Morgunblaðið - 21.09.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fulltrúar ASÍ, ríkisins og Reykjavíkurborgar gengu í
fyrradag frá samkomulagi sem tryggir félagsmönnum í
ASÍ sem starfa hjá ríki og borg sambærileg lífeyriskjör
og opinberir starfsmenn njóta eftir breytingarnar sem
gerðar hafa verið á lífeyrismálum opinberra starfs-
manna. Samkomulagið nær til þúsunda launamanna en
alls eru um 12 þúsund launamenn í aðildarfélögum ASÍ
við störf hjá ríkinu og sveitarfélögum. Þeir njóta þó ekki
allir þessara breytinga því önnur sveitarfélög en
Reykjavíkurborg eru ekki aðilar að þessu samkomulagi
og gagnrýnir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, þau harð-
lega fyrir að vera ekki með og tryggja ekki starfsmönn-
um þeirra sem eru í aðildarfélögum ASÍ sambærileg rétt-
indi.
Fá 5,85% sérstakt iðgjald
Við breytingarnar á lífeyrismálum opinberra starfs-
manna var gengið frá því að sérstakt framlag til lífeyris-
aukasjóða A-deilda LSR og Brúar standi undir óbreytt-
um réttindum núverandi sjóðfélaga sem eru opinberir
starfsmenn. Ágreiningur var hins vegar um hvernig
tryggja ætti starfsfólki innan vébanda ASÍ, sem starfa
hjá ríki og sveitarfélögum, sambærilega uppbót. Úr því
hefur nú verið leyst fyrir þá sem starfa hjá ríkinu og
Reykjavíkurborg.
Byggt er á tryggingafræðilegu mati LSR á hvert sé
ígildi þessara breytinga þegar þær eru reiknaðar sem
sérstakt iðgjald launagreiðanda og varð niðurstaðan sú
að iðgjald vegna ársins 2017 skuli vera 5,85%. Fá því ASÍ
starfsmenn hjá ríki og borg þetta iðgjald greitt í lífeyris-
sjóð. Það er breytilegt og endurmetið á hverju ári.
„Um er að ræða sólarlagsákvæði þannig að nýir starfs-
menn hjá okkur líkt og nýir starfsmenn hjá ríki og
sveitarfélögum fara inn í nýtt kerfi en þetta snérist um að
jafna stöðu þeirra starfsmanna sem starfa í dag hjá ríki
og Reykjavíkurborg,“ segir Gylfi.
Hann segir að því miður hafi önnur sveitarfélög en
Reykjavíkurborg ekki talið sig skuldbundin til þess að
gera þessar breytingar.
Sveitarfélögum stefnt fyrir félagsdóm?
,,Það er miður vegna þess að í kjarasamningunum
haustið 2015 í tengslum við rammasamkomulagið (Sal-
ek), þá var tekinn frá kostnaður gagnvart launabreyt-
ingum til að fjármagna þessa aðgerð þ.m.t. hjá sveitar-
félögunum. Því er í sjálfu sér ekki andmælt að við höfum
skilið eftir kostnaðarsvigrúm hjá sveitarfélögunum til að
mæta þessu en þau telja hins vegar ekki að ramma-
samkomulagið þar sem fjallað er um jöfnun lífeyris-
réttinda feli í sér einhverja skuldbindingu gagnvart þess-
um félögum okkar. Það er alveg ljóst að ríki og
Reykjavíkurborg töldu sig hafa þessa skuldbindingu og
gengu frá henni með þessum hætti og erum við núna að
velta því fyrir okkur að stefna sveitarfélögunum fyrir fé-
lagsdóm,“ segir hann.
ASÍ semur við ríki og
borgina um lífeyrismál
Önnur sveitarfélög taka
ekki þátt í samkomulaginu
„Framganga sveitarfélaganna og
forystumanna þeirra hefur valdið
verulegum trúnaðarbresti í sam-
skiptum fulltrúa aðildarfélaga ASÍ
og samninganefndar sveitarfélag-
anna,“ segir Gylfi Arnbjörnsson.
