Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Hitablásarar
Rafmagnshitablásari
2Kw 1 fasa
6.890
Rafmagnshita-
blásari 5Kw 3 fasa
12.830
Rafmagnshita-
blásari 2Kw
1.990
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Rafmagnshitablásari
3Kw 1 fasa
8.890
15 metra rafmagnssnúra
2.390
INDUSTRIAL GRADE
Fjöltengibox IP44
H07RN F3G1,5
1,5 m snúra
1.990
Kapalkefli 10m
H05vv-F3G1,5mm
2.690
Síldarminjasafnið á Siglufirði hlýtur
umhverfisverðlaun ferðamálastofu í
ár fyrir fegrun umhverfis og bætt
aðgengi. Verkefnið var lokaáfangi í
byggingu bryggjupalla milli safn-
húsanna þriggja og uppsetningu lýs-
ingar á svæðinu.
Þordís Kolbrún Gylfadóttir, iðn-
aðar- og nýsköpunarráðherra, af-
henti Anítu Elefsen og Örlygi Krist-
finnssyni, fulltrúum Síldarminja-
safnsins, verðlaunin á ferðamála-
þingi í Hörpu í gær.
Í rökstuðningi dómnefndar segir
að Síldarminjasafnið sé gott dæmi
um frumkvöðlavinnu þar sem menn-
ingar- og atvinnusaga bæjarfélags
hefur orðið að aðdráttarafli fyrir
ferðafólk og verið mikilvægur liður í
að endurnýja bæjarbraginn. Þar séu
umhverfismál, ásýnd og aðgengi af-
ar mikilvægir þættir.
Ferðamálastofa hefur veitt um-
hverfisverðlaunin árlega frá árinu
1995 og er þetta í annað sinn sem
þau falla í skaut styrkþega úr fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða en
hann tók til starfa haustið 2011.
Dómnefnd skipuðu Halldór Ei-
ríksson, arkitekt og formaður
stjórnar framkvæmdasjóðs ferða-
mannastaða, Helena Guttorms-
dóttir, lektor og námsbrautarstjóri
umhverfisskipulagsbrautar Land-
búnaðarháskólans, og Ólöf Ýrr Atla-
dóttir ferðamálastjóri.
Síldarminjasafnið sæmt
umhverfisverðlaunum
Verðlaunin
veitt á ferðamála-
þingi í Hörpu
Umbætur Umhverfi Síldarminjasafnsins hefur tekið miklum breytingum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Endurnýjun á gólfi Borgarfjarðar-
brúarinnar lýkur um miðjan næsta
mánuð. Hún hefur staðið yfir með
hléum í fimm ár og kostað samtals
520 milljónir eða sem svarar einni
milljón á hvern lengdarmetra.
Áður en Borgarfjarðarbrúin sem
tekin var í notkun árið 1981 var orðin
tvítug þurfti að ráðast í viðgerðir á
hluta stöpla hennar. Steypt var ný
kápa utan um þá. Var unnið að því til
ársins 2010. Þá var brúargólfið orðið
illa farið vegna mikils álags og slitið
ofan í járnagrind brúarinnar. Hafist
var handa við endurnýjun gólfsins á
árinu 2012 og hefur verið unnið að því
með hléum síðan.
Steypan hefur verið hreinsuð af og
steypt nýtt lag með sterkri steypu
sem sérstaklega er hrærð í þessum
tilgangi.
Sérstaklega sterk steypa
Ingvi Árnason, svæðisstjóri Vega-
gerðarinnar á Vesturlandi, segir að
unnið hafi verið að framkvæmdunum
snemma vors og seint á haustin til að
trufla umferðina sem minnst. Á með-
an unnið er að viðgerðum þarf að
loka annarri akrein brúarinnar og er
umferðinni stýrt með ljósum. Það
getur haft í för með sér tafir fyrir
vegfarendur. Samtals hefur ljósa-
stýring verið í sextán og hálfan mán-
uð þau fimm ár sem viðgerðin hefur
staðið yfir eða í nærri hálft annað ár.
Nú er unnið að viðgerð á tveimur
höfum, samtals 80 metrum. Áætlað
er að framkvæmdum við þennan síð-
asta áfanga ljúki 14. nóvember.
Sérfræðingur í steypufræðum og
starfsmenn Vegagerðarinnar hafa
unnið brautryðjendastarf við hönnun
ofursteypunnar sem notuð er í brúar-
gólfið og einnig í kápu á stöplana á
sínum tíma. Í steypuna er notuð sér-
staklega slitsterk möl úr fjörunni í
Harðakambi við Ólafsvíkurenni.
