Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 38
Flutningar 06. april 2018KYNNINGARBLAÐ Í grunninn erum við dreifingar-fyrirtæki í Reykjavík og erum mjög öflugir í dreifingu á vörum á höfuðborgarsvæðinu. Við sjáum um vöruhýsingu, gámalosun og heimakstur fyrir fyrirtæki á borð við Frakt flutningsmiðlun ehf. og Blue Water Shipping, í því felst meðal annars að tæma alla gáma sem koma til landsins og keyra vör- ur heim að dyrum til viðskiptavina þeirra. Einnig sjáum við um flutn- ing fyrir Smyril Line Cargo og DB Schenker,“ segir Arnar Þór Ólafs- son hjá Fraktlausnum. Auk þess sinnir fyrirtækið um- fangsmiklum vöruflutningum til og frá Flúðum og Keflavík. „Við getum flutt vörur fyrir hvern sem er og erum opnir fyrir samstarfi við bæði stærri og minni aðila. Við erum mikið í alls konar sérflutningum, til dæmis flytjum við mikið af límtrjám fyrir Límtré Vírnet,“ segir Arnar en fyrirtækið er afar vel búið ýmsum tækjum fyrir flutninga. „Við höfum mikið úrval af tækj- um, til dæmis sendibíla í öllum stærðum, gámalyftur, lengjanlega flatvagna, frystivagna með heilopn- un, bílaflutningavagn, vélavagna, walking-floor vagn og erum mikið í gámaflutningum. Auk þess eigum við vagna undir vélar og bíla sem við flytjum oft,“ segir Arnar, en sam- tals starfa um 20 starfsmenn hjá fyrirtækinu. „Við erum mikið í því sem við viljum kalla hugsandi frakt. Við flytjum oft dýran og viðkvæman varning sem okkur er treyst fyrir og það er ekki sama hvernig farið er að. Þá sjaldan að eitthvert verkefni hentar okkur ekki þá afþökkum við það og vísum á samkeppnisaðila ef við vitum að þeir eru betur til þess fallnir. Markmiðið er góð viðskipti til langframa en ekki stundarhagur,“ segir Arnar. Eigendur Fraktlausna hafa ára- tuga reynslu af flutningastarfsemi og fyrirtækið þykir veita afar góða og trausta þjónustu. Í vöruhúsi félagsins á Héðinsgötu 1–3 sjá Fraktlausnir einnig um að taka á móti vöru til áframflutnings til á Snæfellsnes og í Borgarnes fyrir BB og syni ehf. og Júlla Jóns í Borgarnesi. Enn fremur taka Fraktlausnir að sér lestun gáma, sem og almenna vörudreifingu. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni fraktlausnir.is FRAKtLAuSNiR: Sérfræðingar í hugsandi frakt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.