Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 48
50 6. apríl 2018
1 kúla í höfuðið batt enda á ævi kínverska raðmorðingj-ans Yang Xinhai, 14. febrúar 2004. Yang hafði það til sakar unnið að myrða 67 manns og nauðga stórum
hluta þeirra í Henan-héraði í Kína. Fórnarlömb sín barði Yang
til bana með hamri.Sakamál
K
im Sung Jong fæddist árið
1952 í Osaka í Japan. For-
eldrar hans voru kóreskir
og faðir hans vann sig upp
frá því að safna brotajárni í að sjá
sér og sínum farborða sem leigu-
bílstjóri. Hann gerði reyndar gott
betur því þegar upp var staðið varð
hann vellauðugur eigandi keðju
keiluspilasala.
Hvað sem auði föður Kims leið
sótti sláttumaðurinn slyngi hann
árið 1969, þegar Kim var 17 ára.
Kim erfði formúu föður síns, út-
skrifaðist frá Keio-háskóla með
gráðu í stjórnmálafræði og lög-
um. Kim fékk japanskan ríkis-
borgararétt og breytti nafni sínu í
Joji Obara.
Síðari hluta 9. áratugar 20. ald-
ar og fyrri hluta þess 10. fjárfesti
Obara grimmt í fasteignum en fór
flatt á þeim fjárfestingum og fyrir-
tæki hans fór á hausinn. Í kjöl-
far þess notaði hann fyrirtækið til
peningaþvættis fyrir jakúsasam-
tökin Sumiyoshi-kai.
Hávaði veldur
lögregluheimsókn
Þann 6. júlí, 2000, barst lög-
reglunni í Tókýó símtal frá fram-
kvæmdastjóra lúxusfjölbýlishúss
við strendur Miura-skagans. Sagði
hann að mikill hávaði hefði borist
frá einni íbúðinni.
Lögreglan ákvað að kanna mál-
ið og í ljós kom að eigandi íbúðar-
innar var enginn annar en Obara.
Eftir að hafa litast um á heimil-
inu án þess
að sjá nokkuð
athyglisvert,
ef undan eru
skildir sem-
entsklumpar
hér og hvar,
inni í íbúð-
inni og við inn-
ganginn og
eitthvað sem
virtist vera
garðslanga,
kvöddu lög-
reglumennirnir.
Rétt áður en
þeir fóru spurðu
þeir þó hverju
sementið sætti.
Obara sagðist
vera að skipta
um flísar og létu
þeir gott heita,
enda engin
ástæða á þeim
tímapunkti til að gruna hann um
græsku.
Hvarf Blackman vekur athygli
Það sem var, án þess að vitneskja
lægi fyrir um það enn, var að ung,
bresk kona, Lucie Blackman, hafði
horfið í skömmu áður. Blackman
hafði áður unnið sem flugfreyja,
en þegar hún hvarf vann hún sem
gestgjafi í Casablanca-nætur-
klúbbnum í Roppongi, þekktu
gleðihverfi í Tókýó.
Hvarf Lucie
Blackman varð
þegar upp var
staðið mikill
fjölmiðlamatur,
kannski ekki síst
fyrir þá stað-
reynd að fjölskylda hennar lofaði
veglegri fjárupphæð fyrir upp-
lýsingar sem varpað gætu ljósi á
örlög hennar.
Blackman-fjölskyldan gerði
gott betur, því hún kom sér einnig
upp aðstöðu í Tókýó. Þangað gat
fólk hringt ef það taldi sig hafa
upplýsingar og hafði fjölskyldan
ráðið fjölda manns í vinnu til þess
eins að svara símhringingum sem
þangað bárust.
