Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Qupperneq 38
Flutningar 06. april 2018KYNNINGARBLAÐ
Í grunninn erum við dreifingar-fyrirtæki í Reykjavík og erum mjög öflugir í dreifingu á vörum
á höfuðborgarsvæðinu. Við sjáum
um vöruhýsingu, gámalosun og
heimakstur fyrir fyrirtæki á borð
við Frakt flutningsmiðlun ehf. og
Blue Water Shipping, í því felst
meðal annars að tæma alla gáma
sem koma til landsins og keyra vör-
ur heim að dyrum til viðskiptavina
þeirra. Einnig sjáum við um flutn-
ing fyrir Smyril Line Cargo og DB
Schenker,“ segir Arnar Þór Ólafs-
son hjá Fraktlausnum.
Auk þess sinnir fyrirtækið um-
fangsmiklum vöruflutningum til og
frá Flúðum og Keflavík. „Við getum
flutt vörur fyrir hvern sem er og
erum opnir fyrir samstarfi við bæði
stærri og minni aðila. Við erum
mikið í alls konar sérflutningum, til
dæmis flytjum við mikið af límtrjám
fyrir Límtré Vírnet,“ segir Arnar en
fyrirtækið er afar vel búið ýmsum
tækjum fyrir flutninga.
„Við höfum mikið úrval af tækj-
um, til dæmis sendibíla í öllum
stærðum, gámalyftur, lengjanlega
flatvagna, frystivagna með heilopn-
un, bílaflutningavagn, vélavagna,
walking-floor vagn og erum mikið
í gámaflutningum. Auk þess eigum
við vagna undir vélar og bíla sem
við flytjum oft,“ segir Arnar, en sam-
tals starfa um 20 starfsmenn hjá
fyrirtækinu.
„Við erum mikið í því sem við
viljum kalla hugsandi frakt. Við
flytjum oft dýran og viðkvæman
varning sem okkur er treyst fyrir og
það er ekki sama hvernig farið er
að. Þá sjaldan að eitthvert verkefni
hentar okkur ekki þá afþökkum við
það og vísum á samkeppnisaðila ef
við vitum að þeir eru betur til þess
fallnir. Markmiðið er góð viðskipti til
langframa en ekki stundarhagur,“
segir Arnar.
Eigendur Fraktlausna hafa ára-
tuga reynslu af flutningastarfsemi
og fyrirtækið þykir veita afar góða
og trausta þjónustu.
Í vöruhúsi félagsins á Héðinsgötu
1–3 sjá Fraktlausnir einnig um að
taka á móti vöru til áframflutnings
til á Snæfellsnes og í Borgarnes
fyrir BB og syni ehf. og Júlla Jóns í
Borgarnesi.
Enn fremur taka Fraktlausnir að
sér lestun gáma, sem og almenna
vörudreifingu.
Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni fraktlausnir.is
FRAKtLAuSNiR:
Sérfræðingar í hugsandi
frakt