Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 16
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stefnt er að því að starfsemi Haf- rannsóknastofnunar geti flutt í nýtt hús við Fornubúðir 5 í Hafnarfirði í ársbyrjun 2019, en áætlað er að þessi áfangi hússins rísi á um 15 mánuðum. Reiknað er með að jarð- vinna við bygginguna geti hafist upp úr næstu mánaðamótum eða um leið og framkvæmdaleyfi verður veitt. Bygging hússins var sam- þykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur á fundi skipulags- og bygg- ingarráðs Hafnarfjarðar á þriðju- dag, en Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð mynda meirihluta í bæjarfélaginu. Það er Fornubúðir eignarhalds- félag sem byggir húsið og leigir Hafrannsóknastofnun til 25 ára. Jón Rúnar Halldórsson, forsvars- maður félagsins, segir mikilvægt fyrir Hafnarfjörð að fá þennan stóra vinnustað í bæinn og um leið eina af undirstöðustofnunum sam- félagsins. Eins og um samsetta röð minni bygginga sé að ræða Hafrannsóknastofnun kom að þarfagreiningu og fyrirkomulagi í húsnæðinu, sem er fimm hæða hátt og tengist eldri skemmu þar sem verður aðstaða fyrir útgerð rann- sóknaskipa. Í útboðslýsingu var reiknað með 112 starfsmönnum í húsinu, en eftir því sem verkefnið þróaðist var á endanum miðað við 140 störf. Batteríið Arkitektar ehf. hanna húsið og í greinargerð deiliskipu- lags fyrir Fornubúðir 5 segir meðal annars að útlit byggingar að höfn- inni skuli vera brotið upp eins og um samsetta röð minni bygginga sé að ræða. Hver húshluti skuli að há- marki vera 15 metra breiður og í mismunandi meginlit. Jarðhæðin að höfninni skeri sig þó frá efri hæðum í lit. Við val á litum hafi arkitektar horft til nokkurra bygginga við höfnina sem eru í jarðlitum og tóna vel við þekkta litanotkun víða í bænum, einkum í gamla bænum. Fordæmisgefandi bygging Í bókun fulltrúa Samfylkingar- innar og VG á fundi skipulags- og byggingarráðs á þriðjudag kemur fram að fulltrúar minnihlutans styðja komu Hafrannsóknastofnun- ar í Hafnarfjörð, en geti ekki sam- þykkt þessa nýja tillögu. „Byggingin verður fordæmisgef- andi fyrir hafnarsvæðið. Auk þess verður að hafa í huga að enn á eftir að fara í opna hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Flensborgar- hafnar. Það er alveg ljóst að mál Fornubúðar 5 verður að taka eitt- hvert tillit til framtíðarskipulags Flensborgarhafnar. Nýja deili- skipulagið segir einungis til um há- mark byggingarmagns en ekki hvernig eigi að fullnýta bygging- arreitinn. Minnihlutinn leggur til að ný til- laga verði unnin sem tekur mið af fyrirliggjandi skipulagslýsingu Flensborgarhafnar. Í henni segir að þar skuli byggja „Lágreistar bygg- ingar sem falla vel að aðliggjandi byggð“. Auk þess er kveðið á um að byggingarmagn og hæð nýrrar byggðar á svæðinu verði aukið í góðri sátt við aðliggjandi byggð,“ segir í bókun minnihlutans. Óskiljanleg afstaða Í bókun fulltrúa Bjartrar fram- tíðar og Sjálfstæðisflokks segir meðal annars: „Fulltrúar Bjartrar Framtíðar og Sjálfstæðisflokks minna á að í öllum ferli skipulagsins hafa fulltrúar minnihlutans í skipu- lags- og byggingarráði tekið þátt í umræðum og ákvarðanatöku um skipulag Fornubúða 5 án athuga- semda og er því þessi afstaða þeirra í árslöngu ferli um skipulag Flens- borgarhafnar óskiljanleg. Þegar verið að er að breyta deili- skipulagi – svo koma megi fyrir frekara byggingarmagni er mikil- vægt að horfa til framtíðar og eins heildstætt og hægt er. Fyrstu skrefin í frekari uppbyggingu fyrir höfnina liggja í lýsingu fyrir Flens- borgarhöfn og væntingar okkar kjörna fulltrúa eru því miklar um að vel takist til með uppbyggingu á höfninni í heild sinni, enda er höfnin mikilvæg í sjálfsmynd Hafnfirðinga. Hér eru tekin fyrstu skref í þess- ari uppbyggingu með tilkomu Haf- rannsóknastofnunar, þar sem áhersla á uppbrot, opnar götuhliðar og uppbyggingu við hafnarmann- virki haldast í hendur.“ Byggt yfir Hafró við Fornubúðir  Húsið á að vera tilbúið til notkunar í ársbyrjun 2019  Skiptar skoðanir í skipulags- og byggingarráði Hafnarfjarðar  Útlit byggingar brotið upp með mismunandi litum  Mikilvægt fyrir bæjarfélagið Tölvumyndir/Batteríið Arkitektar ehf. Hafnarfjörður Séð af Strandgötunni yfir á Fornubúðir þar sem húsnæði fyrir Hafrannsóknastofnun á að rísa á næstu fimmtán mánuðum á hafnarsvæðinu. Fornubúðir Um eitt hús er að ræða, en mismunandi litir eru notaðir til að brjóta útlit þess upp. Húsið verður fimm hæðir og tengist eldri skemmu. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Abena hjálparvörurnar við þvagleka fást í Rekstrarlandi og sérfræðingar okkar aðstoða við rétt val á þeim. Þessar vörur eru af öllum stærðum og gerðum svo auðvelt er að finna þægilega lausn sem hentar hverjum og einum. Skírteinishafar geta leitað beint til Rekstrarlands til að fá Abena þvaglekavörur afgreiddar. Við sjáum um að koma vörunum beint heim til notenda án aukakostnaðar. Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is Abena þvaglekavörur eru samþykktar af Sjúkratryggingum Íslands Svörum fyrirspurnum fúslega í síma 515 1100 eða á heilbrigdi@rekstrarland.is Verslunin í Vatnagörðum er opin kl. 9–18 alla virka daga. VIÐ HUGSUM Í LAUSNUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.