Morgunblaðið - 13.10.2017, Side 21
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórn bandarísku kvikmyndaaka-
demíunnar kemur saman á morgun
til að ræða mál kvikmyndaframleið-
andans Harveys Weinsteins sem
hefur verið sakaður um að hafa
áreitt margar leikkonur kynferðis-
lega og nauðgað þremur þeirra. Tal-
ið er að stjórnin
íhugi að víkja
Weinstein úr aka-
demíunni, að
sögn bandarískra
fjölmiðla. Fyrr í
vikunni var hon-
um vikið úr
bresku kvik-
myndaakademí-
unni, BAFTA,
vegna málsins.
Stjórn banda-
rísku akademíunnar sendi frá sér
yfirlýsingu þar sem hún fordæmdi
„andstyggilegt“ og „viðbjóðslegt“
framferði Weinsteins og sagði að
hegðun hans samræmdist ekki þeim
siðferðiskröfum sem gerðar væru til
félaga í akademíunni. Stjórnin sagði
ekkert um hvers konar refsing kæmi
til greina. Bandarískir fjölmiðlar
segja að auk hugsanlegrar brott-
vikningar íhugi stjórnin meðal ann-
ars að svipta Weinstein Óskars-
verðlaunum sem hann fékk fyrir
kvikmyndina Shakespeare in Love
árið 1999 þegar hún var valin besta
kvikmyndin.
Haft í flimtingum
Áður var Weinstein vikið frá
störfum í fyrirtækinu The Weinstein
Company sem hann stofnaði ásamt
bróður sínum, Bob Weinstein.
Stjórn fyrirtækisins segist ekki hafa
vitað af framferði kvikmyndafram-
leiðandans. The New York Times
skýrði þó frá því í fyrradag að
stjórnarmenn fyrirtækisins hefðu
vitað í allt að þrjú ár af greiðslum
sem þrjár eða fjórar konur hefðu
fengið frá fyrirtækinu gegn því að
þær féllu frá málshöfðun á hendur
honum fyrir kynferðislega áreitni.
Franska leikkonan Lea Seydoux,
ein þeirra sem saka Weinstein um
kynferðislega áreitni og árás, segir í
grein í breska dagblaðinu The
Guardian að allir í kvikmynda-
framleiðslunni í Hollywood hafi vitað
af framferði Weinsteins en látið það
afskiptalaust. „Hann notaði vald sitt
til að svala kynhvöt sinni.“
Weinstein var einn af áhrifamestu
kvikmyndaframleiðendum Holly-
wood og er sakaður um að hafa not-
að vald sitt til að áreita ungar leik-
konur kynferðislega og jafnvel
þvinga þær til samfara. Málið hefur
vakið áleitnar spurningar um hvers
vegna samstarfsmenn Weinsteins
sögðu ekki fyrr frá áreitninni og
hvers vegna frammámenn í kvik-
myndaframleiðslunni brugðust ekki
fyrr við athæfi hans. Að sögn banda-
rískra fjölmiðla var kynferðisleg
áreitni hans á vitorði svo margra í
Hollywood að gert hafði verið grín
að því í gamanþáttum í sjónvarpi og
á Óskarsverðlaunahátíðinni árið
2013. Bandaríski leikarinn Seth
MacFarlane sagði þá þegar hann
kynnti leikkonur sem voru til-
nefndar til Óskarsverðlauna fyrir
leik í aukahlutverki: „Til hamingju,
þið dömurnar fimm þurfið ekki leng-
ur að láta sem þið laðist kynferðis-
lega að Harvey Weinstein.“
Komst hjá ákæru
Tímaritið The New Yorker hefur
skýrt frá því að fyrirsætan Ambra
Battilana Gutierrez hafi kært Wein-
stein fyrir kynferðislega áreitni til
lögreglunnar í New York árið 2015.
Lögreglan bað hana um að vera með
hljóðnema innan klæða þegar hún
fór á fund hans á hóteli í borginni. Á
hljóðupptöku heyrðist Weinstein
biðjast afsökunar á að hafa þuklað á
brjóstum fyrirsætunnar og reyna að
þvinga hana til að fara inn í hótel-
herbergi hans. Umdæmissaksókn-
ari á Manhattan ákvað að ákæra
ekki kvikmyndaframleiðandann eft-
ir að í ljós kom að hún hafði tekið
þátt í alræmdum svallveislum Silv-
ios Berlusconis, fyrrverandi for-
sætisráðherra Ítalíu, í villu hans í
Mílanó.
Weinstein vikið úr kvik-
myndaakademíunni?
