Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 72

Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Emerging Masters, eða Upprenn- andi meistarar, nefnist einn af mörg- um dagskrárflokkum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, sem hefst eftir viku, 28. sept- ember. Í þeim flokki er veitt innsýn í störf kvikmyndagerðarmanna sem farnir eru að vekja athygli fyrir verk sín og eru taldir upprennandi meist- arar af áhrifafólki úr heimi kvik- mynda og að þessu sinni er leikstjóri flokksins hin þýska Valeska Grise- bach. Hún útskrifaðist úr Kvik- myndaskólanum í Vín árið 2001 og hlaut First Steps-verðlaunin fyrir útskriftarmynd sína, Mein Stern, í flokki 60 mínútna kvikmynda á þýsku og verður sú mynd sýnd á RIFF. Grisebach hlaut einnig verð- laun gagnrýnenda á Toronto- kvikmyndahátíðinni sama ár fyrir myndina, „fyrir heimildarmynda- lega frásögn af ljúfsárri unglinga- ást“, eins og því er lýst í tilkynningu frá RIFF. Myndin hlaut einnig aðal- dómnefndarverðlaun á kvikmynda- hátíðinni í Torino. Mein Stern, eða Stjarnan mín í ís- lenskri þýðingu, segir af 14 ára stúlku, Nicole, og kærasta hennar, Christopher, sem er vinsælasti strákurinn í hverfinu. Þau byggja gjörðir sínar, framkomu og jafnvel samtöl á því sem þau hafa séð hjá foreldrum sínum og sýna þannig heim fullorðinna á grátbroslegan átt frá sjónarhorni unglinga, eins og því er lýst. Önnur kvikmynd eftir Grisebach, Western, Vestri á íslensku, frá þessu ári, verður einnig sýnd á hátíðinni en í henni segir af hópi þýskra bygging- arverkamanna sem vinna erfiðis- vinnu í afskekktri búlgarskri sveit. „Hið ókunna land vekur ævintýra- þrá hjá mönnunum en þeir þurfa líka að horfast í augu við eigin fordóma,“ segir um myndina í tilkynningu. Kvikmyndin var tilnefnd til Un Certain Regard-verðlaunanna í Cannes sl. vor. Valeska Grisebach lærði heim- speki og þýsk fræði í Berlín, Münch- en og Vínarborg. Árið 1993 hóf hún nám í leikstjórn í Kvikmyndaskóla Vínarborgar hjá Peter Patzak, Wolf- gang Glück og Michael Haneke. Upprennandi Valeska Grisebach. Grisebach upprenn- andi meistari RIFF Sænski kvikmyndaleikstjórinn Maximilian Hult hefur hafið tökur á næstu kvikmynd sinni, Pity the Lovers, hér á landi og er hún ein- göngu með íslenskum leikurum og tekin upp á íslensku. Leikarar í myndinni eru Björn Thors, Jóel I. Sæmundsson, Sara Dögg Ásgeirs- dóttir, Sigurður Karlsson, Edda Björgvinsdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir, Hafdís Helga Helga- dóttir o.fl. Pity the Lovers er rómantísk gamanmynd og hófust tökur á henni 24. ágúst sl. og eru þær langt komnar. Framleiðslufyrirtæki myndarinnar er sænskt, LittleBig Productions, en Anna G. Magn- úsdóttir er annar tveggja eigenda þess. Anna segir ástæðuna fyrir því að myndin er tekin upp hér á landi með íslenskum leikurum þá að Hult hafi tekið upp á Íslandi áður og lík- að vel. Auk þess hafi 25% endur- greiðsla á framleiðslukostnaði ís- lenskra sem erlendra framleiðenda kvikmynda sem teknar eru upp hér á landi skipt máli þegar kom að fjármögnun myndarinnar. Ef þurft hefði að leita frekara fjármagns frá Svíþjóð hefðu tökur frestast um ár. Anna segir að í raun komi Íslend- ingar algjörlega að myndinni, að undanskildum leikstjóranum, hinu sænska framleiðslufyrirtæki og sænskum leikmyndahönnuði. Hult á að baki sænsk-íslensku kvikmyndina Hemma sem tekin var upp á Eyrarbakka og sýnd hér á landi fyrir þremur árum. Sú kvik- mynd hlaut mörg verðlaun og prýðilega gagnrýni í Svíþjóð þegar hún var sýnd þar. Hult er einnig handritshöfundur Pity the Lovers og segir Anna að myndin líti mjög vel út, leikararnir stórgóðir og tök- ur hafi gengið vel til þessa. Bræður í krísu Pity the Lovers hefur enn ekki hlotið íslenskan titil en í henni segir af bræðrum sem eiga erfitt í ástalíf- inu og takast á við þann vanda með ólíkum hætti. Annar forðast náin sambönd en hinn á í hverju stuttu sambandinu á fætur öðru. Stefnt er að því að frumsýna myndina á næsta ári. Haft er eftir Hult í tilkynningu að í fyrstu hafi honum ekki litist á blikuna að leikstýra á íslensku, þ.e. leikurum sem tala íslensku í mynd- inni, en