Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég hef komið hingað til Íslands á
hverju sumri og stundum oftar en
einu sinni,“ segir Sigurður Helgason
stærðfræðingur og prófessor við
hinn virta MIT-háskóla í Bandaríkj-
unum.
Sigurður hefur verið búsettur
vestra um áratugaskeið en Morg-
unblaðið hitti hann á dögunum áður
en hann hélt heim á leið. Tilefni
heimsóknarinnar í ár var margþætt;
stofnun styrktarsjóðs Sigurðar sem
fjallað er um hér á síðunni, 90 ára af-
mæli hans og fimmtugsafmæli dótt-
ur hans.
Sigurður hefur verið kvæntur
Artie Helgason síðan 1957. Hún er
frá Pittsburgh en átti grískan föður.
Þau eiga tvö börn, Thor Helga, sem
er 58 ára, og Önnu Lóu, sem er
fimmtug.
„Börnin mín eru auðvitað fædd í
Boston en leggja mikla áherslu á
sambandið við Ísland. Sonur minn
hefur til að mynda lagt talsvert í það
að læra íslensku,“ segir Sigurður
sem kveðst halda góðu sambandi við
nokkur frændsystkini sín hér á
landi.
Sigurður fæddist á Akureyri 30.
september 1927 og lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1945. Eftir ársnám við verk-
fræðideild Háskóla Íslands hélt
Sigurður til Danmerkur þar sem
hann lauk mag. scient.-prófi í stærð-
fræði frá Kaupmannahafnarháskóla
1952. Hann hélt þá vestur um haf og
nam við Princeton-háskóla og lauk
þaðan doktorsprófi 1954. Sigurður
kenndi við Princeton-háskóla, Chi-
cago-háskóla og Columbia-háskóla
og varð prófessor við MIT árið 1965.
Eftir hann liggur fjöldi bóka og vís-
indagreina um stærðfræði. Sigurður
hefur verið heiðursdoktor við Há-
skóla Íslands frá árinu 1986 en hann
er auk þess heiðursdoktor við Kaup-
mannahafnarháskóla og Uppsalahá-
skóla. Árið 1991 hlaut hann stór-
riddarakross Hinnar íslensku
fálkaorðu.
Fæst enn við rannsóknir
– Ert þú enn að fást við stærð-
fræði?
„Já, ég er það. Ég hætti að vísu
formlegri kennslu fyrir tveimur ár-
um en fæst enn við rannsóknir í
stærðfræði. Það eru fyrst og fremst
stærðfræðileg vandamál sem koma
upp af sjálfu sér; mér hefur alltaf
gefist betur að fást við slík vandamál
en vandamál sem eru annaðhvort
gömul og margar kynslóðir hafa átt
við árangurslaust eða vandamál sem
eiga ekki við minn smekk. Smekkur
skiptir miklu máli í stærðfræði. Hins
vegar fylgir því einnig mjög mikil
ánægja að leysa vandamál sem hef-
ur verið ráðgáta í mörg ár. Allir
stærðfræðingar vilja meira og meira
af slíkri reynslu,“ segir Sigurður.
„Ég held að segja megi að stærð-
fræði sem rannsóknarfag hafi byrj-
að með Ólafi Daníelssyni. Hann tók
mastersgráðu í Höfn 1904, kenndi
svo stærðfræði og eðlisfræði við
Kennaraskólann í 10 ár, skrifaði
einnig doktorsritgerð sína sem hann
varði í Höfn 1909. Hann skrifaði
einnig kennslubækur í stærðfræði;
Reikningsbók 1906, Hornafræði
1922, Algebru 1927, Um flatar-
myndir 1920. Þessar bækur eru
merkilegar sem söguleg dokúment,
ekki aðeins efnisins vegna en einnig
vegna formála bókanna.
