Morgunblaðið - 05.10.2017, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Laugavegi 103, við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is
Eitt mesta úrval landsins af
HÖNSKUM
NÚ ER AÐ
KÓLNA
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn september fer í meta-
bækurnar sem afar hlýr og úr-
komusamur mánuður. Úrkoma
mældist yfir meðallagi á flestum
veðurstöðvum landsins. Óvenju
hlýtt og blautt var á austanverðu
landinu. Þetta kemur fram í yfirliti
Veðurstofunnar sem Kristín Björg
Ólafsdóttir, sérfræðingur á sviði
veðurfarsrannsókna, tók saman.
Sem dæmi um hlýindin á Aust-
urlandi má nefna að á Teigarhorni
í Berufirði var meðalhitinn í sept-
ember 9,7 stig eða 2,8 stig ofan
meðalhita áranna 1961-1990.
Reyndist hann 3. hlýjasti sept-
ember í röð 145 mælinga.
Á Egilsstöðum var meðalhitinn
10,5 stig, sá hæsti á landinu, heil-
um 4,3 stigum fyrir ofan meðaltal
fyrrnefndra ára. Er þetta 2. hlýj-
asti september í röð 63 mælinga.
Hlýrra var í sama mánuði 1996. Þá
var meðalhitinn 11,1 stig og frávik-
ið hærra sem því nemur. Á Egils-
stöðum hefur verið mælt frá 1955.
Hitinn yfir meðallagi
Meðalhiti í Reykjavík mældist
9,7 stig, 2,3 stigum ofan meðallags
áranna 1961 til 1990 og 1,0 stigi yf-
ir meðallagi síðustu tíu ára. Á
Akureyri var meðalhitinn 10,1 stig,
3,8 stigum ofan meðallags 1961 til
1990 og 1,9 stigum ofan meðallags
síðustu tíu ára. Þetta er 6. hlýjasti
september í röð 136 mælinga á
Akureyri og sá 11. hlýjasti í röð
147 mælinga í Reykjavík. Í Stykk-
ishólmi var meðalhitinn 9,5 stig og
10,1 á Höfn í Hornafirði.
Úrkoma var mikil í september
og mældist yfir meðallagi á flest-
um stöðvum landsins. Óvenjulega
mikil úrkoma var á Austur- og
Suðausturlandi í lok mánaðar sem
olli miklum vatnavöxtum í ám,
flóðum og skriðuföllum í þeim
landshluta, eins og fram hefur
komið í fréttum.
Úrkoma í Reykjavík mældist
89,4 millimetrar og er það 34%
umfram meðallag áranna 1961 til
1990 en um 15% undir meðallagi
síðustu tíu ára. Á Akureyri mæld-
ist úrkoma í september 73,1 milli-
metri og er það 87% yfir meðallagi
áranna 1961 til 1990 og um 20%
yfir meðallagi síðustu tíu ára. Úr-
koma í Stykkishólmi mældist 109,2
millimetrar.
Mörg úrkomumet eystra
Á Höfn í Hornafirði mældist úr-
koma 336,8 millimetrar sem er það
mesta sem hefur mælst þar í sept-
ember. Þónokkrar tilfærslur hafa
verið á úrkomumælingum á Höfn,
segir í yfirliti Veðurstofunnar.
Mælingar hófust á Höfn 1965 og
stóðu til 1985. Síðan var mælt í
Hjarðarnesi og Akurnesi og svo
aftur á Höfn frá árinu 2007.
Nokkur önnur septemberúr-
komumet voru sett, t.d. á Gilsá í
Breiðdal (492 mm), Neskaupstað
(417 mm), Stafafelli í Lóni (383
mm) og Skaftafelli (384 mm). Að
auki mældist mikil úrkoma á flest-
um sjálfvirkum úrkomustöðvum á
Austurlandi í mánuðinum. „Að öll-
um líkindum hefur einnig mikið
rignt til fjalla á Suðaustur- og
Austurlandi í lok mánaðar sem
kemur ekki nægilega vel fram í
mælingum þar sem fáar úrkomu-
stöðvar eru á því svæði,“ segir í
yfirliti Veðurstofunnar.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 114,9, um 10 stundum
færri en að meðallagi í september.
Á Akureyri mældust 79,8 sólskins-
stundir, 5,6 stundum færri en í
meðalári.
Rigning yfir meðal-
lagi um allt land
Nýliðinn september var afar hlýr og úrkomusamur
Morgunblaðið/Eggert
Austurland Miklir vatnavextir voru í september. Litlu munaði um tíma að
Lagarfljót flæddi yfir brúna. Menn voru í viðbragðsstöðu á Egilsstöðum.
Veðurstofan hefur gert upp svokall-
að „veðurstofusumar“ sem nær yfir
mánuðina júní til september, að báð-
um mánuðum meðtöldum.
