Morgunblaðið - 21.09.2017, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Þegar ég var unglingur var ég allt-
af syngjandi. Stærsti draumurinn
minn var að verða söngkona og
skapa mína eigin tónlist. Þegar ég
var 14 ára gömul söng ég í rokk-
hljómsveit sem hét Clickhaze. Við
vörum öll mjög áhugasöm og spil-
uðum daga og nætur. Á sama tíma
tók ég upp fyrstu sólóplötuna mína.
Það var svo eftir 9. bekk að ég
ákvað að láta drauminn minn rætast
og fara „all in“ í tónlistina,“ segir
Eivør spurð um upphaf feril síns í
Færeyjum á unglingsárum. Það eru
oft tilviljanir sem hafa stór áhrif á
líf okkar og það var klárlega þannig
í tilfelli Eivarar sem fluttist hingað
til lands eftir að hafa kynnst ís-
lenskum söngkennara í Færeyjum.
„Á tímabili þegar ég var 16 ára átti
ég í vandræðum með röddina mína,
ég var búin að ofgera henni, og í
Færeyjum var ekki boðið upp á
söngkennslu. En ég var svo heppin
að hitta söngkennarann Ólöfu Kol-
brúnu sem kom til Færeyja með
námskeið í söng akkúrat á þessum
tíma þegar ég þurfti á því að halda.
Við Ólöf náðum mjög vel saman en
hún bauð mér til Íslands að búa hjá
sér og fá meiri raddþjálfun. Ég þáði
það og flutti til Íslands nánast án
fyrirvara með það í huga að vera
þar í nokkrar vikur. Þar var ég
hinsvegar í 5 ár,“ segir Eivør um
flutninginn hingað til lands á sínum
tíma.
Óvænt frægð á Íslandi
Eivør flutti því ekki til Íslands
með háleit markmið um að slá í
gegn. „Ég sá alls ekki fyrir mér að
verða þekkt fyrir tónlistina mína á
Íslandi. Fyrsta árið fór í að ná rödd-
inni aftur. Það var eins og að byrja
upp á nýtt, en hægt og rólega kom
röddin aftur og ég byrjaði að trúa á
stóra drauminn minn aftur. Þegar
ég var búin að ná mér ári seinna
safnaði ég saman í hljómsveitina
Krákuna og tók upp með þeim
plötu. Við héldum tónleika um allt
land og áður en ég vissi stóð ég á af-
hendingu Íslensku tónlistarverð-
launanna með þrenn verðlaun í
hendi,“ segir Eivør spurð út í upp-
haf skjótra vinsælda hennar hér á
landi. „Þetta var svolítið óraunverð-
legt fyrir mig á þessum tíma. Ég
var mjög hissa á hvað Íslendingar
tóku vel á móti mér. Ég finn enn þá
þessa hlýju í hjarta mér sem ég
fann þá þegar ég hugsa um þessa
tíma og mun aldrei gleyma þeim,“
bætir Eivør við.
Tilraunakenndari tónar
Árið 2010 má segja að Eivør hafi
skipt um stefnu í tónlistinni. Hún
var þá orðin vel þekkt fyrir tónlist í
svokölluðum þjóðlagastíl en langaði
að prufa eitthvað nýtt. „Ég ákvað að
brjóta rammann í kringum sjálfa
mig. Það var eins og ég á einhvern
hátt væri búin með einn kafla. Út úr
þessu kom platan LARVA sem var
dimm rock trip hop plata og eins og
titillinn lýsir. Hún var listræn end-
urfæðing fyrir mig,“ segir Eivør um
stefnubreytinguna sem féll ekki í
kramið hjá öllum. „Það voru ekki
allir af mínum áheyrendum sem
tóku þessu vel. Ég fékk fullt af
skilaboðum þar sem fólk var miður
sín yfir þessari plötu og hvernig
stíllinn minn hafði breyst. Ég var
spurð um hvert gamla góða Eivør
væri farin,“ segir Eivør og hlær.