Athæfi hans sagt hafa verið á vitorði margra í Hollywood
Leikkonurnar (frá vinstri) Asia Argento, Judith Godreche, Angelina Jolie
og Gwyneth Paltrow eru á meðal þeirra sem hafa sakað Harvey Weinstein
um kynferðislega áreitni. Kvikmyndaframleiðandinn hefur neitað því að
hann hafi haft kynmök við konur án samþykkis þeirra. Hann sagði þó fyrr í
vikunni að hann hefði leitað sér aðstoðar vegna kynlífsfíknar, eftir að
eiginkona hans ákvað að skilja við hann vegna þessara ásakana.
AFP
Segjast hafa orðið fyrir áreitni Weinsteins
Harvey
Weinstein
Magnús Heimir Jónasson
Þorsteinn Ásgrímsson
Fjórir særðust í skotárás í verslun
í miðbæ Trelleborg í Svíþjóð. Lög-
reglan fékk tilkynningu um skot-
árásina um klukkan hálfellefu að
staðartíma. Leit stóð enn yfir að
árásarmönnunum þegar Morgun-
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Hinir særðu voru fluttir á
sjúkrahús en ekki var ljóst í gær-
kvöldi hve alvarleg meiðsl þeirra
væru. Þrír voru fluttir á sjúkrahús
í Málmey og einn á sjúkrahúsíð í
Lundi. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Svíþjóð fékk lög-
reglan nokkur símtöl um mögu-
lega skotárás í miðborg Trelle-
borg. Hófst strax stór
lögregluaðgerð á vettvangi og leit-
aði lögreglan eins eða fleiri árás-
armanna. Svæðinu var lokað í gær
á meðan lögregluaðgerðir stóðu
yfir. Allir hinir særðu eru sagðir
vera karlmenn.
Skothljóð og öskur
Aron Tydén, íbúi í bænum segir
í samtali við Expressen, að hann
hafi heyrt hávær skothljóð og síð-
an öskur. „Ég heyrði bara skot-
hljóð og mikil öskur,“ sagði Tydén.
Skotárásin er sögð hafa átt sér
stað í eldri hluta Trelleborg þar
sem mestmegnis er íbúðarhúsnæði
og verslanir af ýmsum toga.
„Við fengum fjölda tilkynninga
um skotárásina og þegar við mætt-
um á svæðið voru fjórir slasaðir,“
sagði Fredrik Bratt, fjölmiðla-
fulltrúi hjá lögreglunni í Svíþjóð,
við Sydsvenskan. Bratt sagði að
ekki væri hægt að veita frekari
upplýsingar, en búið væri að girða
af svæðið sem árásin fór fram á.
Að sögn Dagens Nyheter rann-
sakar sænska lögreglan árásina
sem tilraun til manndráps.
Árásarmaður hóf
skothríð í verslun
Fjórir særðir eftir skotárás í Svíþjóð
Ljósmynd/Riggwelter
Lögreglan Árásin átti sér stað í Sví-
þjóð, en mynd tengist efni óbeint.
Sænskir saksóknarar tilkynntu í
gær að þeir hygðust ekki ákæra
ítalska skurðlækninn Paolo Macchi-
arini sem hefur verið sakaður um
að hafa valdið dauða þriggja sjúk-
linga með plastbarkaaðgerðum á
Karólínska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi.
Sænska ríkisútvarpið sagði að
saksóknararnir hefðu ákveðið þetta
vegna þess að þeir teldu að ekki
væri hægt að sanna að plastbarka-
aðgerðirnar hefðu valdið dauða
sjúklinganna eða að hann hefði
gerst sekur um lögbrot.
Macchiarini var vikið frá störfum
hjá Karólínska sjúkrahúsinu á síð-
asta ári og hann var sagður hafa
skaðað orðspor sjúkrahússins með
umdeildum barkaígræðslum.
Umdeildur Læknirinn Paolo
Macchiarini hefur alltaf neitað sök.
Macchiarini
verður ekki
ákærður
Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040
VWGolf Trendline
1.6 TDI
2.590.0002015
43.000Ekinn
30
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan& bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Fleiri bílar og
myndir á netinu: hnb.is
Tilboðsbílar
í tugavís
VWPolo Comfortline
1.4
1.290.0002012
103
Mitsubishi Outlander
4x4 Intense 2.4
3.890.0002015
56
1.050.000TILBOÐ 3.390.000TILBOÐ
SkodaOctavia
Ambiente 1.6 TDI
1.920.0002012
92
VWPoloComfortline
1.4
1.220.0002010
120
1.640.000TILBOÐ 890.000TILBOÐ
VWGolf Variant
Trendline 1.4 TSI
2.790.0002015
46
SkodaOctavia
Ambition 1.6 TDI
2.890.0002015
36
2.470.000TILBOÐ 2.590.000TILBOÐ
2.290.000TILBOÐ