Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Page 65

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Page 65
6. apríl 2018 67 vinnuveitanda upp á 7.500 geta sparast talsverðar fjárhæðir yfir árið,“ útskýrir Guðmundur en gera má ráð fyrir að um. 1.500 krón- ur verði þá afgangs af styrknum í hverjum mánuði, eða 18.000 á ári. Það er vel hægt að kaupa flugmiða fyrir þá peninga. Nú eða nýjan lúx- us reiðhjólahjálm? (Vextirnir af greiðslu- dreifingunni lækka alltaf með hverjum mánuðinum, en það er fínt að áætla að kostnaðurinn sé um 6.000 krónur á mánuði í greiðsludreifingu). Hvað með aðra valkosti? Fyrir fólk sem getur ekki hugs- að sér að setjast upp í strætisvagn er hægt að velja margar um aðrar leiðir til að komast á milli staða, fyrir utan hið augljósa, – að ganga. Reiðhjól: Reiðhjól fást bæði notuð og ný á breiðu verðbili en meðalverð fyrir nýtt götu- reiðhjól er í kringum 80.000 krón- ur á meðan nýtt rafmagnshjól kostar í kringum 400.000 krónur. Viðhaldskostnaður á götuhjólum fer yfirleitt ekki yfir 5.000 krónur á ári. Leigubíll: Gömlu góðu leigu- bílarnir eru svo að sjálfsögðu aug- ljós valkostur í hvers konar skutl. Meðal biðtími eftir leigubíl er 3 til 10 mínútur og verðið fer eftir því hvert ferðinni er heitið og hvort farið er um kvöld og helgar eða á virkum degi. Færri vita að hægt er að taka leigubíl í klukkutíma í senn í hvers konar snatt og kostar þá fjögurra manna bíll 9.000 krónur. Bílaleigubíll: Flestar bílaleig- ur landsins bjóða upp á hagstætt verð á langtímaleigu (mánuð eða lengur), – þá sérstaklega yfir vet- urinn þegar minna er um erlenda ferðamenn. Inni í verðinu eru all- ar tryggingar, viðhaldskostnaður og þess háttar en sjálfsábyrgðin er yfirleitt í kringum 100.000 krónur. Rekstrarleiga: Þá er einnig hægt að fá bíla á rekstrarleigu hjá flestum bílaumboðunum en leig- utímabilið er oftast einn, þrír, sex, níu eða tólf mánuðir og verð- ur í sumum tilfelllum ódýrara eft- ir því sem bíllinn er tekinn lengur á leigu. Tryggingar og viðhalds- kostnaður er á ábyrgð rekstrarleig- unnar. Zip Car: Leigðu bíl í klukku- tíma Í september hóf fyrirtækið Zip Car starfsemi sína á höfuðborgar- svæðinu en Zip Car er eins konar klúbbur í kringum bíla sem leigð- ir eru í nokkra klukkutíma í senn, oftast einn til tvo en hámark sól- arhring. Zip Car-bílum er lagt á nokkrum stöðum í miðborginni og bíl skal skilað á sama stað og hann var upphaflega sóttur. Vilji fólk prófa þetta fyrirkomu- lag er fyrsta skrefið að sækja um aðild í gegnum heimasíðuna eða appið hjá Zip Car og borga svo meðlimagjald á bilinu 500–2.500 krónur á mánuði, allt eftir því hve langur skuldbindingartími er valinn og hversu lengi og mikið fólk telur sig þurfa að nota bílana. Hámarks notkun er þó alltaf sólar- hringur í senn en algengast er að fólk noti bílana um það bil þrisvar sinnum í mánuði í tvo klukkutíma í senn en við það er miðað í töfl- unni hér að neðan. Algengast er að fólk velji leið sem kallast Zip Car Smart en þá fæst ókeypis klukkutími í hverjum mánuði gegn meðlimagjaldi upp á 1.500 krónur. Með þessu má segja að meðlimagjaldið núllist út þar sem leiga fyrir meðalstóran bíl á klukkutíma er einmitt 1.500 krón- ur. Ef miðað er við ofangreinda notkun, tvo tíma í senn, þrisvar í mánuði, má reikna með að út- gjöldin séu í kringum 9.000 krónur mánaðarlega. Bensínverð er