Morgunblaðið - 05.10.2017, Page 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Við lifum á öld ferða-
langsins. Á undan-
förnum áratugum hef-
ur ferðum fólks í
afþreyingarskyni fjölg-
að mjög og samkvæmt
spám Alþjóðaferða-
málastofnunarinnar
verður ekkert lát þar á.
Væntingar reyndra
ferðalanga um upp-
lifun, afþreyingu og þjónustu hafa
vaxið og æ fleira fólk hefur lifibrauð
sitt af því að framreiða þessa upp-
lifun. Á sama tíma vex skilningur á
því hversu mikil og djúpstæð áhrif
ferðaþjónusta getur haft á það sam-
félag og umhverfi sem hún hrærist
innan, sem og hversu mikilvægt það
er að atvinnugreinin dafni í sátt við
íbúa og náttúru.
Áfangastaðurinn er grunneining
ferðaþjónustunnar og mikilvægt er
að uppbygging hans og skipulag séu
hugsuð frá grunni. Kortleggja þarf
stöðuna með tilliti til þjónustufram-
boðs, sérstöðu og auðlinda, en ekki
síst kanna hug íbúa til atvinnugrein-
arinnar – og fá fram hugmyndir
fólks um hvaða áhrif það vill sjálft að
greinin hafi á daglegt líf og nánasta
umhverfi íbúa.
Ferðamálastofa hefur um árabil
talað fyrir því að þróun ferðaþjón-
ustunnar verði mótuð á heildstæðan
hátt, að lagt verði í þá vinnu að sam-
þætta áætlanagerð, greina þarfir á
víðum grunni og móta rekstraráætl-
anir ríkis og sveitarfélaga í auknum
mæli með hliðsjón af ferðaþjónust-
unni, þörfum hennar, sem og áhrif-
um á samfélag og umhverfi.
Starfsfólk Ferðamálastofu hefur
frá árinu 2014 kynnt sér gerð
áfangastaðaáætlana víða um heim
og mótað tillögur um með hvaða
hætti beita mætti þessari aðferða-
fræði á heildstæðan hátt á Íslandi,
ferðaþjónustu og samfélaginu öllu til
heilla. Verkefnið var sett á forgangs-
lista verkefna í Vegvísi fyrir ferða-
þjónustuna 2015 og var árið 2016
sett af stað í góðri samvinnu Ferða-
málastofu og Stjórnstöðvar ferða-
mála.
Engum blandast hugur um þann
gríðarlega vöxt sem einkennt hefur
íslenska ferðaþjónustu undanfarin
ár og íslenskt samfélag hefur notið
góðs af. Ferðaþjónustan hefur skip-
að sér í efsta sæti á lista þeirra at-
vinnugreina sem afla okkur erlends
gjaldeyris, hún hefur skapað lung-
ann af þeim störfum sem sárlega
vantaði í kjölfar efnahagshrunsins
árið 2008, hún er drifkrafturinn að
baki hagvexti undanfarinna missera.
Hin mikla fjölgun ferðamanna hefur
á sama tíma skapað ýmsar áskoran-
ir. Íslenskt samfélag hefur þannig
þurft að ganga gegnum krappt lær-
dómsferli, bæði að greina hverjar
áskoranirnar eru, og ekki síður móta
leiðir til að bregðast við þessum
áskorunum með það að markmiði að
tryggja til langs tíma sjálfbæran
vöxt atvinnugreinarinnar í sátt við
umhverfi og samfélag. Þetta eru
ekki lítil viðfangsefni.
Með gerð áfangastaðaáætlana er
átt við heildstætt ferli þar sem litið
er til skipulags og samhæfingar í
þróun og stýringu allra þeirra þátta
sem geta haft áhrif á upplifun ferða-
manna á viðkomandi svæði/áfanga-
stað, þ.m.t. þarfir gesta, heima-
manna, fyrirtækja og umhverfis.
Áfangastaðaáætlun er sameiginleg
stefnuyfirlýsing sem hefur það að
markmiði að stýra uppbyggingu og
þróun svæðis yfir ákveðinn tíma,
skilgreina hlutverk hagsmunaaðila,
tiltaka beinar aðgerðir sem hver og
einn hagsmunaaðila ber ábyrgð á og
hvaða bjargir/auðlindir þeir hyggj-
ast nýta við þá vinnu.
Í öllu ferlinu er lögð mikil áhersla
á samtal og samráð opinberra aðila,
fyrirtækja, ferðaþjónustunnar og
íbúa. Einnig er mikilvægt að taka
fram að áfangastaðaáætlanir eru lif-
andi verkfæri sem endurskoðaðar
verða reglulega í takt við breyttar
forsendur greinarinnar.
Gert er ráð fyrir að áætlanagerð
ljúki á árinu 2018, og að þá verði
tilbúin ýtarleg gögn um stöðu mála í
hverjum landshluta, sameiginleg
markmið sem fólk er sammála um að
stefna að í málefnum ferðaþjónust-
unnar og skilgreindar leiðir og verk-
efni sem þarf að vinna til þess að ná
þeim markmiðum.
Það er hins vegar ljóst, að til þess
að sú mikla vinna sem hagsmuna-
aðilar um allt land eru núna að inna
af hendi skili tilætluðum árangri,
verða áfangastaðaáætlanirnar að
verða leiðarljós í áætlanagerð og
verkefnafjármögnun á næstu árum.
Vinna þarf markvisst eftir áætlun
hvers svæðis og taka mark á henni
til þess að tryggja til framtíðar þá
hagsmuni sem hér liggja undir.
Stjórnvöld verða að vera tilbúin til
að taka tillit til þeirra, sem og aðrir
hagsmunaaðilar. Aðrar opinberar
áætlanir ríkis og sveitarfélaga þurfa
einnig að endurspegla þær áherslur
sem hér eru markaðar og öfugt. Allt
þarf þetta að spila saman svo við
göngum öll í sömu áttina. Við þurf-
um öll að vinna saman.
Ferðaþjónustan er mikilvæg at-
vinnugrein, sem getur, ef rétt er á
spilum haldið, auðgað mannlíf og
tryggt fjölbreytni í búsetuskilyrðum
um allt land til langrar framtíðar.
Við væntum mikils af þeirri vinnu
sem núna er í fullum gangi um allt
land og trúum, að með samstilltu
átaki getum við byggt upp ferða-
þjónustu sem einkennist af metnaði,
fyrirhyggju og framtíðarsýn.
Heildstæð nálgun til mótunar
á framtíð ferðaþjónustunnar
Eftir Ólöfu Ýri
Atladóttir og
Hrafnhildi Ýri
Víglundsdóttur
» Í öllu ferlinu er lögð
mikil áhersla á sam-
tal og samráð opinberra
aðila, fyrirtækja, ferða-
þjónustunnar og íbúa.
Hrafnhildur Ýr
Víglundsdóttir
Ólöf Ýrr er ferðamálastjóri. Hrafn-
hildur Ýr er verkefnisstjóri svæðis-
bundinnar þróunar á Ferðamálastofu.
olof@ferdamalastofa.is
hrafnhildur@ferdamalastofa.is
Ólöf Ýrr
Atladóttir
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði
í okkar fullbúnu gleraugnaverslun
á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð
Ábyrgðar- og þjónustuaðilar:
Optical Studio Smáralind, s. 528 8500
Optical Studio Keflavík, s. 4213811
Með öllum margskiptum glerjum fylgir
annað par FRÍTT með í sama styrkleika