Morgunblaðið - 21.09.2017, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
lögum Sigfúsar Einarssonar. Og Ís-
lendingarnir sem mæta í stofuna
taka undir og syngja um úti-
legumenn í Ódáðahrauni.
Nyrst í Nýja Íslandi, um 180 kíló-
metra fyrir norðan Winnipeg, er
Mikley; skógi vaxin eyja, rómuð fyr-
ir náttúrufegurð. Þar settust fyrstu
Íslendingarnir að 1876, en það ár
fluttu alls 1.100 manns frá Íslandi til
Vesturheims og náðu þessir miklu
fólksflutningar þá sennilega há-
marki. Löndum okkar búnaðist vel í
Mikley, enda náðu þeir tökum á
veiðimöguleikum í Winnipegvatni
sem er úthafi líkast. Um langa hríð
átti svo eftir að dafna öflugt íslenskt
samfélag í Mikley; sem um 1970 var
af fylkisstjórn gerð að fólkvangi – en
eyjan, sem nú heitir Hecla Provinci-
al Park, tengist fastalandinu með
brú og við hana er ljósviti og við
hann skilti sem á stendur: Komið
aftur. Já, er það ekki alveg tilvalið?
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sagan Íslendingahópur við styttu Jóns Sigurðssonar forseta sem er fyrir framan þinghúsið í Winnipeg. Víða á þessum slóðum eru ýmis minni sem hafa tengingar við gamla landið í norðri.
Þyrping Á sléttunni þar sem heitir Árborg hefur kona af íslenskum ættum komið upp litlu byggðasafni, þangað sem
flutt hafa verið hús sem mörg hver eru lík þeim sem landnemarnir frá Íslandi reistu á sínum tíma og bjuggu í.
Fylking Reffilegir dátar úr kanadísku herliði marsera um göturnar í Gimli
á Íslendingadeginum, sem þar var haldin hefð samkvæmt snemma í ágúst.
„Vestur-Íslendingar rækta menn-
ingararfinn og tengslin heim á eig-
in forsendum án þess að standa í
karpi eða vera í samkeppni við
aðra. Fyrir okkur Íslendinga er
mikilvægt að leggja rækt við
þetta, menningu og sögu, og með
því að skapa tækifæri í viðskiptum
og öðru eftir atvikum,“ segir Guð-
laugur Þór Þórðarson, nú fráfar-
andi utanríkisráðherra.
Á Íslendingahátíðunum tveimur
í Vesturheimi í síðasta mánuði, í
Norður-Dakota og í Gimli við
Winnipegvatn í Kanada, var Guð-
laugur Þór ræðumaður, en íslensk-
ir ráðamenn flytja jafnan ávarp við
þessa tilefni.
„Ég hvet alla til að heimsækja
Íslendingabyggðirnar vestanhafs,
það er mikil upplifun sem er eig-
inlega ekki hægt að lýsa. Ég kom
þarna 2008, þá heilbrigð-
isráðherra, og mér finnst unga
fólkið meira áberandi í hópi hátíð-
argesta nú en þá. Slíkt er mjög
ánægulegt,“ tiltekur Guðlaugur
Þór. Um hátíðina í Gimli, sem allt
að 40 þúsund manns sækja, segir
ráðherrann gaman að sjá hve fólk
af mörgu þjóðerni mæti þangað. Á
svæðunum í kringum Nýja-Ísland
sé fólk af úkraínsku bergi brotið
áberandi og það eins og margir
fleiri samgleðjist Vestur-
Íslendingum á hátíðisdegi.
Samgöngur séu greiðari
Í vesturferð sinni á dögunum átti
Guðlaugur Þór samtöl við ráða-
menn bæði í Norður-Dakota og
Winnipeg-fylki hvar reifaðar voru
hugmyndir um hvernig mætti
styrkja samskipti. „Á þessum
slóðum búa 100-130 þúsund
manns af íslenskum ættum. Margt
af því er fólk sem hefur vegnað
vel, til dæmis í stjórnmálum,
menningu og viðskiptum, þekkir
rætur sínar og finnst því áhuga-
vert að skapa tengsl við Ísland í
starfi sínu. Þarna eru ýmis tæki-
færi sem má nýta,“ segir Guð-
laugur Þór, sem telur mikilvægt að
samgöngur milli Íslands og þess-
ara slóða séu greiðari. Í dag sé
helst farið á þessar slóðir með
flugi til Ottawa og Montréal í Kan-
ada eða Minneapolis í Bandaríkj-
unum en frá þeim tengipunktum
sé löng leið, ýmist tekin með flugi
eða akstri um langa leið.
Bæði tengsl og tækifæri
MIKIL UPPLIFUN, SEGIR UTANRÍKISRÁÐHERRA
Vesturfarar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ágústa Johnson
kona hans voru gestir á Íslendingadegi. Til hægri eru Þórður Bjarni Guðjónsson
aðalræðismaður í Winnipeg og Jórunn Kristinsdóttir eiginkona hans.
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu