því er auðveldlega hægt
að komast hjá því að vera á bíl og
ferðalangar ættu alls ekki að leigja
bílaleigubíl þar fyrr en haldið er út
fyrir Sydney. Gallinn er þó sá að
lestirnar hættu að ganga á mið-
nætti og því voru leigubílarnir ansi
dýrir stundum um helgar,“ seg-
ir Birkir Karl kíminn. Þegar hann
fór út að skemmta sér varð barinn
„Cafe del Mar“ yfirleitt fyrir valinu.
„Hann er vel staðsettur í miðbæn-
um og þar er margt fólk á mínum
aldri. „Happy hour“ staðarins er
geggjaður,“ segir Birkir Karl.
Þá var vinsælt meðal hans og
félaga hans að heimsækja spilavít-
ið í Sydney, The Star. „Það er mikil
upplifun að heimsækja spilavíti
borgarinnar sem er ógnarstórt og
glæsilegt. Það gat þó reynst hættu-
legt fyrir einstaklinga með litla
sjálfstjórn, eins og sjálfan mig, að
skvetta í sig þar,“ segir Birkir Karl
og hlær.
Að hans sögn er Sydney mjög
örugg borg en þó sé gott að hafa
varann á. „Það búa um fimm millj-
ónir manna í borginni og það ger-
ist ýmislegt þarna eins og í öllum
öðrum stórborgum. Ég passaði
mig því vel á því að vera ekki einn
á ferð að næturlagi,“ segir hann.
Allir verða að smakka kengúru
og krókódíl
Þegar Birkir Karl er spurður hvar
hann myndi helst vilja búa í
Sydney þá er svarið einfalt. „Ég
myndi telja að bestu svæðin væru
norðurstrendurnar, annaðhvort í
Mosman eða jafnvel Manly. Þessi
hverfi eru alveg við borgina en
einnig mjög nálægt baðströndun-
um,“ segir Birkir Karl.
Þar sem hann bjó einsamall
úti í Sydney þá kíkti hann nokkuð
reglulega á veitingastaði. „Upp-
áhaldsveitingastaðurinn minn í
Sydney var „Bavarian Bier Cafe“
sem er keðja með veitingastað á
nokkrum stöðum í borginni. And-
rúmsloftið á stöðunum var líflegt
og eins og nafnið gefur til kynna
þá var gott úrval af bjór á þeim.
Maturinn var einnig mjög góður,
ég mæli sérstaklega með „fish &
chips“,“ segir Birkir Karl.
Til hátíðabrigða mælir hann
sérstaklega með staðnum „Meat
and Wine and co“ og „Mr Wong“.
„Báðir þessir staðir eru í miðbæn-
um. Nautakjötið á þeim fyrri er á
einhverju öðru stigi en það sem
ég hef áður smakkað, sérstaklega
ribeye-steikurnar. Sá síðari ein-
blínir á kínverska matargerð og
þar er ég á heimavelli eftir heim-
sóknir mínar til föður míns. Þetta
er alvöru kínverskur matur, gjör-
samlega frábær,“ segir Birkir Karl.
Þá segir hann að það sé nán-
ast óhjákvæmilegt að smakka
kengúru- og krókódílasteikur í
Ástralíuheimsókn. „Það er svo-
lítið eins og hvernig erlendir
ferðamenn eru hvattir til að prófa
lunda og hval hérna á Íslandi. Mér
fannst krókódíllinn ekkert sérstak-
ur en kengúran var alveg frábær.
Veitingastaðurinn „Black Bird
Café“ sem staðsettur er við Darling
Harbour býður upp á hvort tveggja
og gerir það vel,“ segir Birkir Karl.
Hann segir að Sydney sé alls
ekki ódýr borg en verðlagið sé þó
töluvert skárra en á Íslandi. „Bjór
kostar um 700 krónur. Eins og
annars staðar þá er hærra verð
í miðbænum. Það eru þó mörg
skemmtileg hverfi í Sydney og ef
fólk getur hugsað sér að fara út
fyrir miðbæinn þá er hægt að fá
mat og drykk á góðu verði.“
Dýragarðurinn er skyldu-
heimsókn
Aðspurður hvað hann teldi
nauðsynlegt að gera þegar Sydney
er heimsótt þá stendur dýragarð-
urinn upp úr. „Taronga Zoo er
margverðlaunaður dýragarður og
einn sá besti í heimi. Það eru ótrú-
lega margar tegundir af dýrum í
garðinum og ekki skemmir frá-
bært útsýni yfir alla borgina fyr-
ir,“ segir Birkir Karl. Þá segir hann
að svokallað „East Coastal Walk“
sé ofarlega á listanum. „Það er
æðisleg fjögurra kílómetra ganga
á milli hinna ýmsu stranda, meðal
annars á hina heimsfrægu Bondi-
strönd,“ segir hann. Þá sé ferðin
ekki fullkomnuð nema að farið sé
niður á „Circular Quay“ við óperu-
húsið fræga og tekin ferja sem
siglir um svæðið. „ Síðan myndi
ég mæla með því að fólk kíkti á
íþróttaviðburð í Sydney. Ástralar
eru miklir áhugamenn um íþrótt-
ir og það er alltaf eitthvað í gangi,
til dæmis veðreiðar og krikketleik-
ir. Ég skellti mér á leik Ástralíu
og Hondúras þegar heimamenn
tryggðu sér farseðilinn á HM í
Rússlandi. Stemmingin þar var
algjörlega ólýsanleg,“ segir Birkir
Karl.
Hann segir að besti tím-
inn til að heimsækja Sydney
sé yfir sumar mánuðina, það er
að segja frá desember og fram
í febrúar. „Þá er veðrið frábært
og létt yfir allri borginni. Það er
mikið af frábærum matar- og
drykkjarhátíðum í gangi og í raun
og veru eitthvað skemmtilegt að
gerast úti um allt,“ segir Birkir Karl.
Hann segist vel geta hugsað sér að
flytja aftur til Sydney. „Ég vissi lítið
hvað ég var að fara út í þegar ég tók
starfinu þarna og það kom mér á
óvart hvað borgin var frábær. Þetta
er án nokkurs vafa uppáhalds-
borgin mín,“ segir Birkir Karl. n
Sydney
Borgin mín:
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Birkir Karl Sigurðsson bjó og starfaði í Sydney í
heilt ár. Hann er heillaður af borginni.
Taronga Zoo er margverðlaunaður dýragarður.
Útsýnið þaðan yfir Sydney er engu líkt.
Miðbær Sydney er líflegur
og skemmtilegur staður.