Böndin berast að Obara
Það var eins og við manninn mælt,
innan tíðar gáfu sig fram þrjár
útlenskar konur sem höfðu nán-
ast sömu sögu að segja. Þær höfðu
unnið á hinum ýmsu klúbbum í
Roppongi og farið með vellauð-
ugum kaupsýslumanni á veitinga-
NíðiNgSSkapur NorNariNNar
Eric Willmot hefði betur aldrei látið spá fyrir um framtíð sína
Þ
ann 23. desember, 1979,
var maður að nafni Thom-
as Gilligan á leiðinni heim
til sín í Cork á Írlandi. Þar
sem hann sat í gamla, lúna vöru-
bílnum sínum rak hann fyrir til-
viljun augun í fót sem stóð upp úr
jörðinni til hliðar við veginn.
Þótt Gilligan hlakkaði til
að komast heim, jólin handan
hornsins og kærkomin hvíld í
vændum, þá stöðvaði hann vöru-
bílinn og kannaði fótinn nánar.
Lögreglan látin vita
Nú, fóturinn var áfastur við
heilan líkama karlmanns, en
Gilligan hafði ekki erindi sem
erfiði þegar hann reyndi að losa
líkamann úr drullunni. Því greip
hann til þess ráðs að stökkva upp
í bíl sinn, aka á næstu lögreglu-
stöð og láta þá sem þar voru vita
af þessum fundi.
Heyrir Thomas Gilligan nú
sögunni til í þessari frásögn.
Eric heitinn Willmot
Lögreglan náði án teljandi erfið-
leika að grafa upp líkið og var það
sent til nánari skoðunar. Ljóst var
að ekki var langt síðan viðkom-
andi gaf upp öndina. Hann hafði
verið bundinn á höndum og fót-
um, höfuðkúpan var brákuð,
áverkar voru á mikilvægum líf-
færum og rifjahylkið var í maski.
Var þar kominn Eric heitinn Will-
mot.
Örlagaríkur spádómur
Næsta verk á dagskrá var að kom-
ast að því hví Eric Willmot hafði
endað ævi sína niðurgrafinn á
þessum stað. Eftirgrennslan lög-
reglunnar leiddi í ljós að Willmot
hafði mörgum árum fyrr, 1973
nánar til tekið, látið spá fyrir sér á
skemmtisvæði á ónefndum stað.
Sú sem það gerði hét Phoebe
Brady, 43 ára kona sem einnig
hafði komið sér upp smá söfnuði
djöfladýrkenda.
Óseðjandi í rúminu
Hvort Phoebe hafi lagt á Will-
mot álög, skal ósagt látið, en
hann varð yfir sig ástfanginn
af þessari einstæðu móður og
kvæntist henni. Dóttir Pheobe
hét Verren, var 27 ára og kemur
lítillega við sögu síðar.
Phobe var að sögn óseðjandi
kynferðislega og þar stóð hnífur-
inn í kúnni því Eric Willmot gat
með engu móti fullnægt þörf
hennar í þeim efnum.
Skammvinnt frelsi
Willmot sá sinn kost vænstan
að láta sig hverfa en ekki gat lengi
um frjálst höfuð strokið. Með-
limir í söfnuði Phoebe Brady
komust á slóð hans, gáfu hon-
um yfirhalningu og drógu hann
nauðugan heim til Phoebe.
Í tvígang til viðbótar tókst Will-
mot að flýja og í tvígang fannst
hann og endaði á ný í hjónarúmi
helvítis.
Þremur dögum fyrir jól 1979
flúði hann í síðasta sinn og það
fór sem fór.
„Phobe var að
sögn óseðjandi
kynferðislega og þar
stóð hnífurinn í kúnni því
Eric Willmot gat með
engu móti fullnægt þörf
hennar.
n Kazu, Yuji eða Koji; Obara notaði ýmis nöfn við ódæði sín n Byrlaði fórnarlömbum sínum ólyfjan„ Í september, 2000, dró til tíðinda þegar fleiri
konur báru Obara þeim sökum að hann hefði
nauðgað þeim og hann var handtekinn í október.
Svæfði koNur og Svívirti
Joji Obara Fékk lífstíðardóm fyrir glæpi sína.
Stórt klámmyndasafn Á heimili Obaras
fundust 4.000–5.000 myndbönd.