Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 2
Morgunblaðið/Ómar Kátína Hamrað er á mikilvægi þess að börn fari í mikilvægar sprautur. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ef þátttaka í bólusetningum er ekki betri en skráningar benda til getum við lent í vanda og sjúkdómahættan fer vaxandi,“ segir Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir í samtali við Morgunblaðið. Samkvæmt skýrslu sem sóttvarnalæknir birti í gær var þátt- taka í almennum bólusetningum 12 mánaða og fjögurra ára barna á Ís- landi í fyrra talsvert lakari en árið á undan. Hann segir að ef fram haldi sem horfi geti blossað hér upp sjúk- dómar sem ekki hafa sést um árabil. Í því samhengi má nefna að nú geis- ar mislingafaraldur í Evrópu og gætu stök tilfelli sést hér ef þátttöku hrakar. Við þessu þurfi því að bregð- ast. Tólf mánaða eru börn sprautuð til þess að fyrirbyggja kíghósta, stíf- krampa, barnaveiki, lömunarveiki, Hib-bakteríusýkingu og pneumó- kokkasýkingar. Fjögurra ára sprautan er svo gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta. 95% hlutfall væri ásættanleg mæting Sé sprautan við fjögurra ára aldur tekin sem dæmi þá var mæting í hana á síðasta ári 85% að meðaltali, þar af 87% á Vestfjörðum. Á Suð- urnesjum fór þetta hlutfall hins veg- ar niður í 79% og 80% á Suðurlandi. Á höfuðborgarsvæðinu var mæting- in 86%. Ásættanlegt væri hins vegar að hlutfallið væri um 95%, segir Þór- ólfur Guðnason. Sú er líka raunin viðvíkjandi mætingu í bólusetningu við þriggja og fimm mánaða aldur- inn. Gera þarf betur Ástæður fyrir minni þátttöku eru ekki ljósar, segir sóttvarnalæknir, en mestar líkur eru á að innköllunar- kerfi heilsugæslunnar fyrir börn á þessum aldri sé ekki í lagi, að mati sóttvarnalæknis. „Oft hendir til dæmis um eins árs aldurinn að börn séu veik þegar þau og foreldrarnir eru boðuð í sprautu og getur gleymst að hafa samband aftur. Þetta er ein hugsanleg skýring sem mér kemur í hug. Að minnsta kosti þarf að gera betur í öllu fyrir- byggjandi starfi og þetta förum við betur yfir með starfsfólki heilsu- gæslunnar á næstunni,“ sagði Þór- ólfur. Sjúkdómahættan fer vaxandi  Færri foreldrar mæta með börn í tólf mánaða og fjögurra ára sprautur  Innköllun heilsugæslunnar hugsanlega í ólagi  Fyrirbyggja á kíghósta, stífkrampa, barnaveiki, lömunarveiki og fleiri sjúkdóma 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. 29. september í 4 nætur Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Frá kr. 44.995 m/morgunmat PRAG Helgarferð á spottprís ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI á flugsæti m/gistingu FY RI R2 1 Allt að 39.950 kr. afsláttur á mann „Þetta var allt til gamans gert og rétt til þess að fá fisk í soðið. Aflinn fer til heimilis og fjölskyldu og af- ganginn fá vinir og vandamenn,“ segir Ágúst Guðmundsson. Hann býr í Vestmannaeyjum en er Strandamaður í húð og hár og fer oft á æskuslóðir sínar. Þar var hann um síðastliðna helgi og reri á sínu litla bátshorni frá Djúpavík fram á Reykjarfjörðinn. Hitti ljósmyndari Morgunblaðsins Ágúst þegar hann var að gera að afla dagsins í fjör- unni, rétt framan við gömlu síld- arverksmiðjuna. Með Ágústi var Gylfi Sigurðsson, smiður í Hafnar- firði, sem er einn fjölmargra sem sækja mikið vestur á Strandir til að afla sér lífsorku í stórbrotnu um- hverfinu á þessum slóðum. „Það togar alltaf í mig að fara norður á Strandir og æ meira eftir því sem ég eldist. Ég fer nú ekki langt, eitthvað út á fjörðinn sem var alveg spegilsléttur og fallegur um helgina. Þar renni ég fyrir fisk. Það er alltaf þorsk að fá, en hins vegar er minna af svartfugli, en hann veiddi ég gjarnan áður og finnst vera herramannsmatur,“ segir Ágúst. sbs@mbl.is Ágúst Guðmundsson Strandamaður rær út á spegilsléttan Reykjarfjörðinn á bátshorni sínu Morgunblaðið/Golli Sækir fisk í soðið í Djúpavík Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru nær allir kröfuhafar búnir að samþykkja planið eins og við höf- um lagt það upp,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykja- nesbæ. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar sam- þykkti á fundi sínum í gær aðgerðir vegna endurskipulagningar fjárhags bæjarins og Reykjaneshafnar. Reykjanesbær hefur fengið láns- loforð frá Lánasjóði sveitarfélaga upp á 3,6 milljarða króna. Lánsloforðinu fylgir það skilyrði að markmið aðlög- unaráætlunar bæjarins, sem sam- þykkt var í apríl, náist og að sam- komulag liggi fyrir við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um skil- yrði varðandi frekari lántökur á tímabili um- ræddrar aðlög- unaráætlunar. Eignarhalds- félaginu Fasteign verður skipt upp í tvö félög, annars vegar félag sem heldur utan um eignir sem tengj- ast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF1) og hins vegar félag sem held- ur utan um eignir sem ekki tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF2). Skuldir félaganna verða endurfjármagnaðar og gerðir við þau nýir leigusamningar. Hafi Reykja- nesbær ekki náð undir 150% lög- bundið skuldaviðmið í árslok 2022 getur sveitarfélagið nýtt sér sölurétt á öllu hlutafé í EFF2 til kröfuhafa fé- lagsins og þannig losað um skuld- bindingar til lengri tíma. Hluti af láni Reykjanesbæjar verð- ur endurlánaður til Reykjaneshafnar og mun nýtast til að greiða upp hluta skulda hafnarinnar. Ekki verða þó allar skuldir hafnarinnar greiddar upp heldur verður hluti þeirra endur- fjármagnaður með veði í lóðum hafn- arinnar, en sölu á lóðum er ætlað að standa undir greiðslu þeirra lána. „Það þarf mikið aðhald. Menn þurfa að vera með bein í nefinu og mega ekki missa sig í stórkostleg út- gjöld. Það eru kosningar framundan og auðvelt að falla í freistingar,“ segir Kjartan. Boða kaflaskil suður með sjó  Reykjanesbær fær 3,6 milljarða lánsvilyrði og hefur náð samkomulagi við flesta kröfuhafa  Mikils aðhalds þörf Kjartan Már Kjartansson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.