Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Qupperneq 66

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Qupperneq 66
68 fólk 6. apríl 2018 „Þú mátt alveg borða kókó puffs heima hjá mér í fyrramálið “ Hvað halda margir um þig sem er alls ekki satt? Að ég sé voða góður. Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf spilað um leið og þú gengir inn í herbergi, allt þitt líf, hvaða lag myndirðu velja? Lagið Hveitibjörn með Stuðmönnum er klárlega lagið sem ég myndi vilja hafa. Það er sjúklega töff lag. Það er eitt af lögunum í söngleiknum Slá í gegn sem verið er að sýna í Þjóðleikhúsinu. Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu, undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa? Energí og trú með Stuðmönnum. Það er svo frábært lag. Það er einmitt í söngleiknum Slá í gegn sem er verið að sýna í Þjóðleik- húsinu núna og geggjaður dans við það lag. Hvað ætti ævisagan þín að heita? Fyrsta bindið ætti að heita Draumar geta ræst. Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast? Three Amigos, Stella í orlofi og Með allt á hreinu. Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Slá í gegn sem er sýnt núna í Þjóðleikhúsinu. Sirkussöngleikur með lögum Stuðmanna. Sjúklega fyndið og skemmtilegt! Borðarðu mat sem er kominn fram yfir síðasta söludag? Já, ef augun og nefið segja að það sé í lagi. Heilsarðu frægum Íslendingum úti á götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu- lega? Að sjálfsögðu. Ég heilsa nú yfirleitt öllum, bara. En frægir þekkjast það er bara svoleiðis. Ég nikka svona og segi: „Sæll kollegi.“ Hver er fyndnasta „pick-up“ línan sem þú hefur heyrt? „Þú mátt alveg borða kókó puffs heima hjá mér í fyrramálið.“ Um hvað varstu alveg viss þangað til þú komst að því að þú hafðir rangt fyrir þér? Að Kúst og fæjó færi í Eurovision! Ég var alveg pottþéttur á því! Hvaða kvikmynd þætti þér helst við hæfi að breyta í söngleik? Three Amigos. Hvað er framundan um helgina? Ég er að fara að leika í Slá í gegn í Þjóð- leikhúsinu, sirkussöngleik með lögum Stuðmanna. Ég ætla að stökkva inn í sýninguna fyrir Hilmi Snæ og Baldur Trausta sem skipta með sér hlutverki Frímanns flug- kappa. Þeir eru báðir uppteknir í öðru í leik- húsinu enda Þjóðleikhúsið gjörsamlega að blómstra þessa dagana. Svo á laugardaginn ætla ég að vera í leikhúsinu og hjálpa til við prufur sem eru í gangi fyrir Ronju ræningja- dóttur sem verður á sviðinu næsta vetur. Á sunnudaginn á ég svo AFMÆLI og ætla að eyða deginum með konunni minni og börnunum okkar. Gera eitthvað ofboðslega skemmtilegt saman. Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi? Gleðja og gleðjast. Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér? Klór í krítartöflu. Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið? Fljúgðu með Stuðmönnum sem er einmitt eitt af lögunum í Slá í gegn sem verið er að sýna í Þjóðleikhúsinu. Hvað myndirðu nefna landið okkar ef við þyrftum að breyta? Stuðland, við íbúarnir værum Stuðmenn. Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu vilja eiga sem vin? Guffa. Ef þú kæmir einn daginn heim úr vinnunni og þar væri enginn nema Geir Ólafsson í sturtu, myndirðu hringja í lögregluna? Mér myndi örugglega bregða. Svo myndi ég örugglega segja:„Geir? Hvað ert þú að gera hér?“ Hann myndi þá væntanlega svara. Svo myndi ég segja: „Á ég að hringja á lögregluna?“ Ég myndi svo væntanlega meta næstu skref eftir það … sjá hverju hann myndi svara og svona. Af því kannski var þetta bara algjör misskilningur eða bara eitthvert grín. Þú veist. Maður veit aldrei með Geir. Hann er lúmskur. Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund kalli á klukkutíma, í hvaða verslun færirðu? 