Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Síða 30
32 fólk - viðtal 06. april 2018
K
arl Tómasson, betur
þekktur sem Kalli Tomm,
hefur komið víða við
á sinni ævi. Hann rak
veitingastað, átti og ritstýrði
bæjarblaði, trommaði með
rokkhljómsveitinni Gildrunni
og braut blað í stjórnmálasögu
landsins þegar hann sem odd-
viti Vinstri grænna í Mosfells-
bæ hóf meirihlutasamstarf með
Sjálfstæðisflokknum. Um tíma
mátti hann þola miklar ofsókn-
ir fyrir það og einnig hefur hann
gengið í gegnum bæði gjaldþrot
og lífshættuleg veikindi. Kristinn
hjá DV ræddi við hann um þessa
reynslu og hvað framtíðin ber í
skauti sér.
Í sveit og hljómsveit
Karl er fæddur í Mosfellssveit
árið 1964 og hefur búið þar alla
tíð. Hann er yngstur sex barna
hjónanna Tómasar Sturlaugs-
sonar og Gerðar Lárusdóttur.
Tómas var skólastjóri í Varm-
árskóla og framkvæmdastjóri
Styrktarfélags vangefinna og
Gerður vann á símstöðinni og
sem húsmóðir. Á uppvaxtar-
árunum var Mosfellssveit að-
eins lítið þorp og fjölskyldan
bjó í fyrstu eiginlegu götunni,
Markholti. „Við vorum alger-
ir sveitalubbar og mér finnst á
mörgum Mosfellingum að þeir
vilji halda í þá rómantík að ein-
hverju leyti. Þarna eru ekki nema
örfá skref út í ósnortna náttúru.“
Hvernig krakki varst þú?
„Ég held að ég hafi verið þokka-
lega viðráðanlegur en ég var samt
sendur í sveit,“ segir hann og
brosir. „Í sex sumur var ég send-
ur norður í Mývatnssveit á bæ
sem heitir Baldursheimur. Það
var yndislegt að fara í sveitina og
gott fólk þar en ég man að það
var svolítið krítískur tími þarna á
vorin þegar ég var að fara. Þá var
fótboltinn að byrja og unglinga-
vinnan og allt að lifna við í Mos-
fellssveitinni en ég var þá sendur
í aðra sveit.“
Karl fór snemma að hafa
áhuga á tónlist og spilaði með
lúðrasveit Mosfellssveitar. Það
voru trommurnar sem áttu hug
hans allan og seinna fór hann
að spila með rokkhljómsveit-
um. Draumurinn var að starfa við
áhugamálið og „meikaða“.
Gildran var hljómsveit Mos-
fellsbæjar
Á unglingsárunum stofnaði Karl
meðal annars hljómsveitina Partý
með bræðrunum Þórhalli og
Hjalta Úrsus Árnasyni, sem spil-
uðu á bassa og hljómborð, og
söngvaranum Einari S. Ólafssyni,
betur þekktum sem Einari átta-
villta. Skömmu síðar kom Birgir
Haraldsson inn sem söngvari
og gítarleikari en Hjalti og Ein-
ar hurfu á brott. Nafninu var síð-
ar breytt í Gildran og bandið varð
sífellt rokkaðra. Við þremenning-
ana bættist síðar, Sigurgeir Sig-
mundsson gítarleikari og starf-
aði með Gildrunni allt til enda.
Fyrirmyndirnar voru rokksveit-
ir áttunda áratugarins á borð við
bresku sveitina Uriah Heep sem
var í miklu uppáhaldi hjá Karli.
„Herbergið mitt var þakið plag-
götum af Uriah Heep og ég límdi
mynd af trommara sveitarinnar á
fyrsta trommusettið mitt sem ég
fékk í fermingargjöf.“
Gildran starfaði samfleytt í
þrjátíu ár og gaf út sjö hljóm-
plötur. Á ferlinum hitaði hljóm-
sveitin meðal annars upp fyrir
erlendar stórstjörnur á borð við
Nazareth, Status Quo, Jethro Tull
og sjálfa Uriah Heep. „Við vor-
um metnaðarfullir, æfðum stíft
og spiluðum mikið á tónleikum.
Aldrei náðum við jafn miklum
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Kalli Tomm skók stjórnmálin og sigraðist á krabbameini:
„Ég hélt að
lífið væri
bara búið.“