Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Page 68
6. apríl 2018
13. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hvað eru
margir
nördar á
Alþingi?
Auðvelt að versla á byko.is
HJÓLUM INN Í
SUMARIÐ
Frábær
ferminga
r-
gjöf
Frábært verð ár eftir ár!
Kven- og karlahjól
28“ karla, 26“ kvenhjól, 6 gíra með
brettum og körfu.
28.995
49620200-1
Sparkhjól
Usa BMX 12“.
12.995
49620127
Barnahjól
Gult eða ljósblátt 16“.
20.995
49620062A/3A
Fyrir þau
allra
minnstu
ALLTAF
HEITT
OG GOTT
Geislahitari
Rafmagns 2000W, á fæti,
stillanlegt hitastig 600/1300/2000W.
Stillanleg hæð 120-200cm.
10.995
50615030
VIÐ ERUM
BYRJUÐ AÐ
GRILLA
NÝTT BLAÐ
Lestu
blaðið á
byko.is
Hvað segir
mamma?
Ég hef alltaf verið mjög stolt af
syni mínum. Hann er traustur,
heiðarlegur og með mjög
sterka réttlætiskennd,“ segir
Fanney Gunnarsdóttir, móðir
Björns Levís Gunnarssonar, al-
þingismanns.
Björn Leví hefur farið
mikinn í stjórnarandstöðu á
yfirstandandi þingi. Sérstaka
athygli hefur vakið spurninga-
flóð hans til framkvæmda-
valdsins í fyrirspurnatímum
þingmanna. Alls hefur Björn
Leví lagt fram 78 fyrirspurnir
á þinginu og hafa sumar vak-
ið þjóðarathygli, til dæmis
fyrirspurn hans varðandi hús-,
dvalar- og aksturkostnað þing-
manna sem varð til þess að
þjóðfélagið fór á hliðina um
tíma. Ekki eru þó allir á eitt
sáttir en andstæðingar Björns
Levís hafa sakað hann um að
sóa skattpeningum með fyrir-
spurnaflóðinu.
Fanney hlær dátt þegar hún
er spurð hvort Björn Leví hafi
verið fróðleiksfúst barn. „Já,
það er alveg hægt að segja það.
Hann stóð sig afar vel í námi og
ég sá hann eiginlega aldrei læra
heima. Ég var ekkert að velta
því of mikið fyrir mér fyrstu
árin því einkunnirnar voru
alltaf svo góðar,“ segir Fanney.
Hún segist þó hafa spurt son
sinn út í þetta þegar hann var
tólf ára gamall og þá hafi hann
sagst hlusta á kennarana í tíma
og klára að læra þar. „Hann
sagði að maður þyrfti bara að
skilja hlutina. Það er mjög eftir-
minnilegt,“ segir Fanney.
Hún segir að Björn Leví
hafi átt erfitt uppdráttar um
tíma í skóla. „Hann hefur alltaf
verið svolítið nörd og um tíma
var það ekki líklegt til vin-
sælda. Þegar hann kom síðan
í menntaskóla þá var allt í einu
orðið töff að vera nörd og þá fór
hann að blómstra,“ segir Fann-
ey.
Björn Leví hefur
alltaf verið
fróðleiksfús
Þingkona selur húsið á yfirverði
H
anna Katrín Friðriks son,
sem situr á Alþingi fyrir
Viðreisn, og eiginkona
hennar, Ragnhildur
Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi
Novator, seldu glæsilegt raðhús
sitt í Fossvogi á dögunum. Endan-
legt söluverð eignarinnar var 97
milljónir króna sem var einni
milljón króna hærra en ásett verð
þegar húsið var auglýst.
Hanna Katrín og Ragnhildur
keyptu húsið í apríl 2006 og hafa
því búið í Fossvoginum í rúm
tólf ár. Þar hefur þeim liðið vel ef
marka má orð Ragnhildar á Face-
book-síðu sinni þegar eignin var
auglýst til sölu í byrjun árs. „Þá
er fjölskyldan í Logalandinu farin
að hugsa sér til hreyfings og hús-
ið komið á sölu. Þetta er dýrðar-
innar hús (og garður!) og hér hef-
ur farið vel um okkur fjórar alla
grunnskólagöngu dætranna. Við
mælum með þessu fyrir ykkur eða
vini ykkar, sem hafa alltaf þráð að
búa á besta stað í Fossvogi,“ skrif-
aði Ragnhildur.
Húsið í Logalandinu er 231 fer-
metri að stærð og skiptist í fjögur
svefnherbergi, tvær stofur og tvö
baðherbergi. Hjónin keyptu húsið
á 67 milljónir króna á sínum tíma.
Það verður því nóg að gera
hjá Hönnu Katrínu og Ragnhildi
í sumar en þær eiga að afhenda
húsið í síðasta lagi þann 1. ágúst
næstkomandi. n