„Við skildum það svo að það yrði séð
til þess að sveitarfélögin myndu
ekki mismuna starfsmönnum sínum
við þessa aðgerð en nú er það niður-
staða sveitarfélaganna að ef viðkomandi er fé-
lagsmaður í ASÍ, þá njóti hann ekki jöfnunar lífeyr-
isréttindanna. Það er alveg ljóst að þegar
kjarasamningar losna næst þá verður tekist mjög
harkalega á um þetta,“ segir Gylfi.
Veldur trúnaðarbresti
GAGNRÝNIR SVEITARFÉLÖG HARÐLEGA
Gylfi
Arnbjörnsson
Glæsiverk til sölu
Ármúla 36 • 108 Reykjavík • Sími 568 3890
SMIÐJAN
Listhús - Innrömmun
Opið alla virka daga kl. 11-17, laugardaga kl. 12-14.
Leitum að verkum
gömlu meistaranna
fyrir næstu sýningu okkar
Þorvaldur Skúlason Þorvaldur Skúlason
Hafsteinn Austmann Karl Kvaran
Hágæða
innrömmun
27 ára reynsla
Magnús Heimir Jónasson
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Formenn allra stjórnmálaflokka sem
eiga fulltrúa á Alþingi funduðu að
nýju með Unni Brá Konráðsdóttur,
forseta Alþingis, í gær. Enn hefur
engin niðurstaða fengist í hvaða þing-
mál verður reynt að klára áður en
þingi er frestað á kjördag, 28. októ-
ber. Meðal þeirra þingmála sem enn
er verið að ræða en engin samstaða
hefur náðst um eru: lögfesting not-
endastýrðrar persónulegrar aðstoðar
(NPA), breytingar á útlendingalög-
um, breytingar á lögum tengdum
uppreist æru ásamt breytingum á
stjórnarskrá.
Engin þingmál eru komin í nefndir
og flækir það stöðuna en fjárlög voru
eina þingmálið sem var komið til
fyrstu umræðu þegar slitnaði upp úr
ríkisstjórnarsamstarfinu.
Vinna áfram í ákveðnum málum
Unnur Brá segir að eina niður-
staða fundarins í gær hafi verið að
það þurfi að halda áfram að vinna í
málunum, en það sé jafnframt já-
kvætt að menn séu að ræða saman.
„Það er ekki nein önnur niðurstaða af
þessum fundi en sú að við erum enn
að vinna í ákveðnum málum til að
kanna hvort við getum náð saman um
að afgreiða einhver mál fyrir þing-
frestun,“ segir Unnur sem er bjart-
sýn á að niðurstaða náist í einhverj-
um málum.
„Við fundum aftur á föstudaginn
og tökum stöðuna þá og könnum
hvort við séum komin á þann stað að
við getum tekið ákvarðanir.“
Unnur Brá gat ekki sagt til um
hvort þingfundur yrði boðaður að
fundi loknum á föstudaginn.
Stjórnarskráin enn á borðinu
Logi Már Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir að ennþá sé
verið að skoða breytingar á stjórnar-
skránni en aðspurður segist hann
ekki endilega bjartsýnn á að niður-
staða náist í þeim málum. Í um-
ræðunni hefur meðal annars verið
rætt um að breyta auðlindarákvæði
stjórnarskrárinnar. Ásamt því hafa
Píratar lagt til að breyta stjórnar-
skránni með þeim hætti að hægt verði
að breyta henni í framtíðinni með að-
komu kjósenda án þess að rjúfa þing
og boða til þingkosninga. Spurður um
hvort hann væri bjartsýnn á að hægt
væri að ná samkomulagi, þinga stutt-
lega og fara í kosningabaráttu, segir
Logi ólíklegt að hægt sé að ná sam-
komulagi sem allir geti fellt sig við og
bætir við að það megi ekki gerast að
engin mál verði afgreidd á þinginu.
Ágreiningur um lykilmál
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar
framtíðar, segir að fundurinn hafi
verið góður en ágreiningur sé enn
uppi. „Það er ágreiningur um hvernig
á að ljúka þinghaldi, stjórnarslit voru
bara fyrir nokkrum dögum,“ segir
Óttarr og bætir við að verið sé að
reyna að ná samstöðu um lykilmálin.
