Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Þeir sem töpuðu forsetakosning-unum í Bandaríkjunum hafa
þurft óvenjulega langan tíma til að
kyngja þeirri niðurstöðu. Hillary
Clinton hefur gefið
út bókina Hvað
gerðist? Einfalda
svarið er „Trump
vann“. En það pass-
ar ekki í bók sem
þegar hefur selst í
300.000 eintökum.
Aðdáendum Hillary
er létt því bókin
staðfestir að hún
sjálf hafði ekkert
með ósigurinn að
gera.
Miðað við hatriðá Trump vestra, ekki síst í
hópi hans gömlu flokksfélaga, demó-
krata, getur karlinn ekki gert neitt
sem verðskuldar ekki fordæmingu.
Ræða hans hjá Sameinuðu þjóð-unum hefur þó mælst furðu vel
fyrir. Ekki síst þegar haft er í huga
að hann taldi hugsanlega nauðsyn-
legt að tortíma Norður-Kóreu. En
hafa verður í huga að Bill Clinton
boðaði þetta sama fyrir tæpum 20
árum.
Nokkrir „erlendir leiðtogar“hafa þegar fordæmt ræðu
Trumps, þeirra á meðal talsmenn
Norður-Kóreu.
Mbl.is segir frá því að það hafiutanríkisráðherra Írans einn-
ig gert og sagt ræðuna vera „fávísan
hatursáróður“. Reglulega eru sýnd-
ar myndir af stórfundum æðsta
valdamanns Írans, ayatollah Khame-
nei, þar sem þúsundir hrópa í kór
kröfu um að leggja Bandaríkin í
rúst. Þá segir í fréttum að Wallst-
röm, utanríkisráðherra Svía, hafi
sagt:
„Þetta var röng ræða, á röngum
tíma, fyrir ranga áheyrendur.“
Kannski þarf Karl Gústaf 16. að
draga ráðherrann aftur að landi?
Trump
Kunnir kappar
STAKSTEINAR
Wallström
Veður víða um heim 20.9., kl. 18.00
Reykjavík 8 súld
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 10 rigning
Nuuk 4 skýjað
Þórshöfn 11 rigning
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 14 léttskýjað
Stokkhólmur 11 skýjað
Helsinki 10 skýjað
Lúxemborg 14 léttskýjað
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 15 rigning
Glasgow 16 rigning
London 16 skýjað
París 17 alskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 14 skúrir
Berlín 15 skýjað
Vín 13 rigning
Moskva 16 léttskýjað
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 20 heiðskírt
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 16 léttskýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 21 alskýjað
Chicago 25 heiðskírt
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:09 19:33
ÍSAFJÖRÐUR 7:13 19:39
SIGLUFJÖRÐUR 6:56 19:22
DJÚPIVOGUR 6:39 19:03
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Dómsmálaráðuneytinu hefur borist
41 umsókn um 8 stöður héraðsdóm-
ara sem auglýstar voru lausar til um-
sóknar 1. september sl. Umsóknar-
frestur rann út 18. september.
Í frétt á heimasíðu ráðuneytisins
kemur fram að Sigríður Á. Andersen
dómsmálaráð-
herra hafi ákveð-
ið að víkja sæti í
málinu vegna um-
sóknar Ástráðs
Haraldssonar
hæstaréttarlög-
manns. Hún telji
að fyrir hendi séu
aðstæður sem séu
til þess fallnar að
umsækjendur
dragi óhlut-
drægni hennar i efa. Hefur ráðherra
óskað eftir því við forsætisráðherra
að öðrum ráðherra í ríkisstjórninni
verði falin meðferð málsins.
Þegar umsóknir liggja fyrir tekur
til starfa dómnefnd til að fjalla um
hæfni umsækjenda. Nefndina skipa:
Gunnlaugur Claessen, fyrrverandi
hæstaréttardómari, formaður,
Kristín Benediktsdóttir dósent,
Ragnhildur Helgadóttir lögfræðing-
ur, Ragnheiður Harðardóttir hér-
aðsdómari og Óskar Sigurðsson
hæstaréttarlögmaður.
