Morgunblaðið - 13.10.2017, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Síðastliðinnþriðjudagbirti Erla
Björnsdóttir, sál-
fræðingur og dokt-
or í líf- og lækna-
vísindum, grein hér í blaðinu.
Hún ræddi um svefn, og þó
helst um skort á honum. Hún
benti á að mikilvægt væri að
börn og unglingar á vaxtar- og
þroskaskeiði fengju nægan
svefn. Hún rakti margt af því
sem verður til þess að æska
samtímans er svikin um nauð-
synlegan svefn, afleiðingar
þess og það sem kemur í stað
eðlilegs svefns. Erla tók málið
saman í einni málsgrein:
„Snjallsímar í skólum, of lítill
svefn, gríðarleg aukning í
notkun svefnlyfja (fyrir börn
(innsk.)) og aukinn kvíði meðal
barna – þetta er þróun sem við
verðum að snúa við.“ Í grein-
inni segir Erla Björnsdóttir
einnig: „Þegar börn glíma við
svefnvanda er margt sem ber
að skoða áður en farið er að
gefa þeim svefnlyf, s.s. lífsstíll,
hreyfing, mataræði, neysla
orkudrykkja, skjánotkun og
fleira. Gífurleg aukning hefur
orðið í notkun snjalltækja hjá
börnum og eru þessi tæki jafn-
vel farin að hafa truflandi
áhrif á skólastarf hér á landi
og skólastjórnendur hafa sagt
það ómögulegt að banna þessi
tæki í kennslustofum.“ Getur
það verið? Er þá ekki of mikið
sagt að þeir hinir sömu séu
skólastjórnendur? Að vísu er
þjóðfélagið allt, frá stjórnmál-
unum og niður úr, eða eftir at-
vikum upp úr, í mikilli upp-
lausn. Það vafðist ekki fyrir
góða dátanum Svejk að agi í
herbúðunum væri meginregla.
En eftir höfðinu dansa limirnir
og því er ekki að undra þótt
limirnir nemi sjaldan við jörð
um þessar mundir.
En svo vill til að þættir sem
snerta svefninn sjálfan komust
í kastljós í síðustu viku. Þá
veitti nefnd Nóbels þremur
vísindamönnum sameiginlega
verðlaun í eðlis- og læknis-
fræði. Við verðlaunaveit-
inguna kom „lífsklukkan“ við
sögu.
Í tilefni hennar ræddi Ríkis-
útvarpið við Heiðdísi Valdi-
marsdóttur, prófessor í sál-
fræði við H.R., sem hefur
undanfarið unnið að rann-
sóknum á dægursveiflunni í
Bandaríkjunum: „Hún segir
lengi hafa legið fyrir að lífs-
klukka sem er úr takti geti
haft mikil áhrif á líðan okkar
og heilsu, meðal annars leitt til
þunglyndis og svefnleysis.
Rannsóknir hafi til dæmis sýnt
að flugliðar eru í aukinni
hættu á að fá krabbamein og
það er talið vera vegna þess að
tíðar flugferðir raski lífs-
klukku þeirra. Næturvaktir
hafa líka slæm
áhrif. „Þannig að
núna er farið að
leggja áherslu á að
þeir sem eru í
vaktavinnu fái
ljósameðferð yfir daginn til að
hjálpa lífsklukkunni þeirra.“
Heiðdís segir uppgötvun
vísindamannanna merkilega,
enn sé þó rannsókna þörf,
einkum á því hvernig megi
stilla lífsklukkuna hjá þeim
sem þess þurfa við, og draga
þannig úr vanlíðan og hættu á
sjúkdómum.“ Þá sagði: „Í
Bandaríkjunum hafa vís-
indamenn rannsakað áhrif
þess að setja ljós sem líkja eft-
ir náttúrulegu ljósi inn á her-
bergi aldraðra á hjúkr-
unarheimilum. Heiðdís segir
að þetta fólk fari oft ekkert út
og því sé lífsklukka þess van-
stillt. Við þetta hafi líðan þess
batnað og vitræn geta aukist.