Í formála Algebrunnar skrifar
hann til dæmis: „En stærðfræðin er
fyrst og fremst sjálfstæð vísinda-
grein, sú fullkomnasta sem til er, og
auk þess eru ýmsar greinar vís-
indanna, einmitt þær sem mesta
þýðingu hafa haft fyrir menningu
nútímans, svo sem eðlisfræði, stat-
istík, stjörnufræði, jafnvel hagfræði,
o.s.frv., ritaðar á merkjamáli stærð-
fræðinnar.“
Hér er ég viss um að Ólafur hefði
bætt við tölvumenningunni sem er
byggð á stærðfræðinni og hefði
glaðst yfir hve fljótt Íslendingar til-
einkuðu sér tækni á þessu sviði.
En þó að þetta að ofan skýri út
þýðingu stærðfræði í daglegu lífi er
það engu að síður mjög erfitt að
skýra út stærðfræðirannsóknir fyrir
þeim sem ekki eru stærðfræðingar.
Það er líkt því að skýra út málverk
fyrir blindum. En hér vil ég leggja
áherslu á myndband af fyrirlestri
Finns Lárussonar með titlinum
„The Naked Pure Mathematician“
sem er auðvelt að finna á netinu.
Finnur lauk bachelorsgráðu hér við
deildina, fékk inntöku í graduate
school bæði við MIT og Harvard, en
fór til Chicago þar sem hann lauk
doktorsprófi. Var fyrir ári eða svo
skipaður prófessor við háskólann í
Adelaide. Við það tækifæri hélt
hann fyrirlestur fyrir „the man in
the street“. Slíkt viðfangsefni er
mjög erfitt fyrir hvaða stæðfræðing
sem er en Finnur gerði þetta sér-
staklega vel og ég vil því mæla með
þessu myndbandi.“
Sambandið hefur gjörbreyst
Sigurður segir að stærðfræði-
deildin við HÍ hafi þróast vel.
„Það sést til dæmis á því hve
margir hafa komist inn sem grad-
uate-nemendur í fínum háskólum
vestra. Á MIT eru um það bil 350
sem sækja um á hverju ári en aðeins
20 eru teknir. Í ár var einn sem
komst inn, en kaus Harvard.“
Og margt hefur breyst frá því
hann nam við HÍ.
„Ef maður ber saman þegar ég
var hérna ’45-’46 þá var sambandið
við umheiminn sáralítið. Það var
ekkert bókasafn í stærðfræðideild-
inni. Eitthvað var til á Lands-
bókasafninu en það var ákaflega
óþægilegt af því maður fór ekki í
hillurnar sjálfur. Maður þurfti að
skrifa umsókn í þríriti til bókavarð-
ar sem fór svo að leita. Þá tók það
kannski hálftíma og svo kom stund-
um í ljós að bókin var alls ekki það
sem maður vildi fá. Það var ákaflega
illa arranserað. Og það var náttúr-
lega lítið til hvort sem var.
En svo komu tölvurnar. Og Ís-
lendingar voru mjög fljótir að til-
einka sér tölvunotkun. Það hjálpaði
mikið upp á einangrunina. Menn
geta skrifast á í tölvupósti í dag en í
gamla daga kostaði ábyggilega viku
að koma bréfi til Danmerkur. Ég
man þegar ég bjó í Kaupmannahöfn.
Foreldrar mínir bjuggu á Akureyri
og þá tók alltaf hálfan mánuð að fá
bréf enda þurfti það að fara fyrst til
Reykjavíkur. Flugferðir voru heldur
ekki eins tíðar þá. Sambandið var
því lélegt. Ég bjó þarna í einhverri
kytru í Kaupmannahöfn og hafði
engan síma. Þannig að ef ég vildi
hringja til Íslands þurfti ég að fara
niður á járnbrautarstöð og panta
samband. Sambandið er það sem
hefur gjörbreyst frá þeim tíma.“
Kynntist John Nash
Á löngum og farsælum ferli hefur
Sigurður fengið birtar fjölda greina
í virtum tímaritum og vakið eftirtekt
í fræðasamfélaginu. Hann segir að
það hefði ekki verið mögulegt ef
ekki hefði verið fyrir þá sem ruddu
brautina. Nefnir hann sérstaklega
til sögunnar dr. Ólaf Daníelsson en
kennsluefni hans vakti áhuga Sig-
urðar á stærðfræði. Árið 1996 sendu
Sigurður og Guðmundur Arnlaugs-
son frá sér lítið kver um Ólaf og verk
hans. „Mér fannst að ungu stærð-
fræðingarnir hérna hefðu ekki
kynnst Ólafi nægilega og vildi bæta
úr því,“ segir Sigurður.