þær áhyggjur hafi gufað upp þegar aðalleikarar hafi verið valdir og tökur hafist. helgisnaer@mbl.is Ljósmynd/Sigga Ella/LittleBig Productions. Fundað Hult ræðir við Jóel I. Sæmundsson, Þóru Karítas Árnadóttur og Björn Thors. Lengst til vinstri er Áslaug Konráðsdóttir skrifta. Hult gerir kvik- mynd á íslensku  Leikstjóri Hemma snýr aftur The Square Metacritic 74/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 17.15, 20.00, 22.15 The Limehouse Golem Bíó Paradís 22.45 Stella í orlofi Bíó Paradís 18.00 Skjól og skart Bíó Paradís 18.00 Sami Blood Metacritic 79/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 20.00 Kongens nei IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 20.00 The Hitman’s Bodyguard 16 Besti lífvörður í heimi fær nýjan viðskiptavin, leigu- morðingja sem þarf að bera vitni hjá alþjóða glæpadóm- stólnum. Metacritic 55/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 American Assassin 16 Fjölskylduharmleikur leiðir Mitch Rapp í raðir þeirra bestu sem berjast gegn hryðjuverkaógnum. Metacritic 44/100 IMDb 6,8/10 Laugarásbíó 20.00, 22.20 Smárabíó 20.20, 22.50 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 47 Meters Down 16 Systur fara í hákarlaskoðun í Mexíkó en festast á hafs- botni þegar búrið sem á að vernda þær frá hákörlunum losnar. Metacritic 52/100 IMDb 5,8/10 Smárabíó 22.50 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 22.10 Everything, Everything Metacritic 52/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00 Sambíóin Akureyri 17.50 American Made 12 Metacritic 63/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Smárabíó 20.20, 22.50 Annabelle: Creation 16 Metacritic 62/100 IMDb 7,0/10 ambíóin Álfabakka 22.10 Kidnap 12 Frankie, sonur einstæðu móðurinnar Körlu er horfinn, honum hefur verið rænt. Metacritic 44/100 IMDb 6,0/10 Háskólabíó 21.00 Dunkirk 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 94/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Kringlunni 20.00 Emojimyndin Metacritic 12/100 IMDb 2,0/10 Smárabíó 15.30, 17.50 Ég man þig 16 Ungt fólk sem er að gera upp hús á Hesteyri um miðj- an vetur fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Morgunblaðiðbbbbn IMDb 7,8/10 Háskólabíó 18.00, 20.50 Bíó Paradís 22.30 The Glass Castle 12 Kvikmynd byggð á æviminn- ingum Jeannette Walls sem fæddist árið 1960.. Metacritic57/100 IMDb 7,0/10 Háskólabíó 18.10 Spider-Man: Homecoming 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 73/100 IMDb 7,9/10 Smárabíó 16.50 Skrímslafjölskyldan Til að þjappa fjölskyldunni betur saman skipuleggur Emma skemmtilegt kvöld en þau breytast öll í skrímsli. IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Kringlunni 17.50 Sambíóin Akureyri 17.50 Sonur Stórfótar Adam er ósköp venjulegur strákur sem uppgötvar að faðir hans er Stórfótur. IMDb 6,1/10 Laugarásbíó 18.00 Smárabíó 15.30 Háskólabíó 18.10 Borgarbíó Akureyri 18.00 Agnes grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífs- myndband, hendir honum út og meinar honum að umgangast fjögurra ára dóttur þeirra. Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð ná- grannanna, sem eru orðnir langþreyttir á að fá ekki sól á pallinn. IMDb 7,4/10 Laugarásbíó 18.00, 22.30, 22.50 Smárabíó 15.40, 17.20, 17.50, 20.20, 22.30 Háskólabíó 18.00, 20.50 Sambíóin Keflavík 20.00 Borgarbíó Akureyri 18.00, 20.00 Undir trénu 12 Mother! 16 Það reynir á samband pars þegar óboðnir gestir birtast. Metacritic 76/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.50 Sambíóin Egilshöll 17.25, 20.00, 22.35 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.35 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio It 16 Sjö vinir í bænum Derry í Bandaríkjunum komast á snoðir um að í holræsum bæjarins er á kreiki óvættur. Metacritic 70/100 IMDb 8,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 18.10, 20.00, 21.00, 22.50 Sambíóin Egilshöll 17.15, 20.00, 22.45 Sambíóin Kringlunni 17.10, 20.00, 22.20, 22.50 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50 Sambíóin Keflavík 22.05 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.