Steypan á að hafa mikinn brotstyrk
og þola frostþenslu. Ingvi segir að
þessi steypuuppskrift hafi einnig ver-
ið notuð við viðgerð á brúnni yfir
Blöndu við Blönduós.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borgarfjarðarbrú Endurnýjun hefur staðið yfir með hléum í fimm ár og kostað samtals 520 milljónir.
Hver metri með
ofursteypu kost-
ar eina milljón
Endurnýjun á gólfi Borgarfjarðar-
brúarinnar lýkur í næsta mánuði
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Siðareglurnar eru ekki lagalega
bindandi en undirritun þeirra er til
marks um gæði og heilindi íslenskr-
ar ferðaþjónustu,“ segir dr. Taleb
Rifai, aðalritara ferðamálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNWTO), en
hann kom hingað til lands til að vera
viðstaddur undirritun alþjóðlegra
siðareglna UNWTO fyrir ferðaþjón-
ustu á Ferðamálaþingi 2017, sem nú
hafa verið þýddar á íslensku.
„Reglunar voru fyrst settar fram
af Sameinuðu þjóðunum árið 2001
og ætlaðar opinberum aðilum en
með undirritun ferðaþjónustuaðila á
einkamarkaði víkkum við út gild-
issvið þeirra,“ segir hann og vísar til
þess að þær Helga Árnadóttir, fyrir
hönd Samtaka ferðaþjónustunnar
(SAF) og Ásta Kristín Sigurjóns-
dóttir, fyrir hönd Íslenska ferða-
þjónustuklasans skrifuðu undir
siðareglunar á fundinum í gær.
„Umfang siðareglnanna nær allt
frá vinnumansali í ferðaþjónustu til
náttúruverndar og eru þess vegna
gæðavottun sem öll fyrirtæki í
ferðaþjónustu ættu að vilja flagga.“
Mikilvægur tímapunktur
Dr. Taleb Rifai hælir bæði um-
svifum og uppbyggingu ferðaþjón-
ustu á Íslandi sem hann segir að
mörgu leyti vera til fyrirmyndar en
örum vexti fylgi líka vandamál.
„Ferðaþjónusta á Íslandi hefur
vaxið hratt á undanförnum árum og
landið stendur á tímapunkti þar
sem ákveða þarf heildarstefnu um
atvinnugreinina, þ.e. hvert þið viljið
stefna og hvar þið viljið vera eftir
áratug,“ segir hann og vísar þá m.a.
til siðareglnanna og náttúruvernd-
ar.
„Hnattræn mengun virðir engin
landamæri og það er verkefni okkar
allra að vinna að því að takmarka,
t.d. losun gróðurhúsalofttegunda en
við verðum líka að gæta að við-
kvæmum svæðum í náttúrunni. Hér
er náttúran einstök og þið verðið að
huga að því hvernig þið nálgist hana
og nýtið.“
Spurður um framhaldið og eft-
irfylgni siðareglnanna segir dr. Ta-
leb Rifai að Sameinuðu þjóðirnar
stefni að því að halda ráðstefnu um
reglurnar og þannig binda þær í
samning sem væri lagalega bind-
andi fyrir þau ríki sem skrifa undir
hann.
Gæðavottorð ferðaþjónustu
Aðalritari ferðamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna var viðstaddur undirritun
siðareglna UNWTO á Ferðaþingi 2017 Ísland þarf að setja sér heildarstefnu
Gæðavottun á rekstri
» Alþjóðlegar siðareglur
UNWTO í ferðaþjónustu eru
ekki lagalega bindandi.
» Eru vottun um gæði og heil-
brigði fyrirtækja í greininni.
» Gilda um opinbera aðila og
einkaaðila.
Morgunblaðið/Eggert
Í ræðustól Dr. Taleb Rifai, sem er aðalritari ferðamálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, hélt erindi á Ferðaþingi 2017 í Hörpu í gær.
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæð-
inu er með tvo
menn í haldi
vegna hníf-
stunguárásar í
íbúðarhúsnæði í
Æsufelli í
Reykjavík, sem
átti sér stað á
þriðjudag. Hópur manna ruddi sér
leið inn í íbúðina en maður sem
varð fyrir hnífstungunni var gest-
komandi í íbúðinni. Eftir að hafa
verið fluttur á sjúkrahús gekkst
hann undir aðgerð og er ekki talinn
í lífshættu að sögn Einars Guðbergs
Jónssonar lögreglufulltrúa.
Skýrslutökur standa yfir bæði af
mönnunum tveimur og fórnarlamb-
inu. Þá hafa skýrslur verið teknar
af vitnum að árásinni. Mennirnir
tveir hafa verið úrskurðaðir í viku
gæsluvarðhald en hvorugur þeirra
hefur játað á sig verkanðinn.
Tveir í
haldi vegna
hnífstungu
Fórnarlambið
ekki talið í lífshættu