Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 32
34 umræða Sandkorn 6. apríl 2018 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur fréttaskot 512 7070 abending@dv.is Spurning vikunnar Hvað á að gera við Hegningarhúsið? „Varðveita söguna. Ég hef barist fyrir verndun gamallar borgar og byggðamyndar.“ Ólafur F. Magnússon „Setja upp spennandi safn.“ Rita Didriksen „Kaffihús?“ Gyða Einarsdóttir „Af hverju ekki að breyta því í notalegt og kosí hótel?“ Daði Snær Elvarsson Snerta ekki ljósmæður með priki Þögn ráðherra í tengslum við kjarabaráttu ljósmæðra er væg­ ast sagt ærandi. Ráðherrar eru með lífsmarki enda duglegir að hampa nýju fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, en enginn hefur haft það í sér að segja opinberlega að það sé fárán­ legt að hjúkrunarfræðingar lækki í launum við að gerast ljósmæður til að taka á móti nýjum þegnum þessa lands. Samninganefnd ríkisins hefur unnið hörðum höndum við að hundsa ljósmæður undanfarna mánuði, það væri kannski lag að láta ljósmæður heyra undir kjararáð eða jafnvel undir ráð­ herra sjálfan eins og kjararáð sjálft, þá þyrfti bara eitt penna­ strik til að „laga“ launin. Það er allt betra en að vilja ekki snerta ljósmæður með priki. Kaldar kveðjur til öryrkja Fjögurra ára áætlun ríkis­ stjórnarinnar var kynnt með viðhöfn í vikunni, fálæti al­ mennings var áþreif­ anlegt enda endast margra ára áætlanir íslenskra ráðamanna sjaldnast lengur en í nokkra mánuði. Öryrkjar hafa lengi barist fyrir bættum kjörum og ljóst er að sú barátta mun dragast á langinn. Miðað við útgjaldaaukningu til öryrkja og aldraðra á fjárlögum og auk­ inn stjórnunarkostnað í Excel­ skjölum ríkisstjórnarinnar, þá má gera ráð fyrir fjórum árum í viðbót af fólki á hrakhólum á tekjum sem ná engan veg­ inn upp í grunnframfærsluvið­ mið stjórnvalda á meðan þeir sem geta unnið halda áfram að hækka í launum. Það eru kald­ ar kveðjur til öryrkja. Hvernig líður þér núna? B æjarfógeti í Neskaupstað árið 1979 var Þorsteinn Skúlason. Hann er á lífi í dag. Hann fékk það hlutverk að dæma í máli Valbjarnar Magna Björnssonar sem í dag gengur undir nafninu Magni Línberg. Magni er eltihrellir af verstu sort. En nú eru ný gögn komin fram í mál­ inu. Magni hóf að ofsækja konur fyr­ ir tvítugt. Þegar hann var á tuttugasta og fyrsta aldursári skipulagði hann innbrot á heimili ungrar, óléttrar konu. Magni hafði áður stundað að gægjast á glugga hjá konum en nú var komið að stóru stundinni. Hann ætlaði að fá það sem hann taldi vera sitt. Og þess vegna var hann með band meðferðis. Unga konan var ein af þeim fyrstu sem hann fékk á heil­ ann. Í stuttu máli braust hann inn að nóttu til á meðan eiginmaður kon­ unnar var á næturvakt. Hann hrinti konunni, settist ofan á hana og barði hana með öskubakka í andlitið, þrisvar sinnum hið minnsta. Síðan reyndi hann að binda konuna. Frelsissviptingin stóð yfir í um klukkustund. Konan var blá og mar­ in í andliti, sálin jafnaði sig aldrei. Magni sem þá var íþróttastjarna í bænum gerði lítið úr árásinni og sagði stúlkuna ljúga. En stúlkan tók þá hetjulegu ákvörðun í litlu með­ virku bæjarfélagi að leggja fram kæru. Þorsteinn Skúlason bæjarfógeti fékk tækifæri. Hann gat stöðvað elti­ hrelli og ofbeldismann í fæðingu. Sett alvarlegt strik í reikninginn. Hann gat dæmt Magna í þriggja ára fangelsi hið minnsta ef refsirammi þess tíma er skoðaður. En Þorsteinn ákvað að vernda níðinginn. Bæinn sinn. Auðvitað er ekki gott ef svona hrottalegt mál fer á flakk og jafnvel í blöð og sjón­ varp. Hver vill þá koma og vinna á vertíð. Unga fólkið í bænum furð­ aði sig á meðvirkninni, en svo hélt lífið áfram. Magni hélt sínu striki og hefur haldið uppteknum hætti í 40 ár. Já, Þorsteinn fékk tækifærið en hann taldi sanngjarnt að dæma Magna í tveggja mánaða skilorðs­ bundið fangelsi fyrir að frelsissvipta konu, berja hana með öskubakka og reyna binda hana á heimili hennar. Ég velti fyrir mér hvernig Þorsteini líði í dag með þessa stórundarlegu ákvörðun. Hvernig líður þér núna? Og er staðan breytt í dag? Nei, er svarið. Magni er búsettur á Akur­ eyri og leggur sig fram um að eyði­ leggja líf fyrrverandi sambýliskonu