Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Fegurðin
kemur
innan
frá
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Str.
38-58
Nýjar yfirhafnir
Nýjar haustvörur
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Blússa
kr. 5.990
Peysa með
stroffkraga
kr. 7.400
- 4 litir
Bolur
kr. 7.900
Rúllukraga-
peysa
kr. 7.400
- 4 litir
Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.is
Laugavegi 63, Skipholti 29b • S. 551 4422
Frábær verð
(sömu og á hinum
norðurlöndunum)
Skoðið laxdal.is/MysticAmber
Ný haustlína frá
Nýjar haustvörur
Meyjarnar
Mjódd | sími 553 3305
NÝJAR
VÖRUR
ÚTSÖLULOK
laugardaginn 23. sept.
15% auka afsláttur af útsöluvörum
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun Allt um sjávarútveg
Árlegu átaksverkefni Bleiku slauf-
unnar verður hleypt af stokkunum
30. september næstkomandi en
degi fyrr verður útlit hennar þetta
árið opinberuð. Hins vegar hefur
Krabbameinsfélag Íslands hafið
forsölu á Bleiku slaufunni og geta
þeir sem það kjósa fengið hana
senda í pósti til sín fyrir mán-
aðamót.
Hönnuður slaufunnar þetta árið
er Ása Gunnlaugsdóttir, hönnuður
og gullsmiður. Samkeppni var hald-
in um útlit slaufunnar og er það í
sjötta sinn sem það er gert. Er sam-
keppnin afrakstur samstarfs
Krabbameinsfélagsins og Félags ís-
lenskra gullsmiða. Alls bárust níu
tillögur í keppnina í ár og segir í til-
kynningu frá Krabbameinsfélaginu
að afar erfitt hafi reynst að velja úr
innsendum tillögum enda hafi þær
allar verið mjög metnaðarfullar.
Hönnun Bleika slaufan þótti vel heppnuð í
fyrra. Spenna er fyrir nýju slaufunni.
Slaufan til styrktar
ráðgjafarþjónustu
Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær
úrskurð héraðsdóms um að móðir
skuli sæta nálgunarbanni í sex vikur
gagnvart dóttur sinni og ekki koma í
50 metra fjarlægð frá dvalarstað
dótturinnar, veita henni eftirför,
heimsækja eða nálgast á almanna-
færi. Þá má hún heldur ekki setja
sig í samband við dótturina með
símtölum, tölvupósti eða öðrum
hætti.
Í úrskuði héraðsdóms kemur
fram að dóttirin hafi verið vistuð
tímabundið utan heimilis á grund-
velli barnaverndarlaga, en í grein-
argerð lögreglu sem hefur hafið
rannsókn á meintu viðvarandi and-
legu og líkamlegu ofbeldi móður-
innar gegn dótturinni kemur fram
að um sé að ræða barsmíðar með
opnum lófa eða krepptum hnefa og
hafi móðirin leitast við að höggin
lentu í andliti brotaþola.
Bæði móðirin og sambýlismaður
hennar sem hafði verið tilgreindur
sem vitni þvertaka fyrir að ofbeldi
hafi átt sér stað. Aftur á móti stað-
festi vinkona dótturinnar að ofbeldi
hefði átt sér stað þegar hún hefði
verið í heimsókn.
Áður hafa barnaverndaryfirvöld
vistað hálfsystur dótturinnar utan
heimilis. Þá segir að móðirin og
sambýlismaðurinn hafi þrátt fyrir að
börnin hafi verið vistuð utan heimilis
reynt að nálgast þau á þeim stað þar
sem þau dvelja til að sækja þau.
Fluttu til landsins þremur árum
Mæðgurnar fluttust til Íslands
fyrir þremur árum og greindi dótt-
irin frá því að samband þeirra hefði
aldrei verið gott og móðirin meðal
annars „lamið brotaþola [dótturina]
í klessu og ekki leyft henni að fara í
skóla eftir það til að koma í veg fyrir
að marblettir sem hún hefði fengið
sæjust og hefði slíkt gerst nokkrum
sinnum.“ Ástandið hefði batnað þeg-
ar þær fluttu til Íslands, en svo
versnað að nýju.
Nálgunarbann gegn móður