„Þetta var bæði erfitt en líka mjög
mikilvægt tímabil fyrir mig og byrj-
un á nýju tímabili í tónlistinni hjá
mér,“ bætir Eivør við en LARVA
var fyrsta platan hennar á ensku.
„Þetta með tungumálið lít ég mjög
mikið á eins og hljóðfæri. Ég lít
ekki á það eins og ég þurfi að velja
annað hvort færeysku eða ensku.
Ég hef aldrei tekið ákvörðun um að
fara frá færeyskunni. Þetta gerist
bara náttúrulega og stundum
hljóma textar bara betur á fær-
eysku og stundum betur á ensku.
Lögin verða bara að fá að vera það
sem þau eru,“ segir Eivør þegar
hún er spurð hvort það hafi verið
meðvituð ákvörðun að fara að gefa
út tónlist á ensku.
Enskan opnar nýja markaði
Að syngja á ensku hefur vissu-
lega opnað nýja markaði fyrir
Evøru, sem er nú búsett í Kaup-
mannahöfn, og er hún farin að hasla
sér völl á Englandi. „Árið 2015 gaf
ég út plötuna SLØR á færeysku. Í
fyrra var SLØR síðan þýdd yfir á
ensku og gefin út í Englandi. Það
byrjaði bara með því að ég var að
leika mér með hvernig nokkur af
þessum lögum myndu hljóma á
ensku og allt í einu var ég farin í að
þýða alla plötuna. Það er búið að
ganga vel í Englandi og spennandi
að komast inn á nýjan markað,“
segir Eivør sem fylgdi eftir útgáfu
SLØR með tónleikaferð um Eng-
land fyrr á árinu og mun taka þráð-
inn upp aftur í nóvember með fleiri
tónleikum þar í landi. Eivør er farin
að vinna að nýju efni og stefnir hún
að útgáfu nýrrar plötu á næsta ári.
„Svo er ég líka að vinna tónlist fyrir
Netflix-þáttaröðina The Last King-
dom. Við erum að gera þáttaröð 3
og 4 í byrjun næsta árs þannig að
það er alveg nóg að gera og verk-
efnin mjög fjölbreytt,“ segir Eivør
brosandi.
Jólin koma á Íslandi
Eivør hefur verið dugleg í gegn-
um tíðina að koma fram sem gestur
á hinum ýmsu jólatónleikum hér á
landi. „Mér hefur þótt það alveg
yndislegt að koma til Íslands í
kringum jólin. Það er næstum því
orðið þannig að mér finnst ekki
komin jól fyrr enn ég er búin að
vera á Íslandi. Það er eitthvað við
Ísland og jólin sem er eitthvað sér-
stakt,“ segir Eivør dreymin á svip
sem lengi hefur langað til þess að
halda sína eigin jólatónleika hér á
landi. „Í ár ákvað ég að kýla á það.
Ég ætla að hafa bandið mitt með
sem ég er búin að túra með í mörg
ár og ætla líka að hafa strengja-
kvartett ásamt nokkrum gestum,
allt fólk sem mér þykir vænt um að
vinna með,“ segir Eivør um tón-
leikana sem munu fara fram dagana
9. og 10. desember í Silfurbergi í
Hörpu. Fyrir áhugasama er búið að
opna fyrir miðasölu á tix.is og í
miðasölu Hörpu.
Gyðjan sem hreyfir við hjörtum
Færeyska söngkonan Eivør Pálsdóttir á stað í hjörtum margra Íslendinga enda má segja að ferill hennar hafi hafist fyrir alvöru þegar hún
var búsett hér um hríð. Eivør er nú búsett í Kaupmannahöfn og er mikið að gera hjá henni en hún hefur m.a. verið á tónleikaferðalagi um
England á árinu. Hún stefnir svo á heimsókn hingað til lands í desember þar sem hún mun halda þrenna jólatónleika í Hörpu.
Wolfgang Smith
England Eivør hefur verið á tón-
leikaferð um England á þessu ári.
Sem Jonson
Jólatónleikar Eivør heldur þrenna
jólatónleika í Hörpu í desember.