Einn af þeim samferðamönnum
sem Sigurður nefnir í spjalli okkar
er stærðfræðingurinn John Nash.
Þeir kynntust þegar Sigurður flutt-
ist fyrst til Boston árið 1954 og varð
vel til vina, en Nash átti síðar eftir
að öðlast mikla frægð. Ævi hans
voru gerð skil í kvikmyndinni A
Beautiful Mind þar sem Russell
Crowe fór með aðalhlutverkið.
Þegar Sigurður er spurður hvaða
sviði stærðfræðinnar hann hafi helst
gefið sig að nefnir hann Lie-grúpu-
fræði.
„En stærðfræðin er þannig að
maður sérhæfir sig ekki alltof mikið
vegna þess að það er oft það besta
sem gerist í stærðfræði þegar tvær
mismunandi greinar stærðfræð-
innar koma saman. Það er oft það
sem gerir útslagið. Sagan sýnir það
náttúrlega – en maður veit það ekki
fyrirfram.“
Fæst við stærðfræðileg vandamál
Dr. Sigurður Helgason stofnaði styrktarsjóð við Háskóla Íslands í tilefni af níræðisafmæli sínu
Hefur verið stærðfræðiprófessor við MIT um áratugaskeið og sent frá sér fjölda bóka og greina
Morgunblaðið/Eggert
Stærðfræðingur Dr. Sigurður Helgason hélt upp á níræðisafmæli sitt í Reykjavík á dögunum. Hann hefur stofnað
styrktarsjóð fyrir unga stærðfræðinga. Sigurður hefur verið prófessor við MIT-háskóla um áratugaskeið.
Sigurður Helgason hefur lengi látið sig stærðfræðideildina við HÍ
varða. Hann hefur heimsótt nemendur og fræðimenn þar á hverju ári
og stutt við starfið. „Ég tók eftir því fyrir mörgum árum að bóka-
kosturinn í stærðfræðideildinni var mjög lélegur. Ég fékk því bóka-
lista frá öllum í deildinni og keypti allar bækurnar og flutti til lands-
ins í fjórum ferðum. Þá voru eiginlega engin takmörk fyrir þyngd í
flugvél – það var bara plássið sem skipti máli. Þannig að bókasafnið
í deildinni er ekki svo slæmt,“ segir Sigurður.
Á dögunum stofnaði hann verðlaunasjóð við HÍ sem veitir við-
urkenningar til nemenda sem ljúka grunnnámi í stærðfræði. Stofnfé
sjóðsins er 11.000 Bandaríkjadalir en að auki lagði Sigurður fram
8.000 Bandaríkjadali til að veita verðlaun úr sjóðnum við stofnun
hans.
Stofnaði verðlaunasjóð
SIGURÐUR HEFUR LENGI STUTT VIÐ STÆRÐFRÆÐIDEILD HÍ
Tilfinningalíf
kaupandans
ÍMARK býður til morgunfundar 27. september
um kauphegðun viðskiptavina.
Peter Fader er prófessor við Wharton School í University
of Pennsylvania í USA og hefur um árabil rannsakað
kauphegðun viðskiptavina (Customer Centricity) og notkun á
gögnum til þess að spá fyrir um hegðun einstakra hópa.
Staður: Gamla bíó, Ingólfsstræti 2a
Tími: Miðvikudagur 27. september kl. 8:30– 11:00
Fyrirlesari: Peter Fader
„The Essentials of Customer Centricity“
Fundarstjóri: Björgvin Ingi Ólafsson
Skráning og nánari upplýsingar á www.imark.is
í samstarfi við