Varamenn eru: Greta Baldurs-
dóttir hæstaréttardómari, Valtýr
Sigurðsson hæstaréttarlögmaður,
Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi
ráðherra, Halldór Halldórsson dóm-
stjóri og Guðrún Björk Bjarnadóttir
héraðsdómslögmaður.
Þetta er sú sama nefnd og fjallaði
um umsækjendur um 15 dómara-
embætti í Landsrétti. Þá lýstu fjórir
aðalmenn sig vanhæfa og tóku vara-
menn sæti þeirra. Nú verður kannað
hvort einhverjir nefndarmenn þurfi
að víkja sæti vegna vanhæfis. Það
verður að teljast líklegt því 37 sóttu
um embætti í Landsrétti en umsækj-
endur nú eru 41. Nefndin tók sér tvo
og hálfan mánuð til að fara yfir um-
sóknir dómara við Landsrétt.
Umsækjendur nú eru með fjöl-
breyttan bakgrunn. Þarna er meðal
annars að finna 10 hæstaréttarlög-
menn, 10 héraðsdómslögmenn og 8
aðstoðarmenn dómara.
Flest eru í Reykjavík
Embættin átta sem um ræðir eru:
Eitt embætti dómara sem hafa mun
starfsstöð við Héraðsdóm Vestfjarða
en sinna störfum við alla héraðsdóm-
stólana eftir ákvörðun dómstólaráðs
og jafnframt vera dómstjóri í Hér-
aðsdómi Vestfjarða. Eitt embætti
dómara sem hafa mun starfsstöð við
Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna
störfum við alla héraðsdómstólana
og embætti sex dómara með fast
sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Skipað verður í flest embættin frá og
með 1. janúar 2018. Fyrr í embættið
á Vestfjörðum reynist það mögulegt.
Dómnefnd mun
meta hæfni 41
umsækjanda
Dómsmálaráðherra víkur sæti
Morgunblaðið/Þorkell
Héraðsdómur Flestir nýju dóm-
aranna munu starfa í Reykjavík.
Sigríður Á.
Andersen
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Aðventuprýði í Prag
Í þessari skemmtilegu aðventuferð gistum við í þremur heillandi
borgum. Í hverri þeirra kynnumst við fagurlega skreyttum
jólamörkuðum með fjölbreyttum varningi og sýnishorni af því
dæmigerða í mat og drykk heimamanna.Við hefjum ferðina í
Pilsen í Tékklandi, förum svo til heimsborginnar Prag og endum
ferðina í Nürnberg í Þýskalandi.
Verð: 186.600 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
2. - 9. desember Fararstjóri: Pavel Manásek
Íslendingar
geta nú sótt um
vegabréf í
sendiráði Ís-
lands í París,
Tókýó og aðal-
ræðisskrifstof-
unni í New
York. Þetta
kemur fram í
tilkynningu frá utanríkisráðuneyt-
inu.
Hingað til hefur búnaður verið til
staðar í sendiráðum Íslands í Kaup-
mannahöfn, Osló, Stokkhólmi, Lond-
on, Berlín, Washington D.C. og Pek-
ing. Nú er því hægt að sækja um
vegabréf á 10 stöðum í heiminum,
utan Íslands.
Útgáfa vegabréfa fer í gegnum
Þjóðskrá á Íslandi og er almennur
afgreiðslutími þeirra um þrjár vikur.
Íslendingar með skráða búsetu í
erlendum ríkjum þar sem íslenskt
sendiráð er starfrækt eru sam-
kvæmt Þjóðskrá 41.584 talsins og
4.808 í ríkjum þar sem ekki er sendi-
ráð.
Auka þjónustuna