„Stjórnin lagði fram heilmikla þing-
málaskrá og mörg mál lágu fyrir
þannig að það sem við erum að reyna,
formenn flokkanna, er að ná einhverri
samstöðu um nokkur lykilmál sem
mega ekki bíða.“ Hann segist jafn-
framt hæfilega bjartsýnn á að hægt
verði að ná samstöðu í einhverjum
málum. „Ég hef lagt áherslu á málefni
varðandi útlendingalög, varðandi
NPA og einhvers konar útfærslur í að
þoka stjórnarskrármálunum áfram
en það eru málefni þarna til umræðu
eins varðandi uppreist æru,“ segir
Óttarr og bætir við að ágreiningurinn
sé ekki djúpstæður en það sé eftir að
„lenda“ málunum.
Samtölin þróast í rétta átt
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði samtölin
milli formanna flokkanna hafa þróast
aðeins með gærdeginum. „Við erum
undir góðri stjórn forseta þingsins að
reyna að afmarka örfá mál sem við
myndum funda um á þinginu,“ sagði
Bjarni Benediktsson. „Þetta eru mál
sem varða framtíðarverklag við
stjórnarskrána. Við erum að taka til
umfjöllunar hugmyndir sem varða út-
lendingalögin, hvort það sé hægt að
gera eitthvað í því. Það er verið að
ræða mál dagsins, uppreist æru. Það
skyldi engan undra, enda hefur dóms-
málaráðherra boðað að þar þurfi að
gera breytingar,“ sagði Bjarni til að
taka dæmi um þau mál sem unnið var
að á fundinum. Hann sagði nauðsyn-
legt að tryggja áframhaldandi vinnu
með þau mál sem ekki verða sam-
þykkt á þessu þingi, meðal annars
NPA, svo hægt væri að lögfesta það
fyrir áramót. Bjarni lagði fram minn-
isblað á fundi flokksformannanna í
gær um að stjórnarskráin yrði endur-
skoðuð í áföngum á næstu þremur
kjörtímabilum og hefur sú hugmynd
lagst ágætlega í formenn flestra
flokka. Benedikt Jóhannesson, for-
maður Viðreisnar, og Katrín Jakobs-
dóttir, formaður Vinstri grænna, gáfu
ekki kost á viðtölum eftir fundinn.
Engin niðurstaða í augsýn
eftir fund forseta Alþingis
Unnur Brá boðar formenn allra þingflokka á þriðja fundinn á föstudaginn
Morgunblaðið/Eggert
Fundað Unnur Brá vonast til að ná samstöðu meðal flokka á föstudaginn.
„Við eigum að
úrvalsfólki að
ganga og ég held
að þetta verði
æsispennandi.
Lýðræðið ræður
hjá okkur eins og
alltaf,“ segir
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir,
þingmaður
Pírata.
Píratar hafa tilkynnt að haldin
verði prófkjör um land allt fyrir
komandi alþingiskosningar. Opnað
hefur verið fyrir skráningar á vef-
síðu flokksins.
Allir geta boðið sig fram að því
gefnu að þeir hafi skráð sig í Pí-
rata. Atkvæðisrétt hafa þeir sem
eru búnir að vera skráðir í flokkinn
í 30 daga og því geta nýir félagar
ekki tekið þátt.
„Nei, því miður. Kosningakerfið
okkar hefur alltaf verið þannig og
það er bara of stuttur tími til að
breyta því. En það eru allir kjör-
gengir,“ segir Þórhildur Sunna.
Framboðsfrestur rennur út á
laugardag klukkan 15 en sama dag
hefst kosning og stendur hún í eina
viku.
Reykjavíkurkjördæmin verða
með sameiginlegt framboð. Í
Reykjavík, Suðvesturkjördæmi og
Norðvesturkjördæmi verður opið
prófkjör þar sem allir skráðir Pí-
ratar á landsvísu geta kosið.
Í Norðausturkjördæmi og Suður-
kjördæmi verður lokað prófkjör
þar sem aðeins skráðir Píratar í
hvoru kjördæmi fyrir sig hafa at-
kvæðisrétt. hdm@mbl.is
Píratar
boða til
prófkjörs
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
„Lýðræðið ræður“