Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 55
KYNNING
Ný nuddstofa og magadans-
stúdíó að Ármúla 40
Fólk vissi lítið um magadans þegar ég byrjaði að kenna hann
hér, en í dag er hann miklu
vinsælli og Íslendingar
kunna að meta þessa list.
Ég hef upplifað í gegnum
þetta starf að Íslendingar
eru bæði blóðheitari og
hjartahlýrri en þeir virðast.
Stundum eruð þið dálítið stíf
en þegar maður hreyfir við
ykkur og leiðbeinir ykkur þá
finnið þið Íslendingar taktinn.
Þið eruð líka yndislegt fólk
og mér líður hvergi betur en
hér,“ segir Josy Zareen sem
hefur kennt íslenskum konum
magadans alveg frá alda-
mótum.
Josy er frá Brasilíu og
byrjaði að æfa magadans
þegar hún var 13 ára. Hún
dansar og kennir tignarlega
útgáfu af magadansinum
sem þróuð var í Egyptalandi
en Josy dvaldist lengi í Kaíró
og lærði magadans þar. Að
sögn hennar eru munúðar-
fyllri útgáfur dansins tíðkað-
ar í Tyrklandi.
Josy byrjaði að kenna
Íslendingum magadans
árið 2000 og árið 2003
fór hún með leikkonunni
vinsælu Helgu Braga um
landið og þær kenndu
víðs vegar þessa heillandi,
austurlensku fótamennt. Í
dag er magadans orðinn að
vinsælli íþrótt og listgrein.
Kennir Josy konum á öllum
aldri magadans, alveg frá
fjögurra ára stúlkum upp í
aldraðar konur.
Magadans og nudd eru góð
blanda
Josy hefur nú opnað nýtt og
glæsilegt magadansstúdíó
og nuddstofu að Ármúla 40.
Nuddararnir á stofunni eru
frá ýmsum löndum, Taílandi,
Brasilíu, Kúbu, Venesúela og
einn frá Íslandi. 80% við-
skiptavina nuddstofunnar eru
karlmenn en vefsíða nudd-
stofunnar er www.costa-
verde.is.
Að sögn Josy finnst
mörgum konum frábært
að sameina nuddtíma og
magadanstíma og þær
fara endurnærðar í burtu.
Einnig er staðurinn frábær
vettvangur fyrir gæsa- og
steggjapartí þar sem þokka-
fullur dansinn setur sinn blæ
á stemninguna.
„Á meðan meirihluti þeirra
sem koma hingað í nudd
eru karlmenn eru nær allir
nemendurnir í magadansi
konur. Í hreinskilni sagt þá er
magadans fyrir konur. Hann
er hins vegar fyrir konur á öll-
um aldri, af öllum húðlit og af
öllum stærðum,“ segir Josy og
að hennar sögn er það mikill
misskilningur að magadans
sé bara fyrir grannar kon-
ur með sléttan maga, hann
hentar öllum konum.
Josy fræðir okkur einnig
um að magadans sé afar
hollur og heppilegur fyr-
ir ófrískar konur til að örva
samdráttarhreyfingar. Einnig
er hann mjög góð hreyfing
fyrir konur eftir barnsburð
til að endurheimta þrótt í
líkamann.
Auk magadansins kennir
Josy einnig jóga, burlesque-
dans, zumba, Brazil Dance
Fit og Hawaiian-dans frá
Tahítí.
Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni magadans.is og í
síma 7742345.
Josy Zareen - magadans