Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Sigurður Pálsson, skáld og rithöfundur, er látinn, 69 ára að aldri. Sigurður lést á líknardeild Landspít- alans sl. þriðjudag eft- ir erfið veikindi. Sigurður fæddist 30. júlí 1948 á Skinnastað í N-Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans voru Guðrún Elísabet Arn- órsdóttir húsmóðir og sr. Páll Þorleifsson prófastur. Hann lauk stúdents- prófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1967 og stundaði frönskunám í Toulouse og París. Þá nam hann leikhúsfræði og bókmenntir í Sorbonne. Sigurður lauk einnig námi í kvikmyndaleik- stjórn. Sigurður fékkst við ýmis störf í gegnum tíðina. Hann starfaði meðal annars sem fréttarit- ari, leiðsögumaður, kennari og vann auk þess við sjónvarp og kvikmyndir. Ritstörf og þýðingar ein- kenndu þó að mestu leyti ævistarf hans. Sigurður var forseti Alliance Française um skeið og formaður Rit- höfundasambands Ís- lands. Sigurður var einn af Listaskáldunum vondu 1976. Fjölmarg- ar ljóðabækur hafa birst á prenti eftir Sigurð, sú fyrsta kom út 1975 undir heitinu Ljóð vega salt. Ljóðabókin Ljóð námu völd var tilnefnd til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs árið 1993. Árið 2007 hlaut Sigurður Ís- lensku bókmenntaverðlaunin fyrir Minnisbók og hafði þá áður verið tilnefndur fyrir ljóðabækurnar Ljóðlínuskip (1995) og Ljóðtímaleit (2001). Sigurður hefur einnig ritað skáldsögur og fengist við leikrita- smíð, skrifað sjónvarps- og útvarps- handrit og óperutexta. Ljóðabækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg erlend tungumál, m.a. búlgörsku og kínversku. Sigurður hlaut fjölmargar við- urkenningar fyrir störf sín um æv- ina. Hann var valinn borgar- listamaður Reykjavíkurborgar á tímabilinu 1987-1990 og hlaut verð- laun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2016. Á nýársdag 2017 veitti forseti Íslands Sigurði heiðursmerki hinnar íslensku fálka- orðu fyrir framlag hans til íslenskra bókmennta og menningar. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Kristín Jóhannesdóttir kvik- myndaleikstjóri. Sonur þeirra er Jóhannes Páll. Andlát Sigurður Pálsson skáld Ingveldur Geirsdóttir Kristján H. Johannessen Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Stjórnmálaflokkar eru nú flestir komnir á fullt við að undirbúa kom- andi alþingiskosningar, nú þegar rétt um 5 vikur eru í settan kjördag. Morgunblaðið setti sig í samband við talsmenn þeirra flokka sem sæti eiga á Alþingi og spurði: Hver verða stóru kosningamálin? „Það er mikilvægt að mál sem verða til þess að ríkisstjórnin springur, þ.e.a.s. mál er snerta þol- endur kynferðisofbeldis, verði til umræðu. Að mínu mati er mikilvægt að þessi mikla atburðarás leiði til þess að hér skapist raunveruleg við- horfsbreyting í garð þessa mála- flokks og að hann komist inn í póli- tíska umræðu,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, og bætir við að skarpar víg- línur hafi myndast þann stutta tíma sem ríkisstjórn Bjarna Benedikts- sonar sat við völd. „Ríkisstjórnin stóð ekki við vænt- ingar um að ráðast ætti í raunveru- lega uppbyggingu á heilbrigðisþjón- ustu, menntakerfi og velferðar- kerfi,“ segir Katrín og heldur áfram: „Nú þegar hvergi hefur verið sótt fram á þessum sviðum vil ég einmitt meina að þessi mál verði einnig ofan á. […] Við viljum sjá breytingu á rík- isstjórnarstefnu og félagshyggju- stjórn að loknum kosningum.“ Klára Evópusambandsmálið Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, segir að kosninga- málið verði barátta fyrir mannsæm- andi lífi fyrir alla Íslendinga, betra velferðarkerfi og félagslegur stöðug- leiki. „Það þarf líka að leggja mikla áherslu á að mæta framtíðinni með kraftmiklu menntakerfi. Síðan eru réttlætismál eins og að þjóðin fái að greiða atkvæði um áframhaldandi viðræður við ESB, það þarf að hnika stjórnarskránni áfram og síðan verða kosningarnar að fá að snúast um raunverulega ástæðu fyrir því að önnur ríkisstjórnin á einu ári fellur. Þjóðin þarf að ræða mál eins og heið- arleika og gegnsæi, annars komumst við aldrei út úr þessu vantrausti sem nú ríkir á milli þjóðarinnar og Al- þingis,“ segir Logi. Sigurður Ingi Jóhannsson, for- maður Framsóknarflokksins, segir kosningarnar m.a. munu snúast um aukinn stuðning við þá sem verst hafa það í samfélaginu. „Mál eins og að aldraðir geti verið úti á vinnu- markaði og tekið virkan þátt í sam- félaginu,“ segir hann og bætir við að einnig verði áhersla lögð á heilbrigð- ismál, menntamál. „Ég held það verði einnig rætt um ferðaþjón- ustuna og náttúruna sem orðið hefur fyrir miklum áhrifum af þessari stærstu atvinnugrein okkar,“ segir hann og bendir á að brýnt sé að ferðaþjónustan verði sjálfbær. „Þeg- ar nær dregur kosningum skýrast línur enn frekar og áherslan færist yfir á fáein mál,“ segir hann. Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir aðdraganda og ástæðu stjórnarslita hljóta að verða stórt kosningamál. „Í ljósi þessi að við vorum að slíta stjórnarstarfi, rétt fyrir helgi, út af grunnprinsippmál- um um vinnubrögð og gagnsæi, þá er það mjög ofarlega í huga.“ Þá segjast Píratar vera að vinna í sínum helstu stefnumálum um þess- ar mundir og verða þau kynnt á næstu dögum í endanlegri mynd. Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta Inga Sæland Ástvaldsdóttir, for- maður Flokks fólksins, næði sam- kvæmt könnunum mönnum inn á þing. Hún segir flokkinn berjast fyr- ir almannahag. „Við viljum útrýma fátækt. Hún er þjóðarskömm. Við viljum taka til hendinni í sambandi við húsnæðismál, afnema frítekju- markið með öllu og verðtryggingu og okurvexti auk þess að við viljum gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu.“ Ekki náðist í Bjarna Benedikts- son, formann Sjálfstæðisflokksins, og Benedikt Jóhannesson, formann Viðreisnar, við gerð fréttar. Aðdragandi slita kosningamál  Menntamál, heilbrigðismál og ferðaþjónustan eru meðal þess sem formenn flokka nefna sem kosn- ingamál  Ræða þarf það mál sem leiddi til stjórnarslita  Fátækt ofarlega á blaði Flokks fólksins Morgunblaðið/Eggert Fundahöld Þingflokksformenn allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi hittu forseta þingsins í gærdag. BUDAPEST Í UNGVERJALANDI GDANSK Í PÓLLANDI WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu Ungverja má rekja hundurðir ára aftur í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands og þó víða væri leitað. Saga hennar nær aftur til ársins 997. Þetta er borg með mikla sögu en hún var helsta vígi Hansakaupmanna i Evrópu. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir hafa gert borgina við flóann að vinsælustu ferðamannborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI Miðaldaborg fra 12 öld. Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GLÆSILEGAR BORGIR Í AUSTUR-EVRÓPU Við bjóðum uppá glæsilegar borgir i A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 3-4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði i mat og drykk. Þá eru hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki svo og kvöldverði/veislur i höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum Getum boðið mjög gott verð á flugi, hótelum og rútu, svo og íslenskan fararstjóra ef þess er óskað. Nokkur dæmium borgir semvið bjóðum uppá Kristján Þór Júlíusson mennta- málaráðherra og fulltrúar Lands- samtaka íslenskra stúdenta undirrituðu í gær styrktarsamn- ing til eins árs. Með samningi þessum er ætlun menntamála- ráðuneytisins að skapa og styðja við sterkan samstarfsvettvang há- skólastúdenta sem sé milli þeirra og stjórnvalda í öllum umræðum um háskólamál. Landssamtök íslenskra stúd- enta (LÍS) eru samtök há- skólanema á Íslandi og erlendis; regnhlífar- samtök átta að- ildarfélaga sem stúdentar í há- skólum jafnt heima og er- lendis eru skráðir í. Hlut- verk samtak- anna er að standa vörð um hagsmuni stúd- enta og stilla saman strengi fé- laga þeirra. Styðja við samstarfsvettvang stúdenta Kristján Þór Júlíusson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Spínatið kemur óþvegið til landsins í plastpokum frá Spáni og veitinga- staðurinn notaði þetta spínat óþveg- ið. En nú hafa þeir breytt verklagi sínu,“ segir Óskar Ísfeld Sigurðsson, deildarstjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Morgunblaðið greindi frá því á þriðjudag að dautt nagdýr hefði fundist í salati sem keypt var á veit- ingastað. Í ljós hefur komið að um er að ræða húsamús, 6,2 grömm að þyngd. Sérfræðingur hefur rann- sakað dýrið. Ekki er talið líklegt að hægt verði að skera úr um hvort dýr- ið sé íslenskt eða erlent. Deilt hefur verið um hvenær músin komst í sal- atið. Af orðum Óskars má ráða að Heilbrigðiseftirlitið telji að músin hafi komið með spínatinu frá Spáni. Einar Ásgeirsson, einn eigenda veit- ingastaðarins Fresco, er ekki sama sinnis. „Músin kom ekkert með spí- natinu, það eru alveg hreinar línur. Við erum með vél sem þvær salat og músin fer ekkert í gegnum það sigti.“ Halldór Jökull Ragnarsson, gæða- stjóri hjá Innnes, segir að allt spínat hafi verið innkallað og því verði farg- að á föstudag. Ekki standi til að endurskoða verklag hjá fyrirtækinu. „Við segjum við okkar viðskipta- vini í þessu fagi að þeir eigi að skola og þvo vöruna. Sumir segja að þetta sé það gott að þess sé ekki þörf. Þetta er vissulega gæðavara en það er alltaf betra að hafa vaðið fyrir neð- an sig.“ Deilt um það hvenær mús komst í salat á veitingastað  Heilbrigðiseftirlitið segir að spínat hafi ekki verið þvegið Mynd/Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur Salat Eigandi Fresco segir óhugs- andi að mús hafi komið af staðnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.