Sjálf er hún að gera rannsókn
á áhrifum náttúrulegs ljóss
sem líkir eftir dagsbirtu á
krabbameinssjúklinga á spít-
ölum. „Við berum það saman
við ljós sem eru venjulega á
spítölum og við erum að finna
mun, þegar lífsklukkan er sett
í gang á morgnana þá líður
sjúklingum mun betur og þeir
ná sér kannski aðeins fyrr.“
Hún telur að það gæti verið
áhugavert að prófa svona ljós í
skólum hér.
Það þarf líka að huga að
ýmsu í hversdagslífinu. Tölvu-
og símanotkun á kvöldin rugl-
ar lífsklukkuna í ríminu, veld-
ur því að hún hægir ekki nógu
mikið á sér og erfiðar svefn.
Nú er verið að kanna hvort
það er hægt að koma í veg fyr-
ir þessi áhrif með sérstökum
næturskjástillingum.“
Og áfram segir: „Hér á landi
hefur færst mjög í aukana að
börnum sé gefið svefnlyf sem
inniheldur melatónín-hormón
þrátt fyrir að það sé sam-
kvæmt lyfjaskrá einungis ætl-
að 55 ára og eldri (og) ekki
liggi fyrir rannsóknir á áhrif-
um þess á börn. Þá segir í
lyfjaskrá að ætlast sé til þess
að það sé notað til skamms
tíma. Heiðdís telur að betra
væri að nota náttúrulegt ljós,
láta börnin til dæmis fá gler-
augu með appelsínugulu gleri
á kvöldin, það ætti að auka
melatónínframleiðsluna.
„Birtan stjórnar klukkunni
mest og þess vegna eigum við
að nota mismunandi ljós, það
er svo margt hægt að gera sem
verður til þess að þetta verður
náttúrulegt og eðlilegt.““
Í þessu samhengi hefur ver-
ið rætt hvort rétt sé að seinka
íslensku klukkunni um einn
tíma í eitt skipti og festa hana
þar, en taka ekki upp klukku-
hringl á ný. Fróðlegt væri að
fá umræðu um það.
Fróðleg verðlaun
og hagnýt hér
á hjaranum}
Hvað er lífsklukkan?
N
ú þegar ég stíg mín fyrstu skref
sem formaður Viðreisnar þá
verður mér hugsað til fyrstu
daga okkar í fráfarandi ríkis-
stjórn. Þegar stjórnin tók við
stóð sjómannaverkfallið sem hæst og þrýsting-
urinn á inngrip stjórnvalda fór stigvaxandi. Þá
reyndi á nýjan flokk og nýskipaða ráðherra að
standa í lappirnar og standa vörð um almanna-
hagsmuni. Það tókst á endanum og takturinn
var sleginn fyrir framgöngu Viðreisnar í ýms-
um erfiðum málum sem framundan voru.
Flokkurinn stendur traustur í báðar fætur þeg-
ar kemur að nauðsynlegum kerfisbreytingum
og baráttunni fyrir að ná þeim í gegn.
Á síðastliðnum átta mánuðum hefur Viðreisn
tekist að leiða fjölmörg góð mál til lykta og
þannig sýnt í verki fyrir hvað flokkurinn stend-
ur. Jafnlaunavottunin sem lögfest var á síðasta
þingi hefur hlotið heimsathygli og er víða litið til Íslands
fyrir þetta mikilvæga skref í þágu kynjajafnréttis. Fjár-
veitingar til móttöku flóttamanna voru þrefaldaðar, enda
einn af mikilvægustu liðunum í stefnu Viðreisnar að Ísland
sýni ábyrgð í þeim flóttamannavanda sem heimurinn
stendur frammi fyrir. Reikningar Stjórnarráðsins voru
opnaðir til að auka gagnsæi í stjórnsýslunni því Viðreisn
stundar ábyrga hagstjórn og vill stuðla að því að almenn-
ingur geti fylgst með því hvernig skattgreiðslum hans er
varið. Í þeim efnum er rétt að minnast þess að í tíð núver-
andi fjármálaráðherra hækkaði lánshæfismat ríkisins í A í
fyrsta skipti í áratug ásamt því að fjármagnshöft voru af-
numin og aukin fjárfesting lífeyrissjóðanna er-
lendis var undirbúin.