Meðalhitinn í Reykjavík reyndist
10,5 stig, 1,4 stigum yfir meðallagi
áranna 1961 til 1990, en -0,15 stigum
undir meðallagi síðustu tíu ára. Á
Akureyri var meðalhiti sumarsins
10,4 stig, 1,4 stigum yfir meðallagi
áranna 1961 til 1990 og 0,3 stigum
yfir meðalhita síðustu tíu ára.
Sumarið í Reykjavík er það 21.
hlýjasta frá upphafi samfelldra mæl-
inga 1871 og það 16. hlýjasta á Akur-
eyri frá upphafi mælinga 1882.
Úrkoma í Reykjavík mældist
208,1 millimetri í sumar sem er 90%
af meðalúrkomu áranna 1961 til
1990. Á Akureyri mældist úrkoma í
sumar 163,8 mm sem er 20% um-
fram meðallag áranna 1961 til 1990.
Dagar þegar úrkoma mældist 1,0
mm eða meiri voru fjórum færri en í
meðalári í Reykjavík en sex fleiri á
Akureyri.
Árið hlýtt til þessa
Fyrstu níu mánuðir ársins hafa
verið hlýir á landinu, segir í yfirliti
Veðurstofunnar. Febrúar, maí og
september voru sérlega hlýir. Í
Reykjavík er hiti 1,5 stigum ofan
meðallagsins 1961 til 1990 og 0,3
stigum ofan meðallags síðustu tíu ár.
Á Akureyri er hiti 2,0 stigum ofan
meðallagsins 1961 til 1990 fyrstu níu
mánuði ársins og 0,8 stigum ofan
meðallags síðustu tíu ára.
Mánuðirnir níu eru í 8. hlýjasta
sæti í Reykjavík frá upphafi sam-
felldra mælinga og í því 5. á Akur-
eyri. Úrkoma í Reykjavík hefur ver-
ið 30% umfram meðallag og um 24%
umfram meðallag á Akureyri.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Hanna
Veðurblíða Veðrið lék við höfuðborgarbúa í sumar, sérstaklega þegar á
leið. Margir lögðu leið sína í Grasagarðinn og nutu góðra veitinga.
Sumarið hlýtt og
sólríkt í borginni
Sólskinsstundir
» Sólskinsstundir mældust
682 í Reykjavík í sumar, 70
fleiri en að meðaltali 1961 til
1990, en 17 stundum færri en
síðustu tíu ár.
» Á Akureyri mældust sól-
skinsstundirnar 529 sem er 27
stundum undir meðallagi ár-
anna 1961 til 1990 og 61 stund
færri en að meðaltali síðustu
tíu ár.
„Veðurstofusumarið“ 2017 er liðið
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands, og Jón Atli Bene-
diktsson, rektor Háskóla Íslands,
eru á meðal fyrirlesara á 10 ára af-
mælismálþingi
samtakanna
Göngum saman
sem haldið verð-
ur í Veröld, húsi
Vigdísar, á morg-
un, föstudag.
Samtökin voru
stofnuð 2007 og
er helsti tilgang-
ur þeirra að
safna fé til rann-
sókna sem auka
skilning á uppruna og eðli krabba-
meins í brjóstum. Á málþinginu
verður tilkynnt um styrkveitingar
úr styrktarsjóði samtakanna.
Þingið sem haldið er undir yfir-
skriftinni „Draumur um lækningu“
hefst kl. 15 með ávörpum Vigdísar
og Jóns Atla, en aðrir ræðumenn
eru Gunnhildur Óskarsdóttir, for-
maður samtakanna, Jórunn Erla
Eyfjörð, prófessor emeritus, Birna
Þorvaldsdóttir doktorsnemi, Rósa
Björk Barkardóttir, klínískur pró-
fessor á Landspítala, Magnús Karl
Magnússon, prófessor við lækna-
deild, og Kristján Þór Júlíusson,
mennta- og menningarmálaráð-
herra.
Framsýnn hópur
„Þessi samtök hafa verið ákaflega
dugleg og framsýn með því að
leggja áherslu á stuðning við grunn-
rannsóknir,“ sagði Magnús Karl
Magnússon í samtali við Morgun-
blaðið. „Þau hafa unnið alveg ótrú-
legt hugsjónastarf.“
Magnús Karl segir að á þeim ára-
tug sem er liðinn frá því að Göngum
saman hóf starfsemi hafi samtökin
lagt fram um 70 milljónir króna til
krabbameinsrannsókna. Hefur féð
að stærstum hluta farið í vísinda-
legar rannsóknir, aðallega doktors-
rannsóknir, launakostnað nemenda
og efniskostnað. „Vegna þessa
stuðnings hefur orðið til ný kynslóð
vísindamanna á þessu sviði, sem eru
að vinna mjög mikilvægt starf.“
gudmundur@mbl.is
Hafa lagt 70 milljónir í
krabbameinsrannsóknir
Tíu ára afmælismálþing Göngum saman á morgun
Morgunblaðið/Eggert
Göngum saman Frá göngu samtakanna á mæðradaginn í vor.
Magnús Karl
Magnússon