Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Þessi frábæra kjötsög
með hakkavél frá
Dinamix er komin aftur
Ryðfrítt vinnsluborð og bandsagarblað
Vinnsluhæð 240 mm
Vinnslubreidd 250 mm
Færanlegt vinnsluborð 470x600 mm
Hakkavél: Já
Mótor: 550 wött
Hæð: 1470 mm
Þyngd: 58 kg
Verð aðeins kr. 69.900
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560 8888 - www.vfs.is
það konsept og spila nokkra tón-
leika í röð á Íslandi. Eini tíminn
sem það var hægt í Hörpu var á
milli jóla og nýárs þar sem hún er
svo bókuð.“
Hvað ef við bjóðum
fullt af fólki?
„Svo pældum við í því að gera
eitthvað meira: Hvað ef við bjóðum
fullt af fólki? Hvað ef við fáum fólk
sem við höfum verið að vinna með
eða höfum einhverja tengingu við?
Ekki endilega að við höfum unnið
með því, heldur líka fólk sem við fíl-
um eða höfum fengið innblástur hjá
og alls konar tengingar?“ Georg
segir að í framhaldinu hafi þeir fé-
lagar haft samband við fjölmarga,
en það gefi augaleið að ekki komist
allir. „Það spilar inn í hver er laus
og hver nennir, við fáum ekki allt
sem við viljum. Það eru mörg nöfn
komin en einhverjir eru enn á bið-
lista, nöfn sem fólk þekkir og önnur
sem það þekkir minna. Svo verður
dans og líklega myndlistarsýning
og kannski ljósmyndasýningar og
alls konar uppákomur og sölubásar
með ýmislegt á boðstólum sem
aldrei hefur verið til áður.
Harpa er skrýtinn staður og þeg-
ar maður labbar inn veit maður
ekki hvort maður er á tónleikastað
eða í flugstöð. Við leggjum undir
okkur bygginguna og búum til allt
aðra stemningu en hefur verið þar
áður, tökum mómentið og búum til
minningu sem er allt öðruvísi en
nokkur hefur upplifað þarna inni.“
Forvitnileg verkefni
forvitnilegs listafólks
John Best, umboðsmaður hljóm-
sveitarinnar og samstarfsmaður til
fjölda ára, segir að hugmyndin að
hátíðinni hafi kviknað undir lok síð-
asta árs þó að aðdragandinn sé
lengri. „Í gegnum árum hefur
hljómsveitin oft verið beðin að taka
þátt í forvitnilegum verkefnum for-
vitnilegs listafólks. 2012 gerðum við
Dularfullu kvikmyndatilraunina,
þegar við fengum áhugaverða leik-
stjóra til að búa til stuttmyndir út
frá lögunum á Valtara til þess að
létta álagi af hljómsveitinni, enda
vildu strákarnir ekki fara í viðtöl
vegna plötunnar. Norður og niður
er í raun sprottið af áþekkri hugs-
un.
Þegar farið er um heiminn í tón-
leikaför hitta menn alls kyns skap-
andi fólk og Sigur Rós hefur unnið
með fólki í tónlist, leiklist, listdansi
og kvikmyndagerð. Samhliða þeim
Norður og niður með Si
Sigur Rós leggur Hörpu undir
sig milli jóla og nýárs Fernir
tónleikar og fjölbreytt listahátíð
undir heitinu Norður og niður
Morgunblaðið/Ernir
Fjör Dan Deacon sannaði það í Nasa að hann er mikill stuðbolti.
Ljósmynd/John Bozinov
Draumkennt Hljómsveitin Hugar: Bergur Þórisson og Pétur Jónsson.
Ljósmynd/Norður og niður
Ljósmynd/Sigur Rós
VIÐTAL
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Milli jóla og nýárs leikur Sigur Rós
á fernum tónleikum í Hörpu, spilar
27., 28., 29. og 30. desember í Eld-
borgarsalnum. Á sama tíma verður
listahátíðin Norður og niður haldin
í Hörpu.
Norður og niður er sjálfstæður
viðburður en Sigur Rós stendur
einnig að hátíðinni. Á henni verða
tónlistarviðburðir, innsetningar,
dans, kvikmyndasýningar og
óvæntar uppákomur vina og sam-
verkafólks Sigur Rósar í gegnum
tíðina úti um allt hús.
Lokahnykkurinn á Íslandi
Georg Hólm, bassaleikari Sigur
Rósar, segir að hljómsveitinni sé
alltaf ofarlega í huga að spila hér á
landi þegar skipulagðar eru tón-
leikaferðir: „Við byrjum stundum á
Íslandi, en oftast höfum við tekið
lokahnykkinn hér.“ Hann segir að
það sé dýrt fyrir sveitina að halda
tónleika hér sem séu sambærilegir
við þá sem hún heldur ytra og
þannig tapi hljómsveitin yfirleitt á
þeim tónleikum sem hún hefur
haldið hér, „og stundum fullt af
peningum“.
„Að þessu sinni langaði okkur til
að tapa ekki alveg eins miklu og
síðast og líka að gera eitthvað öðru-
vísi, ekki bara vera í Höllinni enn
eina ferðina, ekki það að ég sé að
dissa Höllina, en við höfum spilað
þar svo oft. Annað sem kom til var
að í tónleikaferðinni spilum við í
London á þrennum tónleikum og
líka á þrennum tónleikum í París og
á tvennum í Berlín og okkur lang-
aði til að halda aðeins áfram með
Listahátíð Það er Sigur Rós alltaf ofarlega
í huga að spila hér á landi. Orri Páll Dýra-
son, Jón Þór Birgisson og Georg Hólm.
Samvinna Sóley Stefáns-
dóttir, Sindri Már „Sin Fang“
Sigfússon og Örvar Smárason
vinna að breiðskífu.