Í landbúnaðarmálum hefur Viðreisn heldur
ekki látið sitt eftir liggja og staðið vörð um
hagsmuni bænda, neytenda og skattgreiðenda
og lagt til langtímalausnir fyrir sauð-
fjárbændur og afnám undanþágna frá almenn-
um samkeppnislögum í mjólkuriðnaði. Jafn-
framt hefur flokkurinn lagt ríka áherslu á að
ná fram breytingum á hinum mjög svo um-
deildu búvörusamningum sem því miður meitl-
uðu núverandi kerfi enn frekar í stein á síðasta
kjörtímabili.
Hér eru einungis fáein dæmi nefnd af verk-
um Viðreisnar síðustu mánuði og svo mikið er
víst að þau verða mun fleiri á komandi kjör-
tímabili.
Á tímum þar sem er raunveruleg hætta á að
öfgalausir, frjálslyndir og alþjóðasinnaðir
flokkar þurrkist út af þingi er hlutverk Viðreisnar mik-
ilvægara en nokkru sinni fyrr. Til að lífskjör allra á Íslandi
standist samanburð við þær þjóðir sem við viljum bera
okkar saman við þarf fólk á þing sem hefur þekkingu, þor
og reynslu til að breyta því sem breyta þarf. Það gerist
hinsvegar ekki sjálfkrafa. Viðreisn er frjálst og jafnréttis-
sinnað stjórnmálaafl, skipað fólki sem þorir að taka slag-
inn í þágu almannahagsmuna. Veitum þessu fólki brautar-
gengi í komandi kosningum.
Þorgerður
Katrín Gunn-
arsdóttir
Pistill
Kjósum kerfisbreytingar
Höfundur er formaður Viðreisnar og oddviti lista flokksins
í Suðvesturkjördæmi.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Orkuskortur á Akureyri ogannars staðar við Eyja-fjörð hamlar atvinnu-uppbyggingu á svæðinu.
Þá verða starfandi fyrirtæki þar fyrir
tjóni vegna skerðingar á rafmagns-
afhendingu og flökti í kerfinu. Vegna
ágreinings um lagningu háspennulínu
hefur ekki tekist að tengja Eyjafjarð-
arsvæðið við Blönduvirkjun með
nógu öflugum hætti og þar með virkj-
anirnar á Suðurlandi og tenging við
Kröflu og Austurland verður ekki
tilbúin fyrr en eftir nokkur ár.
„Staðan er vond og langt í úr-
bætur,“ segir Elva Gunnlaugsdóttir,
verkefnastjóri hjá Atvinnuþróun-
arfélagi Eyjafjarðar. Hún segir að
orkuskortur hamli uppbyggingu.
„Við höfum verið að reyna að koma
okkar svæði að, meðal annars hjá Ís-
landsstofu, en þar hrista menn bara
hausinn. Við erum ekki að ræða um
stóriðju. En til að atvinnulífið geti
haldið áfram að blómstra þarf orku
sem er til í kerfinu. Það vantar bara
leiðir til að koma henni til okkar,“
segir Elva.
Framleiðslutjón og kostnaður
Árni V. Friðriksson, formaður
Samtaka atvinnurekenda á Akureyri
og nágrennis, segir að vegna þess
hversu flutningsgetan er lítil til og frá
Akureyri séu fyrirtækin eins og á
enda kerfisins. Þegar önnur hvor
leiðin lokast, sérstaklega austurlínan
sem er öflugri en vesturlínan, skapist
vandamál hjá notendum. Þeir sem
séu við endann verði verr úti en aðrir
þegar flökt verði á rafmagninu. Bil-
anir sem verði langt í burtu geti bitn-
að á þeim.
