Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Page 60
62 6. apríl 2018
Magnaðar óbirtar myndir frá
eldgosinu í Vestmannaeyjum
D
aníel Guðmundsson var
áhugaljósmyndari og
vörubílstjóri í Vestmanna
eyjum þar sem hann bjó
með konu sinni, Mörtu Hjartar
dóttur, fram að gosi 1973. Hjón
in fluttu, eins og svo margir Eyja
menn, til Þorlákshafnar eftir gos
og voru þar næstu árin. Seinna
fluttu þau til Reykjavíkur. Daníel
féll frá þann 17. júlí 1996 en Marta
er enn á lífi.
Barnabarn þeirra hjóna, Óðinn
Yngvason, smitaðist af bakteríunni
og hefur vakið athygli fyrir sína
myndasmíð. Þá hefur Óðinn verið
að framkalla og birta myndir afa
síns á samfélagsmiðlum við góðar
undirtektir.
„Hann var iðinn með mynda
vélina á ferðum sínum með fjöl
skyldunni, en eftir gos þá held ég
að hann bara hætti að mynda, eða
gerði afar lítið af því,“ segir Óð
inn. „Hann þekkti fólk úti um all
ar trissur eins og sagt er, og man ég
sem krakki þegar ég var með hon
um í litla Land Cruiserjeppanum
á þeysingi út um allar sveitir. Lengi
vel þá átti hann lítinn kindakofa
og sumarhús rétt utan við Þorláks
höfn.“
Daníel keyrði daglega til og
frá Reykjavík til Þorlákshafnar að
heilsa upp á skepnurnar.
„Ég gæti trúað að ég hafi svo
fengið bakteríuna frá afa, en
mamma og faðir minn sálugi voru
einnig alltaf dugleg að mynda alls
kyns ferðalög. Ég eftir mér sem
smápjakk að stelast í myndavél
arnar hjá foreldrum mínum og
klára filmurnar, eða smella af
flasskubbunum, þeim til lítillar
ánægju,“ segir Daníel glettinn, en
hann tekur oft myndir á eldri vélar
og framkallar sjálfur. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Óðinn kemur fram
í fjölmiðlum.
„Eitt sinn keypti ég gamla
Kodak Brownie Six20 mynda
vél í Góða hirðinum, og er ég kom
heim þá sá ég að í vélinni var full
átekin filma,“ segir Óðinn. Hann
Fékk bakteríuna frá afa Hætti að mynda eftir gos Keypti gamla filmuvél í Góða hirðinum
framkallaði filmuna, deildi mynd
unum á Facebook og auglýsti eftir
fólkinu og komst í kjölfarið í sam
band við ættingja. Óðinn gaf DV
góðfúslegt leyfi til að birta mynd
ir Daníels, afa hans frá eldgosinu í
Vestmannaeyjum árið 1973.
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is