inni- falið og hámarks akstur á klukku- tíma er 55 kílómetrar. Ef óhapp skyldi eiga sér stað er sjálfsábyrgð- in 100.000 krónur, svipuð og hjá flestum rekstar- og bílaleigum. skutlararnir á Facebook: Ólöglega leiðin Töluvert hefur verið fjallað um skutlaragrúppuna á Facebook í fjölmiðlum. Þó flestir nýti sér „harkið“, eins og það hefur löng- um verið kallað, á kvöldin og um helgar er fjöldi fólks á rúntinum yfir daginn líka. Blaðamaður DV prófaði að þiggja far hjá einum skutlaran- um í vikunnni en þar sem ómögu- legt reyndist að fá hana til að tjá sig undir nafni skulum við kalla hana Ölmu. Alma flautaði fyr- ir utan hjá honum rétt rúmlega 9 um morguninn og umsamið verð í einkaskilaboðum var 1.000 krón- ur. „Við maðurinn minn búum rétt fyrir utan borgina. Ég byrja daginn á að keyra hann í vinnuna snemma á morgnana, sinni svo er- indum og skutlast á meðan hann er í vinnunni. Svo sæki ég hann og við rúllum aftur heim,“ útskýr- ir Alma sem er búin að kynnast þessari jaðarmenningu nokkuð vel. Til dæmis segir hún að mesta fjörið fari fram á nóttunni um helgar, þegar bíleigendur eru ekki í ástandi til að keyra eigin bíla. Svo vilji konur helst þiggja far með öðrum konum og að það kosti alltaf minnst þúsund krónur aukalega að fara í Mosfellsbæ því þangað vilji enginn fara (hennar orð, ekki blaðamanns). Hún seg- ir verðið misjafnt hjá skutlurum, sumir rukki mikið, því skutlið sé hreinlega atvinnan þeirra, meðan aðrir noti skutlið til að niðurgreiða bensínkostnað því þeir séu hvort eð er á rúntinum. „Sumir selja reyndar landa og eru þar af leiðandi alltaf á rúntin- um á nóttunni um helgar,“ seg- ir Alma en réttast er að benda lesendum á að bæði harkið og landasala eru refsivert athæfi svo velji nú hver fyrir sig, – á eigin áhættu og ábyrgð. matarinnkaupin á netinu Á vefsíðunni (og appinu) aha.is er bæði hægt að kaupa í matinn og fá heimsenda tilbúna rétti frá ótal veitingastöðum í borginni. Bæði heilsufæðu og skyndi- bita. Ef þú vilt kaupa í matinn þá bjóða bæði Iceland og Nettó upp á heimsendingu en heimsendingin kostar 1.490 krónur. Vöruverð er það sama og í verslunum og fram- boðið svipað. Þá hafa margir látið vel af þjónustunni hjá Eldum rétt sem bjóða einnig upp á að hráefni í fyrirfram ákveðnar uppskriftir séu send heim að dyrum. Greinarhöf- undar hafa prófað hvoru tveggja og láta vel af. Flestar verslanir á höfuðborgarsvæðinu, t.d. Ikea, BYKO, Rúmfatalagerinn o.fl. bjóða einnig upp á heimsendingu gegn gjaldi. Upplýsingar frá skattinum um samgöngustyrki: https://www.rsk.is/einstak- lingar/tekjur-og-fradrattur/styrk- ir/. Frekari upplýsingar um rekstrar- kostnað á einkabíl: https://www.fib.is „Ef ferðin tekur 15 mínútur með fólksbíl þá máttu reikna með að sama ferð taki um það bil 30 mínútur með strætó eða reiðhjóli. „Bæði Iceland og Nettó bjóða upp á heimsendingu í gegnum www.aha.is en sendingin kostar 1.490 krónur innan höfuð- borgarsvæðisins. Í eftirfarandi samantekt er miðað við meðaltölur frá bílaleigum, rekstrarleigum og öðrum valkostum. Tryggingar, rekstrar- og viðhaldskostnaður er innifalinn í verði frá bíla- og rekstrarleigum og bensínkostnaðurinn er innifalinn í Zip Car, Strætó og einkabíl. Zip Car-bílum er lagt á nokkrum stöðum í miðborginni og bíl skal skilað á sama stað og hann var upphaflega sóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.