sinnar. Hann flutti í götuna hennar. Aftur bregst samfélagið, konunni og Magna sjálfum. Magni þarf hjálp þó að hann sjái það ekki sjálfur. Það er skylda samfélagsins að hjálpa þeim báðum. Það blasir við að maðurinn er veikur. Það á ekki að þurfa harmleik svo gripið verði í taumana. Það er skylda ykkar sem hafið völdin að laga þessa villu í kerfinu, hefta vírusinn áður en það er of seint. Ekki seinna en í dag. n Leiðari Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is V ið í Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsing­ um nálgumst þetta frá allt öðru sjónarhorni, við setj­ um á oddinn velferðarsjónarmið barna og ungmenna, svo lýð­ heilsusjónarmið.   Ólafur segir að áfengisauglýsingar virki ekki og að áfengisneysla hafi auk­ ist hér á landi þrátt fyrir bann við áfengisauglýsingum. Þar skautar hann yfir að það er búið að aug­ lýsa áfengi ólöglega árum saman, þannig að hann er í hróplegri mót­ sögn við sjálfan sig. Fyrir utan það að áfengisauglýsingar virka, annars væru menn ekki að auglýsa. Við erum hissa á að fleiri brot hafi ekki ver­ ið kærð því það er búinn að vera mjög einbeittur brotavilji hjá íslenskum og erlend­ um áfengisframleiðendum. Það er margsannað að áfeng­ isauglýsingar virka eins og allar auglýsingar, þegar Ólafur segir að auglýsingar séu til að fá fólk til að skipta um tegund, það eru allir fé­ lagsvísindamenn búnir að hafna þessu fyrir lifandis löngu. Enda nefnir hann engar rannsóknir máli sínu til stuðnings. Áfengisauglýs­ ingar virka og þess vegna hefur áfengisneysla aukist á undanförn­ um árum. Áfengisauglýsingar eiga að vera bannaðar eins og sígarettu­ auglýsingar. Það vill enginn síga­ rettuauglýsingar nema þeir sem framleiða sígarettur. Hags­ munaaðilar tala um að það megi allt í útlöndum, það er vit­ leysa því mörg lönd eru með mjög aðhaldssamar reglur varðandi auglýsingar á viðkvæmum vörum eins og áfengi. Varðandi samfé­ lagsmiðla, þá má ekki birta hvað sem er á Facebook. Þetta er spurning um hvernig samfélagið vill mæta velferðar­ sjónarmiðum og æsku fólks. Börn eiga rétt á að vera laus við áfengis­ áróður og þeir sem eru í viðskipt­ um verða að virða þær reglur sem samfélagið hefur komið sér saman um. Í stað þess að brjóta þær ítrekað og komast nánast upp með það. Ý msar rannsóknir hafa sýnt fram á að áfengisauglýs­ ingar auka ekki áfengis­ neyslu þegar á heildina er litið, heldur hafa fyrst og fremst áhrif á hvaða vörumerki fólk kaupir. Í fyrsta lagi er það að leyfa auglýsingarnar ekki stórt lýðheilsumál, vegna þess að þetta bann heldur ekki neitt. Það er rugl að tala um áfengisauglýsingabann á Íslandi því það eru áfengisauglýsingar úti um allt. Þær má finna í tímaritum sem flutt eru til landsins og fylla hillur bókabúðanna. Það er ekkert gert í því enda erum við ekki með menn á landamærunum eins og í Sádi­Arabíu til að tússa yfir áfengisauglýsingar. Svo í seinni tíð eru samfélagsmiðlarnir og vefmiðlar sem eru Íslendingum alveg jafn aðgengilegir og íslenskir vefmiðlar. Í öðru lagi felur bannið í sér mismunun sem bitnar á innlendum fjölmiðlum og framleiðendum. Erlendu miðlarnir fá engar sektir eins og íslenskir miðlar sem eru taldir hafa birt áfengisauglýsingar. Erlendir áfengisframleiðendur eiga auðvelt með að halda sínum vörumerkjum að Íslendingum á meðan innlendir framleiðendur geta lent í sektum og málsóknum. Minni brugghús, sem eru vaxandi atvinnugrein hér á landi, eru sett í alveg ómögulega stöðu í markaðsmálum. Í þriðja lagi gerir íslensk löggjöf ekki ráð fyrir að hér séu áfengisauglýsingar þótt þær séu úti um allt og þess vegna eru engar reglur um hvernig þær eigi að vera úr garði gerðar. Hvort þær megi beinast að börnum og unglingum o.s.frv. Við hjá Félagi atvinnurekenda höfum samið ítarlegar siðareglur um áfengisauglýsingar sem okkar félagsmenn eru tilbúnir að undirgangast ef þetta bann verður afnumið. Þar er t.d. bannað að beina áfengisauglýsingum að börnum og unglingum. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Árni Guðmundsson, form. Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum MEð oG á MÓti ÁfengisauglÝsingar með á móti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.