Öflug fyrirtæki eru í matvæla-
framleiðslu á Akureyri, eins og
mjólkursamlag og bjórgerð. Einnig
þjónustufyrirtæki og fyrirtæki í
málmiðnaði. Þau þurfa að kaupa
ótryggða orku og verða fyrir skerð-
ingum. Þeim stendur ekki til boða að
kaupa forgangsorku. Þau verða því
fyrir framleiðslutjóni þegar skerð-
ingar eru tilkynntar. Einnig verða
bilanir í framleiðslukerfum þegar
flökt er á rafmagni. Fyrirtækjum á
svæðinu stendur ekki til boða að
kaupa raforku til að stækka við sig.
Tengingin frá Akureyri til
Blöndu er veikari hlutinn í tengingu
Eyjafjarðarsvæðisins. Landsnet
vann lengi að undirbúningi háspennu-
línu á þeirri leið með Blöndulínu 3 en
vegna langvinnra deilna um línuleið-
ina, sérstaklega í Skagafirði og Hörg-
ársveit, tilkynnti fyrirtækið fyrr á
þessu ári að framkvæmdinni hefði
verið frestað um óákveðinn tíma á
meðan umhverfismat yrði endur-
skoðað. Málið er því aftur komið á
byrjunarreit. Landsnet lýsti því jafn-
framt yfir að lögð yrði áhersla á teng-
ingu frá Akureyri og austur á land,
með Hólasandslínu 3 og Kröflulínu 3.
Báðar þessar línu eru í skipulags- og
matsferli og ekki við því að búast að
Hólasandslína komist í gagnið fyrr en
á seinni hluta árs 2020, samkvæmt
upplýsingum Landsnets. Miðað við
ganginn í slíkum framkvæmdum má
alveg eins búast við töfum.
Keyra á olíu?
Í bókun bæjarstjórnar Akur-
eyrar um rafmagnsmálin kemur
fram að ef ekki takist að leysa úr
þessum málum sé ekki annar
kostur en að reisa dís-
ilrafstöðvar til að
anna þörf íbúa
og fyrirtækja.
Árni segir slíkt
úrræði ekki boð-
legt. Eina varanlega
lausnin sé að tengja
Eyjafjörð við lands-
kerfið, bæði vestur og aust-
ur.
Kreppir að um orku
á Eyjafjarðarsvæðinu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Háspennulína lögð Áform Landsnets um endurnýjun byggðalínunnar frá
Blönduvirkjun til Akureyrar hafa ekki náð fram að ganga.
„Starfsemin er hátækniiðnaður
að miklu leyti. Tölvubúnaðurinn
er viðkvæmur fyrir spennuflökti
og straumrofi. Örlítið sving í
spennu – maður sér ljósin dofna
örlítið – getur haft afdrifaríkar
afleiðingar fyrir starfsemina,“
segir Kristín Halldórsdóttir,
mjólkurbússtjóri MS á Akureyri.
Mjólkurbúið notar mikla orku
við gerilsneyðingu og vinnslu
mjólkurafurða og við þvotta.
Fyrirtækið verður stundum fyrir
erfiðleikum og tjóni vegna raf-
magnstruflana.
Kristín segir að þegar trufl-
un verður í framleiðslunni
geti afurðirnar skemmst.
Nefnir hún sem dæmi að ef
hræra í einum ostatanki
skemmist þurfi að
handmoka 1,5 tonn-
um af ónýtum osti
út um lítið op á
tankinum. Það
kalli á erfiða
vinnu og langa
vinnudaga.
Afdrifaríkar
afleiðingar
OSTURINN SKEMMIST
Kristín
Halldórsdóttir