66°Norður! Alltaf! Engin spurning! Hvað verður orðið hallærislegt eftir 5 ár? Að veipa! Leikarinn og ljúflingurinn Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói eins og við þekkjum hann best, hefur svo sannarlega slegið í gegn á leiksviðinu og í hláturstaugum landsmanna. Sýningin Slá í gegn, sem byggð er á lögum Stuðmanna, er nú sýnd fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu, en Gói skrifar handrit og leikstýrir. Í önnum og afmælisundirbúningi gaf Gói sér tíma til að sýna lesendum DV á sér hina hliðina. hin hliðin Guðjón Davíð Karlsson leikari Syngur táknmálsútgáfu af Eurovision-laginu Á slaug Ýr Hjartar­ dóttir er 21 árs við­ skiptafræðinemi við Háskóla Ís­ lands. Hún er með samþætta sjón­ og heyrnarskerðingu. Hún talar bæði ís­ lensku og íslenskt táknmál. Áslaug Ýr hefur áhuga á cross­ fit, bókmenntum, ferðalögum og að kynnast nýjum tungumálum, fólki og menningu. Hún hefur einnig mik­ inn áhuga á ritstörfum og gaf sjálf út bók þegar hún var 15 ára. Þessa dag­ ana ritstýrir hún Röskvu og heldur úti bloggsíðunni slaugaslamm.blogspot. is. Áslaug vill leggja sitt af mörkum í réttindabaráttu ungs, fatlaðs fólks og er í stjórn Fjólu, félags fólks með sam­ þætta sjón­ og heyrnarskerðingu. Rosalegur Eurovision-aðdáandi Áslaug Ýr hefur verið mikill  Eurovision­aðdáandi frá því hún man eftir sér. Hún fylgdist með Söngvakeppninni í ár og átti erfitt með að gera upp við sig hvort lagið í úrslitunum stóð upp úr. „Eftir að úrslitin voru tilkynnt sat ég eftir í sófanum og hugsaði með mér hvað ég hlakkaði til að sjá tákn­ málsþýðingu á laginu, enda textinn mjög þéttur og skrautlegur. En af eigin raun vissi ég að það gæti orðið löng bið eftir þýðingunni. Þannig kviknaði sú hugmynd að þýða lagið bara sjálf. Af hverju ekki?“ segir Ás­ laug Ýr. Áslaug elskar tónlist en segist vera eins laglaus og hugsast getur. „Ég er hræðileg söngkona þegar kemur að raddmáli. Hins vegar hef ég litla sem enga reynslu af táknmálssöng, en sá í hendi mér að þar gæti ég orðið eitt­ hvað annað en hávær hani á priki. Ég er nefnilega heyrnarlaus, og íslenskt táknmál er mitt annað mál á eftir ís­ lensku,“ segir Áslaug Ýr. Í kjölfarið hafði hún samband við konu sem hún þekkir sem hafði mikla reynslu sem táknmálssöng­ kona. „Fyrr en varði var ég búin að túlka lagið yfir á alþjóðlegt tákn­ mál og gera alla vitlausa á heimil­ inu, eina ferðina enn, með því að spila  Our  Choice  mjög hátt aftur og aftur.“ Ævintýraleg myndbandsgerð Myndbandið var tekið upp á sólrík­ um mánudegi í Elliðarárdal og fékk Áslaug nokkra vini sína til að hjálpa sér við upptöku þess. „Við vorum lengi að leita að hinum fullkomna tökustað. Fyr­ ir utan að flest trén voru nakin og dauð þá komst hjólastóllinn ekki alls staðar að. Á endanum ákváð­ um við að henda okkur bara beint í djúpu laugina og fara í torfæruleið­ angur inn í skóginn þar sem við fundum loks draumastaðinn.“ Eftir að draumastaðurinn var fundinn gekk upptakan ekki áreynslulaust fyrir sig, en Áslaug átti erfitt með að heyra lagið sem var spilað í öðrum síma. Áslaug er með heyrnartæki á öðru eyra og heyrir eitthvað með því. Málinu var reddað með því að vinkona hennar söng lagið fyrir hana nógu hátt svo hún heyrði. „Þannig  náði ég loksins að syngja lagið almennilega, þarna í lynginu úti í skógi á sólskinsdegi með allt heimagerða tökudótið og frábæra teymið mitt.“ n Hægt er að horfa á myndbandið á DV.is. Hver er hún n Meðal vinsælustu snappara landsins með um 16 þúsund fylgjendur n Stundum kölluð Pony n Lék annað aðalhlutverkið í spennumyndinni Týndu stelpurnar n Tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins og söng þar dúett n Gæðastjóri hjá fjölmiðlafyrirtækinu Áttunni þar til í apríl 2018 SVaR: Sonja RUt ValDin lítt þekkt ættartengsl Stökkbreyttar ofurkonur Á dögunum sýndi Stöð 2 heimildamyndina „Þegar vitlaust er gefið“ sem fjallar um íslenskar konur sem greinst hafa með BRCA­ stökkbreytinguna sem getur valdið krabbameini. Ein af þeim konum sem var rætt við í myndinni var Bjarney Bjarnadóttir, íþróttafræðingur og kennari, sem er 37 ára gömul. Bjarney ræddi um ákvörðun sína og greindi frá því að ættarsaga hennar væri þannig að líkur væru á því að hún fengi krabbamein. Amma hennar og tvær systur hennar létust af þeim sökum og móðir hennar og tvö systkini reyndust vera með stökkbreytinguna. Ein af þeim er systir Bjarneyjar, Hulda Bjarnadóttir, forstöðumaður þróunarsviðs Árvakurs. Hulda steig fram á forsíðu tímaritsins MAN í febrúar 2017 og ræddi þá ákvörðun sína að gangast undir títtnefnda aðgerð. Henni voru gefnar 50 til 90 prósenta líkur á því að fá brjóstakrabbamein og því sagði hún að ákvörðunin hefði ekki verið erfið. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík Hulda steig fram í tímaritinu MAN í febrúar í fyrra og lýsti því hvernig hún komst að sömu niðurstöðu og systir sín.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.