Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Síða 46
48 sport 06. april 2018
K
ári Árnason, kletturinn
í vörn íslenska lands-
liðsins, hefur í vetur spil-
að í Skotlandi. Kári gekk í
raðir Aberdeen síðasta sumar en
þar þekkti hann vel til. Kári hafði
áður leikið með félaginu og var
komu hans þangað aftur mikið
fagnað. Kári er 35 ára gamall og
hefur átt flottan feril í atvinnu-
mennsku, hann er lykilmaður í
íslenska landsliðinu sem heldur
á heimsmeistaramótið í sumar.
Varnarmaðurinn knái skor-
aði eitt af mörkum Aberdeen í
vikunni þegar liðið heimsótti
Motherwell í skosku úrvals-
deildinni. Kári skoraði markið
með kollspyrnu og kom þessu
sögufræga félagi yfir í 0-2 sigri.
„Þetta var góður sigur fyrir okkur,
Motherwell er svona lið sem spil-
ar iðnaðarbolta. Við vorum betri
en náðum ekki að nýta færin
okkar í fyrri hálfleik. Það var fínt
að ná inn einu marki fyrir liðið og
hjálpa þannig til, það braut ísinn
fyrir okkur og seinna markið kom
strax í kjölfarið,“ sagði þessi geð-
þekki leikmaður þegar við rædd-
um við hann í vikunni.
Stressar sig ekki yfir því að
spila ekki alltaf
Kári er á seinni árum ferilsins
en þrátt fyrir það sýnir spila-
mennska hans það ekki innan
vallar. Kári hefur líklega aldrei
spilað betur með landsliðinu
en síðasta árið. Hann hefur þó í
vetur mátt þola talsverða bekkj-
arsetu hjá Aberdeen, meira en
hann hefur vanist síðustu ár. „Í
leiknum um síðustu helgi þá var
ég ekki með, það var bara ein-
faldlega þreyta eftir langt ferðalag
með landsliðinu sem spilaði þar
inni í. Ég náði ekki æfingu daginn
fyrir leik, það var skiljanlegt að
ég væri ekki að spila þá. Þetta er
ekki hlutur sem ég er að stressa
mig yfir, auðvitað, innst inni, vilja
allir leikmenn spila alla leiki. Það
er samt kannski betra fyrir mig ef
ég horfi til landsliðsins að ég sé
ekki að taka 45 leikja tímabil. Það
er hægt að horfa á hlutina þannig
og það er jákvætt, maður ætti að
vera ferskur.“
Ekki göngubolti eins og á Kýpur
Á 14 ára atvinnumannsferli sín-
um hefur Kári farið víða en í hálft
ár lék hann með Omonia á Kýp-
ur áður en hann hélt aftur til
Skotlands. Hann langaði í deild
þar sem væri meiri samkeppni.
„Það er hark í þessari deild en
ástæðan fyrir því að ég kom
hingað er að í deildinni er meiri
samkeppni og þetta er ekki
sami göngubolti og var í Kýpur.
Ég vildi komast í þannig bolta
en maður endist ekki mörg ár í
þessu, þetta tekur sinn toll. Það
er ágætt að spila ekki hvern ein-
asta leik,“ sagði Kári en Aberdeen
situr í öðru sæti skosku úrvals-
deildarinnar, þrátt fyrir það er ör-
lítill pirringur í stuðningsmönn-
um liðsins. „Þeir eru pirraðir
yfir því að við höfum náð í fá stig
gegn Rangers og Celtic, það fer í
taugarnar á þeim. Við erum samt
í öðru sæti í deildinni og í undan-
úrslitum bikarsins, og ef fer sem
horfir er yfir litlu að kvarta.“
Samningslaus í sumar
Framtíð Kára er í óvissu en hann
verður samningslaus í sumar hjá
Aberdeen. Hann hefur rætt við
félagið um nýjan samning en vill
ekki fara ítarlegra út í þá sálma.
Hann á þó ekki von á öðru en að
halda áfram í atvinnumennsku.
„Þetta hefur aðeins verið rætt,
það er samt eitthvað sem ég er
ekki klár í að fara nánar út í. Ég
er bara að skoða allt, þetta er eitt-
hvað sem kemur í ljós þegar líð-
ur á. Ég er lítið að stressa mig á
þessum hlutum núna.“
Ekki neinar viðvörunarbjöllur
Kári var með íslenska lands-
liðinu í verkefni í lok mars og lék
þá í 3-0 tapi gegn Mexíkó, fínasti
leikur að hálfu Íslands en stórt
tap. „Mér fannst við koma ágæt-
lega úr þessu verkefni, ég spilaði
fyrri leikinn við Mexíkó og eins
fáránlega og það hljómar, þegar
maður fer yfir leikinn, þá fannst
mér við spila ágætlega en töpum
samt 3-0. Fyrsta markið þeirra
kemur eftir aukaspyrnu, dómur-
inn var ódýr en við hefðum líka
getað komið í veg fyrir þessa
stöðu áður. Þeir fá svo eitt færi og
komast í 2-0, það er mjög þröngt
færi. Þar var það sama, það var
hægt að koma í veg fyrir það með
því að fylgja hlaupunum af miðj-
unni eftir. Við vitum þetta og í
sumar munu svona hlutir ekki
gerast, þá elta menn sína menn
alltaf. Þriðja markið er svo bara
eins og það er, við fengum heil-
mörg færi gegn Mexíkó og hefð-
um getað skorað. Viðar Örn og
Sverrir Ingi fá fín færi til þess að
skora. Þessi leikur var ekki þess
eðlis að hann eigi að kveikja á
einhverjum viðvörunarbjöll-
um. Það er oft sem maður lend-
ir í svona leikjum, maður hugsar
eftir leikinn; hvernig í veröldinni
þetta gat endað 3-0? Ég spilaði
ekki leikinn við Perú og get því
lítið sagt um hann, það voru góð-
ir og slæmir kaflar.“
Hugsar um HM á hverjum degi
66 dagar eru í fyrsta leik Ís-
lands á HM þar sem liðið mun
mæta Argentínu í Moskvu. Mikil
spenna er fyrir því en Kári er einn
af þeim sem á öruggt sæti í 23
manna hóp Heimis Hallgríms-
sonar, svo lengi sem hann er heill
heilsu. „Þetta er eitthvað sem
maður hugsar meira og meira
um, maður má samt ekki gera
of mikið af því þá er hætt við að
maður fari að hlífa sér og þá spil-
ar maður ekki eins vel og maður
getur. Það er samt ekki hægt að
leyna því að maður hugsar um
þetta á hverjum degi.“n
Ferill Kára
2001–2004 Víkingur
2004–2006 Djurgården
2006–2009 AGF Aarhus
2009 Esbjerg (Lán)
2009–2011 Plymouth Argyle
2011–2012 Aberdeen
2012–2015 Rotherham United
2015–2017 Malmö FF
2017 Omonia 8
2017– Aberdeen
Kletturinn Kári
hugsar um landsliðið
nKári Árnason skoraði með kollspyrnu í Skotlandi
nEldist afar vel innan vallar nJákvætt að spila ekki alla leiki
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is